Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.2004, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.2004, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. MAÍ 2004 15 Næsta v ika menning@mbl.is Laugardagur Laugarnesskóli kl. 16 Ár- leg vorskemmtun Skátakórs- ins. Með kórnum leikur fjög- urra manna hljómsveit. Auk kórsins syngja þrjár skáta- söngkonur og þriggja manna tríó flytur nokkur þekkt lög. Salurinn kl. 20 Slag- verkshátíðin Undraverk. Nokkrir af virtustu slagverks- leikurum í heiminum flytja tónlist fyrir hljóðskúlptúra og slagverkshljóðfæri. Hljóð- skúlptúrar eftir frönsku lista- mennina Francois og Bernard Baschet verða til sýnis í for- dyri til 9. maí. Langholtskirkja kl. 17 Skagfirska söngsveitin flyt- ur íslensk þjóð- lög, sönglög eft- ir íslensk tónskáld auk sönglagasyrpu eftir söngstjór- ann Björgvin Þ. Valdimarsson. Einsöngvari með kórnum er Kristín R. Sigurðardóttir, auk söngvara úr röðum kór- félaga. Seljakirkja kl. 17 Kvenna- kórinn Seljur flytur blandaða söngdagskrá. Undirleikari á píanó er Júlíana Rún Ind- riðadóttir. Stjórnandi er Vil- berg Viggósson. Thorvaldsen Austurstræti, kl. 17 Listamennirnir Linda, Hildur & Lena opna ljós- myndasýningu sína, linC hilC lenC. Til 12 júní. Sunnudagur Seltjarnarneskirkja kl. 14 Á Listhátíð kirkjunnar. Arnar Jónsson leikari les úr Jobs- bók. Guðrún Helga Stef- ánsdóttir flytur Aríu úr Messíasi eftir Händel og flutt verða fjögur erindi úr Jobs- bók. Salurinn kl. 16 Hallar- kvartettinn, skipaður Hjörleifi Valssyni, fiðlu, Sigríði Bald- vinsdóttur, fiðlu, Jónínu Hilm- arsdóttur, víólu og Nicole Völu Cariglia, selló, leikur sí- gild verk. Listasafn Einars Jóns- sonar kl. 16 Ljóðatónleikar Gerðar Bolladóttur sópran- söngkonu og Sophie Schoonjans hörpuleikara. Háteigskirkja kl. 16 Senj- orítur Kvennakórs Reykjavíkur syngja m.a. Dagný og Vegir liggja til allra átta eftir Sigfús Halldórsson, Dein ist mein ganzes Herz eftir Lehar, Á söngsins vængjum eftir Mend- elssohn og nokkur lög úr Meyjarskemmunni eftir Schu- bert. Sigrún Þorgeirsdóttir stjórnar kórnum, Vignir Stef- ánsson leikur með á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu. Neskirkja kl. 17 Hljómsveit Félags harmonikuunnenda í Reykjavík leikur létta sígilda tónlist. Harmonikusveit Tónlist- arskólans í Garðabæ hitar upp fyrir tónleikana undir stjórn Reynis Jónassonar. Háteigskirkja kl. 20 Kór Háteigskirkju heldur vor- tónleika. Aðgangur ókeypis. Seltjarnarneskirkja kl. 20 Kvennakór Garðabæjar, Helga Laufey Finnbogadóttir, píanóleikari kórsins, fiðluleik- ararnir Sigur- laug Eðvalds- dóttir og Júlíana Elín Kjartans- dóttir, Einar Jó- hannesson klar- ínettuleikari og Richard Korn kontrabassaleik- ari flytja íslensk lög eftir sam- tímatónskáld, bresk þjóðlög, madrigala, trúarleg söngverk og sönglög eftir Edward Elg- ar. Einnig frumflytur kórinn nýja útsetningu Atla Heimis Sveinssonar á lagi sínu „Það kom söngfugl að sunnan“, Stjórnandi er Ingibjörg Guð- jónsdóttir. Salurinn kl. 20 Snorri Wi- um, tenór og Jónas Ingimund- arson, píanó flytja Ástir skáldsins (Dichterliebe Schu- manns op. 48), íslensk söng- lög eftir Sigfús Einarsson, og Tryggva M. Baldvinsson við texta eftir Þórarin Eldjárn. Hótel Borg