Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Blaðsíða 15
Morgunblaðið/Jim Smart Pavel Manasek ásamt kór, hljómsveit og einsöngvurum. Sinfóníuhljómsveitáhugamanna ogKammerkór Sel-tjarnarneskirkju halda tónleika í Seltjarnar- neskirkju kl. 17 á morgun. Þar með lýkur Kirkju- listahátíð Seltjarnar- neskirkju að þessu sinni. Umsjón með tónlistar- dagskránni er í höndum Pavels Manasek og konu hans Vieru Manasek, sem jafnframt er organisti kirkjunnar. Flutt verða tvö verk eftir Antonin Dvorák, Te Deum op. 103 fyrir kór og hljómsveit og Sinfónía nr. 9, „Úr nýja heiminum“. Einsöngvarar í Te Deum eru þau Anna Jónsdóttir sópran og Hugi Jónsson bassi. Þau eru að ljúka námi í Nýja tónlistarskól- anum. Pavel er stjórnandi tón- leikanna og er það í annað sinn sem hann stjórnar SÁ. Pavel er fæddur í Tékk- landi en hefur starfað hér á landi í þrettán ár. „Ég starfaði sem undirleikari og kórstjóri við Leiklist- arháskóla Íslands í samtals sex ár og kom fram á þess- um árum með mörgum ís- lenskum og erlendum ein- söngvurum. Einnig hef ég starfað með öðrum einleik- urum á öllum hugsanlegum stöðum, en hljómsveit- arstjórnun er stóri draum- urinn,“ segir Pavel. Tilefni þessara tónleika er öðrum þræði að nú er ár tékkneskrar tónlistar í heiminum. Þar ber hæst 100 ára ártíð landa hans Tékkans Antonins Dvoráks og 150 ár eru frá fæðingu Leos Janaceks. „Það lá vel við að halda tónleika með Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna, sem æfir sig reglu- lega í kirkjunni, og flytja eitt kórverk eftir Dvorák og eina af hans kunnustu sinfóníum.“ Te Deum samdi Dvorák í Tékklandi árið 1892. Hann var beðinn að semja verk til að flytja á hátíðahöldum í New York sem haldin voru til að minnast þess að öld var liðin frá Ameríku- fundi Kristófers Kólumb- usar. Verkið var frumflutt á Íslandi fyrir rúmum 30 árum. Það var Söngsveitin Fílharmónía, ásamt Sinfón- íuhljómsveit Íslands, sem flutti verkið. „Flutning- urinn er ekki eins stór í sniðum nú, en Kammerkór Seltjarnarneskirkju hefur á að skipa góðum röddum og það er skemmtilega krefjandi að takast á við þennan lofsöng.“ Dvorák skrifaði 9. sin- fóníuna á Ameríkuárum sínum, en hann dvaldist þar í tvö ár og gegndi stöðu stjórnanda tónlist- arháskólans í New York. „Sum af vinsælustu verk- um hans eru frá þessu tímabili. Sinfónían byggist á þema undir áhrifum frá þjóðlagamelódíum amer- ískra indíána og negra- sálmum. Dvorák við- urkenndi síðar að rekja mætti sumt af dapurlegum einkennum þeirra til heim- þrár sem hann þjáðist af meðan á dvöl hans í Banda- ríkjunum stóð. Hann sagð- ist aldrei myndu hafa skrif- að slíkt verk ef hann hefði ekki séð Ameríku.“ Hvað er það í tónlist Dvoráks sem höfðar til þín? „Tónlist Dvoráks er af- skaplega innileg, hjartnæm og heit. Fyrst og fremst er hann ofsalega eðlilegur og laus við alla yfirborðs- mennsku. Tilfinningarnar eru á réttum stað og það finnst mér mest heillandi.“ Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis. Til heiðurs Dvorák í Seltjarnarneskirkju STIKLA Listahátíð Seltjarnar- neskirkju Laugardagur Langholtskirkja kl. 15 Ár- nesingakórinn í Reykjavík heldur vortónleika og eru þeir að þessu sinni liður í undirbún- ingi að ólympíukeppni í kór- söng, Choir Olympics 2004, sem fram fer í Þýskalandi í júlí. Kórinn flytur keppnislögin, inn- lend og erlend sönglög. Jón Hjartarson leikari les upp í anda skáldsins. Meginþema að þessu sinni er úrval verka eftir höfunda úr Árnessýslu. Einnig verður frumflutt nýtt ís- lenskt kórverk. Kórstjóri er Gunnar Ben og píanóleikari Árni Heiðar Karlsson. Salurinn kl. 16 Söng- tónleikar með þeim Jónu Fann- eyju Svav- arsdóttur sópran og Erlendi Elv- arssyni tenór. Pí- anóleikari er Richard Simm. Efnisskráin er í bland íslensk og erlend tónlist frá ýmsum tím- um, antikaríur, íslensk sönglög, söngleikjatónlist, ítölsk bel canto-sönglög ásamt söng- lögum úr gömlum ítölskum kvikmyndum. Kópavogskirkja kl. 15 Karlakór Kópavogs heldur sína fyrstu sjálfstæðu tónleika. M.a. verður frumflutt lag Gunnsteins Ólafssonar við texta Magnúsar Steinarssonar, formanns kórsins. Stjórnand- inn, Natalía Chow, syngur, bæði ein og með kórnum. Undirleikari er Julian Hewlett. Hann mun frumflytja eitt verk eftir sig á tónleikunum. Hátíðasalur Varmárskóla kl. 15 Álafosskórinn heldur vortónleika ásamt gestum sín- um, Söngfélaginu Sunnan heiða. Álafosskórnum hefur verið boðið að taka þátt í kó- rahátíð Eystrasaltslandanna, sem fram fer í Tallinn í Eistlandi 2.–4. júlí. Efnisskrá tekur mið af því og flytur kórinn m.a. eistnesk lög með eistneskum textum. Undirleikari er Arn- hildur Valgarðsdóttir. Ein- söngvarar eru Ásthildur Jóns- dóttir, Viktor A. Guðlaugsson og Guðrún Lóa Jónsdóttir. Fella- og Hólakirkja kl. 16 Kór Orkuveitu Reykjavíkur og Sönghópurinn Veirurnar ásamt Signýju Sæ- mundsdóttur, sópransöng- konu, halda söngskemmtun og er efnisskráin á rómantískum nótum. Stjórn- andi sönghópanna er Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanó- leikari Guðríður St. Sigurð- ardóttir. Tónlistarhúsið Ýmir kl. 17 Lögreglukórar Norðurlanda ásamt einsöngvurum syngja fjölbreytta efnisskrá. Vinaminni, Akranesi kl. 17 Kvennakórinn Seljurnra, undir stjórn Vilberg Viggós- sonar, ásamt Kvennakór Siglu- fjarðar, undir stjórn Renötu Iv- án, flytja innlend og erlend lög. Undirleikari á píanó er Júlíana Rún Indriðadóttir. Víðistaðakirkja, Hafn- arfirði kl. 17 Kóramót fimm kóra eldri borgara: Vorboðar, Mosfellsbæ, Eldey, Suð- urnesjum, Samkórinn Hljómur, Akranesi, Hörðukórinn, Sel- fossi og Gaflarakórinn, Hafn- arfirði. Hver kór syngur fimm lög og að lokum syngja kór- arnir saman og skipa þá 210 manna blandaðan kór. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús kl. 14 Útskrift- arárgangur LHÍ á sviði mynd- listar og hönnunar mun setja upp lokasýningu á verkum sín- um. Kl. 13.30 verður tískusýn- ing. Gallerí Tukt, Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5 kl. 15 Helga Björg sýnir vídeóverk ásamt innsetningu þar sem særð hús ráfa um á milli draums og veruleika. Geðhjálp, Túngötu 7 kl. 16 Myndlistarkonan Gígja (Gía) Thoroddsen heldur sýningu á verkum sínum undir merkjum Geðveikrar – listar. Gígja stundaði nám hjá Hring Jó- hannessyni, listmálara í Mynd- listaskóla Reykjavíkur og í Vallekille-lýðháskólanum í Danmörku. Listakjallari Galíleó, Hafn- arstræti kl. 17 Fyrsti lista- maðurinn til að sýna í Lista- kjallaranum er Heiða Rún Steinsdóttir. Heiða Rún notast við blandaða tækni í verkum sínum. Hún lauk námi frá lista- menntaskólanum Paolo „Toschi“ árið 2001. Sýningin stendur til 24 júní. Sunnudagur Veitingahúsið Café Aroma, Hafnarfirði kl. 16 Lokatónleikar tónleikarað- arinnar „Kvöldin í Firðinum“. Gestir maímánaðar eru söng- hópurinn Reykjavík 5 ásamt hljómsveit. Sönghópinn skipa Hera Björk