Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Page 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. MAÍ 2004 Í Lesbók Morgunblaðsins 8. maí sl. birtist grein eftir Sigurð Gylfa Magn- ússon sagnfræðing, „Ádrepa um al- þýðumenningu“. Tilefnið er útgáfa bókarinnar Alþýðumenning á Íslandi 1830–1930. Ritað mál, menntun og fé- lagshreyfingar sem kom út í rit- röðinni Sagnfræðirannsóknir (351 s.), en við undirritaðir erum ritstjórar bókarinn- ar. Sigurður Gylfi gagnrýnir vinnubrögð okkar harkalega, sakar okkur um að hafa lagst „svo lágt að sniðganga áralangar rann- sóknir fræðimanna á sama fræðasviði“ og telur vinnubrögð okkar vitnisburð um „óvönduð fræði sem nauðsynlegt er að for- dæma“. Hér eru á ferðinni alvarlegar ásakanir sem höggva nærri starfsheiðri okkar og því teljum við óhjákvæmilegt að leiðrétta rang- túlkanir sem liggja þeim að baki. Sjálfhverfur lestur Það sem virðist helst hafa vakið áhuga starfsbróður okkar á útgáfu bókarinnar er hversu oft sé vísað til verka hans sjálfs og nokkurra annarra fræðimanna. Þetta þykir okkur helsti nærsýnn og sjálfhverfur lestur og ekki líklegur til að vekja áhuga manna út fyrir þrengstu raðir „akademíunnar“. Slíkur lestur er einkamál manns svo lengi sem hann heldur honum fyrir sig; en hér hefur hann leitt Sigurð Gylfa út á opinberan ritvöll og þar með orðið honum tilefni til að reyna að koma höggi á okkur. Sannast sagna hefð- um við vænst þess að starfsbróðir okkar hefði sýnt þá fagmennsku að bregðast við verkinu á efnislegum forsendum. Þar sem Sigurður Gylfi gefur mjög vill- andi mynd af eðli verksins, hljótum við að gera nokkra grein fyrir því. Markmið og eðli verksins Til þessa rannsóknarverkefnis var stofnað með umsókn til Vísindasjóðs fyrir árið 1997. Styrkur var veittur aftur fyrir árin 1998 og 1999. Í styrkumsókn var markmiði verkefn- isins lýst sem hér segir: „Markmiðið er að skýra hin djúptæku áhrif sem vaxandi al- þýðumenntun, formleg og óformleg, samfara stóraukinni miðlun í rituðu og prentuðu máli, hafði á hugmyndaheim, félagslega þátttöku og félagslega vitund almennings á Íslandi 1830–1930. Breytingunum sem af þessu hlutust má lýsa sem hvörfum frá hefð- bundinni menningu hins talaða orðs (oral culture) til yfirgnæfandi ritmenningar.“ (Sjá inngang bókarinnar, s. 9). Með hliðsjón af þessu var verkefninu skipt í allmörg afmörk- uð viðfangsefni sem rannsökuð skyldu á grunni frumheimilda. Nokkrum þessara við- fangsefna sinntum við sjálfir, en til þess að fást við önnur fengum við fimm fræðimenn til samstarfs. Viðfangsefni, sem koma fram í heiti ritgerðanna, eru eftirfarandi (nöfn höf- unda innan sviga): „Framleiðsla og dreifing ritaðs máls“ (Loftur Guttormsson); „Hand- skrifuð blöð“ (Eiríkur Þormóðsson); „Lestr- arkennsla og ritþjálfun í barnaskólum og al- þýðlegum framhaldsskólum 1880–1920“ (Ólafur Rastrick); „Útbreiðsla og viðtökur alþýðlegra fræðslurita“ (Ingi Sigurðsson); „Alþýðuskólar og ungmennafélög: leiðir til félagslegrar virkni“ (Hulda S. Sigtryggs- dóttir); „Lestrarfélög fyrir almenning“ (Jón Jónsson); „Lestrarhættir og bókmenning“ (Loftur Guttormsson); „Áhrif fjölþjóðlegra hugmyndastefna á alþýðu“ (Ingi Sigurðs- son); „Af bréfaskriftum kvenna á 19. öld“ (Erla Hulda Halldórsdóttir); „Fræðslu- og menntaviðleitni kvenfélaga 1870–1930“ (Erla Hulda Halldórsdóttir). Bókin