kl. 21 Kvart- ettinn Skófílar leikur á Múl- anum. Kvartettinn skipa Ólaf- ur Jónsson á tenór sax, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Birgir Bragason á bassa og Erik Qvick á trommur. Flutt verður tónlist gítarleikarans John Scofield, sem er í hópi fremstu gítarleikara í heim- inum í dag. Mánudagur Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi kl. 20 Asko Mäkelä, forstöðmaður Ljós- myndasafns Finnlands ræðir um sterka stöðu finnskrar samtímaljósmyndunar í list- heiminum. Kl. 20 Hjallakirkja Vor- tónleikar Sam- kórs Kópavogs undir stjórn Juli- ans Hewlett. Einsöngvari Guðbjörn Guð- björnsson ten- ór. Undirleik- ari er Jónas Sen. Kórinn frumflytur m.a. lagið „Kæri Kópavogur“. Þriðjudagur Salurinn kl. 20 Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir messósópr- an, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Jónas Ingimundarson pí- anó flytja einsöngslög og dú- etta eftir íslenska og erlenda höfunda. Miðvikudagur Þjóðarbókhlaða kl. 16.15 „Heimskringla – Frá Íslandi til Noregs og heim aftur“ nefnist fyrirlestur dr. Jons Gunnars Jørgensen, prófessors við Óslóarháskóla. Jon Gunnar varði doktorsritgerð sína um Heimskringluhandritið Kringlu, sem nú er glatað, ár- ið 2000. Rannsóknir hans hafa einkum beinst að textum nor- rænna mið- alda- bókmennta og útgáfu þeirra, eink- um kon- ungasagna. Jafnframt hefur hann þýtt íslenskar samtímabókmenntir á norsku. Langholtskirkja kl. 20 Gospelsystur Reykjavíkur flytja m.a. lög úr þekktum söngleikjum og bíómyndum. Tónleikarir hafa yfirskriftina Sól rís. Einsöngvarar eru Sig- rún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Sigurðarson. Sérstakir gestir eru Stúlknakór Reykjavíkur. Stjórnandi Margrét J. Pálma- dóttir. Fimmtudagur Háskólabíó kl. 19.30 Sin- fóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Bernharðar Wilkinson. Karlakórinn Fóstbræður. Ein- söngvarar eru Elín Ósk Ósk- arsdóttir sópran, Algirdas Janutas tenór, Snorri Wium tenór, Andrzej Dobber barí- ton og Cornelius Hauptmann bassi. Kórstjóri er Árni Harðason. Flutt verður Sin- fónía nr. 39 eftir Mozart og Ödipus Rex eftir Igor Strav- inskíj. Sögumaður er Ingvar E. Sigurðsson. Borgarleikhúsið kl. 20 Á Stóra sviði leikhússins verður Don Kíkóti, eftir Miguel de Cervantes, frumsýnt í leik- stjórn Guðjóns Pedersen. Byggt er á leikgerð rússneska skáldsins Búlgakov á verkinu, í þýðingu Jóns Halls Stef- ánssonar. Meðal leikara eru Halldóra Geirharðsdóttir (Don Kíkóti) og Bergur Þór Ingólfsson (Sansjó Pansa). Kristín R. Sigurðardóttir Atli Heimir Sveinsson Guðbjörn Guðbjörnsson Morgunblaðið/Jim Smart Hörður Áskelsson og Schola cantorum á æfingu í Hallgrímskirkju. Vortónleikar kamm-erkórsins Scholacantorum verða ísafnaðarsal Hall- grímskirkju kl. 17 á morg- un. Það er Listvinafélag Hallgrímskirkju sem gengst fyrir tónleikunum sem hafa yfirskriftina „Madrigalar og mót- ettur á vori“. Þetta er í fyrsta skipti sem Schola cantorum syngur efnisskrá sem er að meiri hluta af ver- aldlegum toga. Stjórnandi er sem fyrr Hörður Áskels- son organisti. Hvers vegna hafið þið ekki flutt veraldlega tónlist áður? „Starfsvettvangur okkar er kirkjan og þar er af nógu að taka, en í fyrrahaust tók- um við þátt í alþjóðlegri