Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. MAÍ 2004 5 af því hversu hratt landið hækkar eða lækkar í þá áttina sem valin er sem stefna fyrir stuðla- bergspörin. Hæðarmetrinn sem myndar bilið er því mislangur í landinu og engin tvö hlið með sama millibili. Tengsl milli hliðanna eru þannig að það sést alltaf á milli tveggja hliða í það minnsta. Þessi regla gerir það að verkum að við lesum landið með ákveðnum upplýsingum sem felast í verkinu og stuðlarnir virka eins og fastir mælipunktar í hæðarlegu umhverfisins.7 Verkið á sér ekkert upphaf og engan endi, þótt ákveðin hefð hafi skapast fyrir því að ganga sólarsinnis um eyjuna. Það er ekkert sérstakt inngangshlið og enginn útgangur. Verkið er op- ið á margræðan hátt í tengslum við umhverfið, sýnina frá því og að því og auðvitað í tengslum við nafn þess. Stuðlabergið sjálft, efnið sem verkið er úr, er að líkindum valið með tilliti til staðsetningarinnar, en eins og getið var er Vest- urey að mestum hluta úr stuðlabergi. Af því leiðir að verkið er ekki aðeins órjúfanlegur hluti af eyjunni, heldur má segja að með þessu móti undirstriki Serra skúlptúrgildi eyjunnar sjálfr- ar sem hluta af listaverki sínu, sem er auðvitað djarflega framsett, en verður að skoðast í ljósi yfirlýsinga listamannsins um gildi listaverka og áhrifamátt þeirra. Ef lengra væri haldið með þá pælingu mætti segja að Vesturey hefði ekki það gildi sem hún hefur í dag, ef ekki væri fyrir til- stilli Áfanga. Það er skemmtileg tilhugsun og áhugaverð á margan hátt. Þegar verksins er notið er vel þess virði að skoða virkni þess á umhverfið, hvernig hliðin af- marka sitt eigið svæði og móta sýn okkar á landslagið. Þessi ólíku hlið, eða verkið allt, vekja eflaust með mönnum ólíkar tilfinningar. Þröng hlið annars vegar og opin hins vegar vekja ekki sömu tilfinningu og sýn hjá göngumanni: ann- ars vegar göngum við um þröng hlið milli tveggja afmarkaðra rýma sem kalla má sund eða gang og hins vegar eru súlurnar eins og markalína í opnu rými. Regluverkið og upp- bygging verksins gerir það að verkum að Áfangar eru farnir að skipta meira máli en allt annað í umhverfinu, verkið segir okkur meira um ákveðna þætti landslagsins en það sem aug- un annars sjá við fyrstu sýn. En auðvitað er líka hægt að njóta verksins án þessara upplýsinga frá listamanninum. Hvort heldur sem er, þá væri eyjan án Áfanga ekki það sem hún er orðin – hún væri áfangalaust eyðiland eins og ætíð áð- ur. List og landslag Ég tel Áfanga mjög sérstakt verk á ferli Serra og fyrir því eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi er verkið landslagstengt verk, en slík eru ekki mörg á hans ferli. Mörgum eru kunn verk Serra í borgarlandslagi þar sem þau tróna og ræna allri athygli frá öðru í umhverfinu, verða að eins konar brennipunkti sem allt snýst um. Áfangar hins vegar hafa ekki þessi einkenni í sama mæli, enda er verkið hæglátt og ljóðrænt og stærð þess verður aðeins mæld í samhengi við landslagið umhverfis það. Slíkan samjöfnuð standast fá verk, en það er kunnara en frá þurfi að segja að þau verk sem lenda úti í náttúrunni og eiga að vera stórkostleg í stærð og öðrum mælikvörðum eiga það til að hverfa líkt og krækiber í helvíti þegar þangað er komið. Það gerist ekki í þessu tilfelli, þrátt fyrir að um- gjörðin sé óvenju stór. Annað