Þórhallsdóttir, Krist- jana Stefánsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Gísli Magna- son og Þorvaldur Þorvaldsson. Hljómsveitina skipa Agnar Már Magnússon á píanó, Ás- geir Ásgeirsson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Grensáskirkja kl. 16 Landsvirkjunarkórinn ásamt gestakórnum Sönghópnum Fetimu. Einsöngvarar eru Þor- geir J. Andrésson og Þuríður G. Sigurðardóttir. Páll Helga- son og Sigrún Grendal stjórna kórunum. Undirleikari á píanó er Kolbrún Sæmundsdóttir. Langholtskirkja kl. 17 Kammerkór Langholtskirkju flytur sálma í ferskum útsetn- ingum af nýútkomnum geisla- diski sem nefnist Sálmar í sorg og von. Auk kórsins koma fram Sigurður Flosason á saxófón, Gunnar Gunnarsson á orgel, Guðmundur Sigurðs- son á orgel, Hallfríður Ólafs- dóttir á flautu og Daði Kol- beinsson á óbó. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Hjallakirkja kl. 17 Kór Lindakirkju syngur úrval ís- lenskra og erlendra laga, einn- ig verður flutt Messe breve nr. 7 í C dúr eftir Charles Gounod. Einsöngvari er Heiða Margrét Guðmundsdóttir, sópran. Und- irleikari er Sigrún Þórsteins- dóttir en stjórnandi Hannes Baldursson. Langholtskirkja kl. 20 Gospelsystur Reykjavíkur flytja m.a. lög úr þekktum söng- leikjum og bíómyndum. Tón- leikarnir hafa yfirskriftina Sól rís. Einsöngvarar eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Sig- urðarson. Sérstakir gestir eru Stúlknakór Reykjavíkur. Stjórn- andi Margrét J. Pálmadóttir. Hásalir, Hafnarfirði kl. 20 Kammerkór Hafnarfjarðar flyt- ur enska og írska madrigala og þjóðlög. Stjórnandi er Helgi Bragason. Hótel Borg kl. 21 Á Múl- anum leikur Hljómsveitin „Hljóð í skrokkinn“ swing- músik í anda gömlu meist- aranna. Leitað verður í smiðju Lester Young, Ben Wepster og Coleman Hawkins. Hljómsveit- ina skipa Óskar Guðjónsson, sax, Ólafur Stolzenwald, kontrabassa, Ómar Guð- jónsson, gítar og Erik Qvick, trommur. Þjóðmenningarhús kl. 14 Gestum gefst kostur á orðræðu við skáld mánaðarins, Sjón, og bókmenntafræðinginn Úlf- hildi Dagsdóttur, um þátt draumsins í skrifum Sjóns. Mánudagur Hafnarborg kl. 20 Óp- erukór Hafnarfjarðar undir stjórn Elínar Óskar Ósk- arsdóttur flytur innlend og er- lend lög. Einsöngvarar eru Elín Ósk og söngvarar úr röðum kórfélaga. Píanóleikari er Pet- er Máté. Þriðjudagur Hjallakirkja í Kópavogi kl. 20.30 Vortónleikar Kórs Hjallakirkju með einsöngv- arana Erlu Björgu Káradóttur, sópran, Kristínu R. Sigurð- ardóttur, sópran og Gunnar Jónsson, bassa. Auk kirkju- legra verka eru einnig ver- aldleg verk m.a. þættir úr óp- erum og söngleikjum. Undirleikari er Katalin Lörincz. Söngstjóri er Jón Ólafur Sig- urðsson. Tónlistarhúsið Ýmir kl. 20 Óperukór Hafnarfjarðar. Borgarleikhúsið, Stóra svið, kl. 20 Dansleikhúsið frumflytur fjögur ný dansverk: Fjötra eftir Irmu Gunnarsdóttur, Break a leg eftir Peter Anderson, Hughrif eftir Maríu Gísladótt- ur og Restored restoration eftir Jóhann Björg- vinsson. Einnig verða frumflutt tvö íslensk tónverk sem sér- staklega eru samin fyrir tvö af dansverkum sýningarinnar. Gerðarsafn kl. 20 Sýning á íslenskum málverkum í einka- eigu í Danmörku. Hún var fyrst sett upp á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn dagana 13. mars–18. apríl. Fimmtudagur Hjallakirkja kl. 20 Norski kirkjukórinn Sofiemyr kirkekor flytur norska þjóðlagatónlist ásamt eldri og nýrri norskri, sænskri og enskri krikjutónlist. Með í