kórakeppni í Tolosa á Norð- ur-Spáni, m.a. í riðli með veraldlegum tónverkum. Þar sungum við tvo madri- gala. Þetta var svo skemmtileg reynsla að okk- ur þótti ástæða til að út- víkka verkefnavalið og setja saman efnisskrá sem inni- héldi þessa tegund af tón- list, þ.e. veraldlega. Enn- fremur hafði einhvern tíma kviknað sú hugmynd að við tækjum smá hliðarspor frá kirkjulegum verkum og héldum tónleika sem fjöll- uðu öðrum þræði um vorið og ástina. Nú er hugmyndin orðin að veruleika og það hefur verið afskaplega gam- an að undirbúa þessa tón- leika Það sem er einnig óvenjulegt við þessa tón- leika er að við syngjum ekki í kirkjunni eins og vanalega, heldur í safnaðarheimilinu. Þessi salur var kirkjan áður en Hallgrímskirkja sjálf var tilbúin og þarna hóf ég starf mitt við kirkjuna. Salurinn rúmar um 100 manns og þar er maður í meiri nálægð við áheyrendur.“ Um hvað fjalla madrigal- arnir sem þið flytjið? „Við flytjum madrigala sem fjalla sérstaklega um maí, ástina og ástarsorgina, eiginlega allt það sem madrigalarnir fjalla svo mikið um. Þemað er vorið, ástin og sköpunin. Þegar við fórum að leita fyrir okkur í verkefnavali varð útkoman sú að við einskorðuðum okkur við enska madrigala. Enda er úrvalið mikið því þeir áttu nokkra alveg frá- bæra höfunda sem komust í mikinn ham um siðaskiptin, reyndar á stuttum tíma. Við flytjum ekki einvörðungu madrigala því við flytjum þrjár íburðarmiklar mót- ettur eftir William Byrd og Thomas Tallis. William þessi samdi jöfnum höndum tónlist af veraldlegum og kirkjulegum toga og við syngjum bæði madrigala og mótettur eftir hann. Af öðr- um madrigölum má nefna Music divine eftir Thomas Tomkins, Now is the month of maying eftir Thomas Morley og Adieu, Sweet Amarillis eftir Johns Wil- bey. Þessi tvö tónlistarform eru ólík en eiga þó margt sameiginlegt, t.d. sér maður skemmtileg veraldleg áhrif í móttetunum. Á milli verk- anna lesum við þýðingar á textunum og ræðum um madrigalana. Það er líka önnur leið til að komast nær áheyrendum.“ Næsta tónleikaár hefst heldur ekki á venjulegum nótum því kórinn mun koma fram á Íslandskynningu í Frakklandi í byrjun októ- ber. „Þar verðum við með kirkjulega tónlist án undir- leiks. Einnig flytjum við verk eftir eistneska tón- skáldið Arvo Pärt í bland við íslenska tónlist. Þá eru fyrirhugaðir tónleikar í París þar sem við munum m.a. flytja Óttusöngva Jóns Nordal. Ég hef flutt þá nokkrum sinnum í gegnum tíðina og þeir hafa alltaf slegið í gegn.“ Schola cantorum skipa 17 söngvarar og Hörður hefur stjórnað kórnum þau fimm ár sem hann hefur starfað. „Í kórnum er ákveðinn kjarni fólks sem hefur verið með frá upphafi, en það er þó alltaf þannig að fólk kemur og fer. Ég hef líka misst fólk til útlanda sem m.a. hefur forframast þar í söngnum,“ segir Hörður. Tónleikarnir á morgun verða léttir og skemmtilegir í bland við sorgarsöngva. „Mér sýnist veðurspáin lofa því að við syngjum inn hlý- indi og vætu,“ segir Hörður. Schola cantor- um syngur inn hlýindi og vætu STIKLA Kórtónleikar í Hallgríms- kirkju helgag@mbl.is Myndlist Gallerí Fold, Rauðar- árstíg: Tryggvi Ólafsson. Friðrik Tryggvason í Ljósa- fold. Til 16. maí. Gallerí Kambur: Margrete Sörensen og Torben Ebbesen frá Danmörku. Til 31. maí. Gallerí Skuggi: Kristján Guðmundsson. Til 23. maí. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti: Harpa Björnsdóttir. Til 19. maí. Gerðarsafn: Rebekka Rán Samper í austursal og Ragna Fróðadóttir í vestursal, Bjarni Sigurbjörnsson á neðri hæð. Til 16. maí. Klink og Bank, Brautar- holti 1: Samsýning 14 lista- manna, Vanefni. Aaron Mitchell. Til 23. maí. Hafnarborg: Rafn Hafn- fjörð sýnir ljósmyndir og Björk Atla akrýlmálverk. Til 10. maí. Hallgrímskirkja: Hörður Ágústsson. Til 26. maí. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Kristín Ísleifs- dóttir. Til 30. júní. Íslensk Grafík, Hafnar- húsinu: Hjördís Brynja. Til 9. maí. Listasafn Akureyri: „Allar heimsins konur“. Innsetning Önnu Líndal. Til 9. maí. Listasafn ASÍ: Finna B. Steinsson. Björk Guðnadóttir. Til 10. maí. Listasafn Árnesinga: Handverk og hönnun. Cat- egory X. Hönnunarsýningar. Til 30. maí. Listasafn Reykjanes- bæjar: Margrét Jónsdóttir. Til 20. júní. Listasafn Ísafjarðar: Guð- björg Lind Jónsdóttir. Til 1. júní. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Nútíma- maðurinn. Til 20. maí. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Vestursalur: List frá Barcelona. Miðrými: Erla Þórarinsdóttir. Til 9. maí. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sigurjón Ólafsson í alfaraleið. Til 30. maí. Ljósmyndasafn Reykja- víkur, Grófarhúsi: Leifur Þorsteinsson – Fólk og borg. Til 9. maí. Norræna húsið: Sigrún Eldjárn. Til 9. maí. Mokka: Gunnar Scheving Thorsteinsson. Til 6. júní. Safn – Laugavegi 37: Op- ið mið.–sun. kl. 14–18. Sum- arsýning úr safnaeign. Mar- grét H. Blöndal. Til 20. júní. Finnur Arnar. Til 9. maí. Leið- sögn allan laugardaga. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Skáld mánaðar- ins: Sjón. Heimastjórn 1904. Þjóðminjasafnið – svona var það. Þjóðarbókhlaða: Heima- stjórn 100 ára. Leiklist Þjóðleikhúsið: Edith Piaf, sun. Þetta er allt að koma, lau., sun. Græna landið, sun., fös. Sorgin klæðir Elektru, lau., sun. Borgarleikhúsið: Belgíska Kongó, fim. Lína Langsokkur, sun. Chicago, lau., sun., fös. Iðnó: The Secret Face, fös. Austurbær: 5stelpur.com, lau., fös. Tjarnarbíó: Hugleikur. Kleinur, lau., sun. Leikfélag Akureyrar: Bú- kolla, lau. Á HLIÐARSVÖLUM Íslensku óperunnar verður óperan Rusalka eftir Antonin Dvorák sýnd af mynddiski kl. 14 á morgun. Þetta er þriðja og síðasta sýningin í röð myndsýninga Vinafélags Ís- lensku óperunnar á vormisseri. James Conlon stjórnar hljómsveit og kór Bastilluóperunnar og leikstjóri er Robert Carsen. Með titilhlutverkið, Rusölku, fer Renée Fleming. Upptakan var gerð í Bastilluóperunni í París í júní 2002. Rusalka er ópera í þremur þáttum (frumflutt 1901) eftir Ant- onin Dvorák (1841-1904). Texti eftir Jaroslav Kvapil, byggður á Undine eftir Friedrich de la Motte Fouqué, Litlu hafmeyjunni eftir H.C. Andersen og Die Versunkene Glocke eftir Gerhard Hauptmann. Notaður verður myndvarpi og sýnt á breiðtjaldi með enskum skjátexta. Áður en sýning hefst verður stutt kynning á óperunni og flytjendum. Aðgangur er ókeypis Rusalka sýnd á mynddiski á hliðarsvölum Óperunnar Úr óperunni Rusalka. Jon Gunnar Jørgensen

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.