atriði sem verður að telja mjög mikilvægt er efnisnotkunin, en stuðlabergið, þessi klisja okkar Íslendinga, er hér notuð á svo látlausan hátt að telja verður óvenjulegt, enda vísar það ekki til annars en eyjunnar sem það rís upp úr. Að þessu sam- anlögðu má segja að verkið sé sérlega næmlega unnið og ótrúlega fágað í samhengi við margt sem frá Serra hefur komið. Af þessu vil ég draga þá ályktun, að Serra hafi valið að gera verkið úr eins hlutlausu efni og hægt er og með eins einfaldri skipan og hægt er, því að öllu sam- anlögðu hafi hann náð því fram sem hann vildi; að verk hans sæti í fyrirrúmi, væri aðalatriði, en nú með nákvæmara inngripi í umhverfið en áð- ur, og gera eyjuna sjálfa þannig að sínu verki. Í þessu samhengi vil ég vitna í Serra, en hann segir m.a. þetta um landslag: „Stóra vandamálið varðandi landslag er að átta sig á því hvort það sé óumbreytanlegt, reyna að finna leið til að fá umfang þess eða ásýnd til að taka þátt í því sem maður ætlar sér.“8 Landslagið er semsagt þátt- takandi í verkinu, en ekki kveikja þess eða kjarni. Þetta er áberandi í Viðey, enda augljóst að verkið er ekki náttúran, en náttúran hefur verið numin og Serra hefur þannig á ákveðinn hátt rutt eyjuna og brotið sér land með verkinu. Þannig verða til staðir sem ekki voru þar áður og það er skipan staðanna sem ákvarðar verk- inu eigið rými. Í þessu tilfelli er það eyjan öll og rúmlega það. Annar afrakstur Áfangaverksins hjá Serra er umfangsmiklar grafíkseríur og teikningar sem hann vann í tengslum við Íslandsheimsóknina. Á meðal verkanna er sería sem kallast Hrepp- hólar, önnur nefnist Reykjavik, sú þriðja Áfang- ar Viðey og Vesturey heitir ein og Eiðið önnur og veit ég þá ekki hvort upp er talið. Vert er að nefna að Serra er með áhugaverðari grafíklista- mönnum samtímans, þó að þeim verkum sé ekki nærri eins mikið hampað og öðru sem hann ger- ir. Ef ég á að draga saman stutta lýsingu á Áföngum, þá má segja að listaverkið sé á marg- an hátt dæmigert mínimalískt verk; það ber í sér endurtekninguna, öxullausu symmetríuna, það stendur fyrir sjálft sig, hefur engar frekari skírskotanir út yfir stað og stund – það er fyrst og fremst verk um merkingu listaverks og áhrifavald þess á umhverfið. Það er hins vegar sérkennilegt vegna þess að í því er einhver ljóð- rænn strengur, það er nærfærið í efninu og semur sig að landinu sem um leið verður hluti þess. Það hefur enga aðra skírskotun að mínu viti og það var það sem listamaðurinn ætlaði sér. Gagnrýni Þeir sem harðast hafa gagnrýnt Áfanga í mín eyru gera það af tvennum ástæðum; í fyrsta lagi vegna þess að það megi flokka undir náttúru- spjöll eða mengun og í öðru lagi vegna þess að það sé gamaldags eða hefðbundinn skúlptúr og sé í raun ekki merkilegt verk í samtímalistinni. Um fyrra atriðið er í raun fátt að segja, enda sýnist mér það ekki hafa mikið vægi þegar litið er til þess hvaða gildi þetta svæði hafði áður en verkið var sett þar niður. Ég hef stundum reynt að sjá fyrir mér umhverfið án verksins og sé þá bara fyrir mér Áfangalaust eyðiland sem ekki hefur neina sérstaka merkingu og var eflaust ekki til í huga margra þeirra sem þó höfðu það fyrir augunum á degi hverjum. Útivistargildi eyjunnar hefur hins vegar vaxið að mínu mati. Hvað nýjabrumið varðar er því til að svara að auðvitað er Richard