för kórsins koma org- anistarnir Trond Gilberg og Thor Henning Isachsen. Þeir leika undir söng kórsins og spila fjórhent orgeltónlist eftir Edvard Grieg. Irma Gunnarsdóttir Signý Sæ- mundsdóttir Jóna Fanney Svavarsdóttir LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. MAÍ 2004 15 Næsta v ika menning@mbl.is Myndlist Gallerí Fold, Rauðar- árstíg: Tryggvi Ólafsson. Friðrik Tryggvason í Ljósa- fold. Til 16. maí. Gallerí Kambur: Margrete Sörensen og Torben Ebbesen frá Danmörku. Til 31. maí. Gallerí Skuggi: Kristján Guðmundsson. Til 23. maí. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti: Harpa Björnsdóttir. Til 19. maí. Gerðarsafn: Rebekka Rán Samper í austursal og Ragna Fróðadóttir í vestursal, Bjarni Sigurbjörnsson á neðri hæð. Til 16. maí. Gerðuberg: „Allar heims- ins konur“. Til 24. júní. Hafnarborg: Arngunnur Ýr. Ólöf Erla Bjarnadóttir. Halldóra Emilsdóttir. Til 7. júní. Hallgrímskirkja: Hörður Ágústsson. Til 26. maí. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Kristín Ísleifs- dóttir. Til 30. júní. Hagvirkni, húsbúnaður eftir íslenska myndlistarmenn, 1904– 2004. Til 20. júní. i8, Klapparstíg 33: Gabrí- ela Friðriksdóttir. Til 26. júní. Íslensk grafík, Hafn- arhúsinu: Björg Þorsteins- dóttir. Til 30. maí. Kling og Bang, Lauga- vegi 23: David Askevold. Til 6. júní. Klink og Bank, Braut- arholti 1: Samsýning 14 listamanna, Vanefni. Aaron Mitchell. Til 23. maí. Listasafn Akureyri: Kenj- arnar eftir Goya. Til 14. júlí. Listasafn ASÍ: Magnús Sig- urðarson og Ragnar Kjart- ansson. Til 6. júní. Listasafn Árnesinga: Handverk og hönnun. Cat- egory X. Hönnunarsýningar. Til 30. maí. Listasafn Íslands: Í nær- mynd Close-up, bandarísk samtímalist. Til 27. júní. Listasafn Reykjanes- bæjar: Margrét Jónsdóttir. Til 20. júní. Listasafn Ísafjarðar: Guð- björg Lind Jónsdóttir. Til 1. júní. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Nútíma- maðurinn. Til 20. maí. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Útskriftarsýn- ing Listaháskóla Íslands 2004. Til 31. maí. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sigurjón Ólafsson í alfaraleið. Til 30. maí. Ljósmyndasafn Reykja- víkur, Grófarhúsi: Finnsk samtímaljósmyndun. Til 29. ágúst. Mokka: Gunnar Scheving Thorsteinsson. Til 6. júní. Safnasafnið, Svalbarðs- strönd: 11 nýjar sýningar. Safn – Laugavegi 37: Op- ið mið.–sun. kl. 14–18. Sum- arsýning úr safnaeign. Mar- grét H. Blöndal. Til 20. júní. Leiðsögn alla laugardaga. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Skáld mánaðar- ins: Sjón. Heimastjórn 1904. Þjóðminjasafnið – svona var það. Þjóðarbókhlaða: Heima- stjórn 100 ára. Leiklist Þjóðleikhúsið: Edith Piaf, sun. Þetta er allt að koma, fös. Græna landið, lau., fim. Borgarleikhúsið: Don Kík- óti, sun. Chicago, lau. Lína Langsokkur, sun. Belgíska Kongó, sun. Rómeó og Júlía, mið., fim., fös. Dansleikhúsið: Fjögur ný verk eftir Irmu Gunn- arsdóttur, Peter Anderson, Maríu Gísladóttur og Jóhann Björnsson, þrið. Iðnó: Secret Face, fös. Sjaldgæfur dagur á lag- ernum hjá Larson, lau., mán. Rauðu skórnir, sun., mið. Möguleikhúsið: Tveir menn og kassi, lau. Mín jörð, þín jörð, sun., mán. Tjarnarbíó: Barnasýningin Í gegnum eldinn frá Íslandi, sun., mið. Norræna húsið: Barnasýn- ingin Metamorphoses, þrið. Leikfélag Akureyrar: Eld- að með Elvis, fös. Búkolla, lau. helgag@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.