Serra enginn unglingur og verk hans hafa alltaf listsögulega skírskotun til hans sjálfs og þess tíma er hann og aðrir míni- malistar brutu upp skúlptúrsöguna. Verkið hef- ur tvímælalaust gildi sem tilvísun í þá sögu, en um leið er það vitnisburður um þróun sem enn sér ekki fyrir endann á. Á hitt ber einnig að líta að þetta verk er með þeim sérkennilegri sem Serra hefur gert. Það er einnig nær því einstakt að listamenn fái að leggja undir sig landfræði- lega afmarkað svæði og gefa því nýja ásýnd og merkingu. Í því samhengi er auðvitað hægt að slá því fram að verkið sé runnið af rótum hefð- bundins mónumentalisma, en þannig verk er þetta ekki að mínu mati. Til þess er það einfald- lega of stórt, of víðfeðmt, of dreift og of mikill hluti náttúrunnar. Af þessum sökum sýnist mér augljóst að Áfangar séu verk sem kalla má góðan fulltrúa framsækinnar höggmyndalistar. Sérstaklega má nefna að þetta verk hefur meiri félagslega virkni en mörg önnur, það er inngrip í nánasta umhverfi okkar og það mótar sýn okkar á um- hverfið og er órjúfanlegur hluti þess. Það hefur lagt undir sig landið, ef svo má segja. Mörgum reynist erfitt að sætta sig við þá af- stöðu Serra að listin eigi að vera í forgrunni þar sem hún á annað borð birtist okkur; hann hafni öllu öðru en árás og sigri yfir umhverfinu, gangi í skrokk á því með yfirþyrmandi þyngd, stærð og frekju og sogi allt að sér og gleypi eins og eitthvert svarthol. Þessi afstaða er skiljanleg á margan hátt, en í Viðey er þessi kraftur hins vegar ekki eins augljós og annars staðar, ekki eins áþreifanlegur og því auðveldara að sam- þykkja hann. Krafturinn er frekar í landslaginu en verkinu og þó rennur það allt saman í eina heild. Þetta er duldara og látlausara. Það sem hins vegar er áhugavert við þessa heild er að hún er sköpuð af Richard Serra, en ekki nátt- úrunni og þar liggur hundurinn grafinn. Í þessari gagnrýni á Serra kristallast að mínu mati nokkrir þættir sem einkennt hafa umræðu um nútímalistir á undanförnum árum. Annars vegar má nefna þá sem halda á lofti hugmynd- inni um framþróun listarinnar, að í henni felist leyfi til að kalla allt og alla listamenn, og hins vegar þá sem aðhyllast hugmyndina um að list sé list og allt annað sé einfaldlega allt annað. Tekist er á um þetta nú um stundir og vel má vera að listasagan sé ekki annað en endurómur slíkrar þrætu. Það sem hins vegar stendur upp úr umræðunni um verk Serra virðist vera þrætueplið um list í opinberu rými eða list- skreytingar eins og það er stundum kallað. Um það segir Serra: „Vissulega er sagan um list á almannafæri hörmungarsaga, en það þýðir samt sem áður ekki að hér skuli staðar numið. Eina leiðin er að halda áfram að skapa verk fyr- ir almannarými. Ef það er ekki gert er þetta vonlaust strögl. Ég kýs fremur að heyra rödd misskilnings og afskiptasemi en að heyra ekki bofs í nokkrum manni.“ 9 Tómlæti Hvert gæti gildi Áfanga verið fyrir íslenska myndlist? Geta þeir flokkast sem íslenskt myndlistarverk eða er það fyrsta markverða al- þjóðlega listarverkið sem Íslendingar eignast? Þessum spurningum verður ekki svarað nema með því að velta fyrir sér hvernig við lítum á svokallaða íslenska myndlist; er það eingöngu myndlist sem gerð er af Íslendingum, jafnt heima sem erlendis, eða er það myndlist sem gerð er á Íslandi? Þessu er erfitt að svara, en að mínu mati skipta Áfangar okkur jafn miklu máli og það besta sem við tínum til úr íslenskri lista- sögu. Og líklegt má telja að vægi þessa verks eigi frekar eftir að aukast er fram líða tímar. Af þeim sökum ber okkur að umgangast það með sama hætti og önnur menningarverðmæti, nema okkur sé fyrirmunað að gera það, eins og stundum læðist að manni. Þetta verk hefur orð- ið sinnuleysinu og tómlætinu að bráð og ég veit ekki hvort nokkru sinni hefur verið þakkað fyrir það með sómasamlegum hætti. Verkið er hvergi kynnt hér á landi, hvorki fyrir Íslendingum né útlendingum, ekkert fræðsluefni er hægt að fá um það og þau gögn og teikningar sem Serra skildi eftir sig hafa aldrei verið sýnd í heild. Bók sem gefin var út um verkið af Steidl- og Park- ett-forlögunum, prýdd frábærum ljósmyndum Dirks Reinartz og teikningum eftir Serra, hefur ekki verið seld hér á landi. Ábyrgð Listasafns Reykjavíkur er mikil og það má furðulegt heita að safnið skuli ekki sinna verkinu sem skyldi. Til að mynda má geta þess að gefinn hefur verið út bæklingur á vegum borgarinnar undir heitinu Styttur bæjarins (The City Statues) og fjallar almennt um höggmyndirnar í borginni. Þar er ekki minnst einu orði á þetta verk. Póstkort hef- ur safnið gefið út með mynd af einu stuðlap- arinu, en þess er ekki getið að verkið sé í Viðey, hvað þá á Íslandi. Og í bæklingi sem til er um Viðey á ýmsum málum er hálf setning um verk- ið.10 Hver getur varið svona framkomu við lista- manninn og þá sem vilja njóta þessa verks hans? Þrátt fyrir þetta má minna á að hingað kemur fjöldi ferðamanna til þess eins að berja Áfanga augum og vonandi um leið eitthvað af þeirri ágætu myndlist sem við höfum fram að færa. Nú þegar Listahátíð er að ganga í garð er okkur hollt að líta til þeirra góðu verka sem við höfum eignast með litlum tilkostnaði og um leið minn- ast ábyrgðar okkar gagnvart heimslistinni þeg- ar við loksins höfum eignast varanlega hlutdeild í henni. Það er full ástæða til að þakka fyrir sig. Neðanmálsgreinar: 1 Ýmsar upplýsingar um tilurð verksins eru fengnar hjá Magnúsi Sædal og Valgarði Egilssyni. 2 Olaf Pascheit, Hamburger Kunsthalle, hamburger-kunst- halle.de. 3 Til er gífurlegur fjöldi bóka um Serra og list hans, en hér er aðallega stuðst við tvær þeirra; Richard Serra, Sculpt- ure. The Museum of Modern Art, New York, 1986, og SERRA. Verlag Gerd Hatje, Stuttgart, Þýskaland, 1987. 4 Birtist fyrst í Art International, Art as Art, 1962. Sjá; Ólafur Gíslason, Apollon og Díonýsos í Hveragerði, Lista- safn Árnesinga, sýningarskrá. 2003. 5 Carl Andre, Sculptor. Octagon Verlag, Stuttgart, Þýska- land, 1996. (Viðtal.) 6 Úr óbirtu viðtali við Kristján Guðmundsson, Listasafn Ís- lands, 2001. 7 Áfangar. Richard Serra, Dirk Reinartz. Steidl/Parkett, 1991. 8 Mark Simmons. Richard Serra: The Coagula Interview, coagula.com. 9 Sama. 10 Skv. lauslegri athugun höfundar er þetta eini staðurinn þar sem minnst er á verkið í öllum þeim upplýsingabækl- ingum fyrir ferðamenn sem gefnir eru út um land, þjóð og menningu. Morgunblaðið/Þorkell Vesturey Viðeyjar án Áfanga væri ekki það sem hún er orðin, segir greinarhöfundur, „hún væri áfangalaust eyðiland eins og ætíð áður.“ H ö f u n d u r e r m y n d l i s t a m a ð u r.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.