geymir niðurstöður frumrannsókna sem beindust einkum að því, eins og að ofan greinir og undirtitill bókarinnar gefur til kynna, að rekja innbyrðis tengsl vaxandi rit- væðingar, efldrar alþýðumenntunar og til- komu félagslegra hreyfinga frá lokum upp- lýsingaraldar til upphafs útvarps á Íslandi. Samstarfsverkefni Ljóst er af framansögðu að hér er ekki á ferðinni yfirlitsrit um íslenska alþýðumenn- ingu á umræddu tímabili, eins og ráða mætti af ádrepu Sigurðar Gylfa, heldur safn rit- gerða um tiltekna þætti alþýðumenningar. Um þetta þarf enginn að velkjast í vafa sem les formála og inngang að bókinni. Það kom í hlut okkar ritstjóranna að skilgreina þessa þætti og leggja á ráðin um efni og aðferðir, en að öðru leyti réðu þeir sem fengnir voru til að sinna hverju viðfangsefni um sig mestu um efnistök, áherslur og túlkun. Okkur þyk- ir miður að samstarfsmenn okkar skuli, sem aðilar að verkinu, hafa orðið fyrir óréttmæt- um ásökunum. Rétt eins og við bera þeir ábyrgð á sínum eigin ritgerðum; við erum aftur einir ábyrgir fyrir inngangsritgerð og niðurstöðukafla. Í inngangsritgerðinni greinum við m.a. sögulegt baksvið og tengj- um einstök viðfangsefni bókarinnar fyrri rannsóknarhefðum og nýlegum rannsóknar- viðhorfum; í þessu sambandi er m.a. vísað til ritverka fræðimanna eins og Carlos Ginzb- urgs og Sigurðar Gylfa Magnússonar sem halda á lofti merki míkrósögu. Frumrannsóknir Það liggur í eðli rannsóknarverkefnis af þessu tagi að frumheimildir sitja í fyrirrúmi. Verk annarra fræðimanna (svokallaðar eft- irheimildir) sem skipta máli fyrir einstök viðfangsefni eru nýtt með ýmsum hætti, t.d. til upplýsingar um ákveðin efnisatriði, til að styrkja röksemdafærslu, vefengja niðurstöð- ur annarra fræðimanna og til almenns fróð- leiks um tiltekið efnissvið. Hver höfundur sem lagði efni til bókarinnar hefur vitaskuld tekið afstöðu upp á eigin spýtur til þess hvaða eftirheimildir skyldu nýttar hverju sinni. Tilvísanir neðanmáls bera vitni heim- ildavali hvers höfundar um sig. Heimilda- skráin í lokin birtir sameiginlega niðurstöðu heimildavalsins, en hún telur tæpar 40 blað- síður. Varla er það vitnisburður um að fræðasamfélagið hafi verið sniðgengið að þessu leyti. Rangtúlkanir Tvennt vekur einkum athygli í rangtúlk- unum Sigurðar Gylfa á eðli bókarinnar. Ann- ars vegar gefur hann í skyn að hún sé höf- undarverk okkar einna í ríkari mæli en raun ber vitni og hins vegar að hún fjalli um ís- lenska alþýðumenningu í heild. Síðari rang- túlkunin verður honum tilefni til að kvarta undan því að „lítið sem ekkert“ sé „minnst á rannsóknir mínar [þ.e. Sigurðar Gylfa] þó að þær séu nákvæmlega á því sviði sem bókin fjallar um“. Hér er tvennt mjög orðum auk- ið. Í fyrsta lagi er á allmörgum stöðum í bók- inni vísað í rannsóknir Sigurðar Gylfa sjálfs sem og í heimildaútgáfur sem hann hefur verið riðinn við. Í öðru lagi fer því fjarri að rannsóknir hans snúist „nákvæmlega“ um þau viðfangsefni sem ritgerðarhöfundarnir sjö fjalla um. Enginn frýr starfsbróður okk- ar dugnaðar, en þess er vart að vænta að hann hafi gerst sérfróður um öll hin marg- víslegu viðfangsefni sem tekin eru til með- ferðar í bókinni. Við samningu ritgerðanna hlaut hver höfundur um sig að meta hvaða tilefni væri til að vísa til verka hans eða ann- arra. Þannig er auðskilið að enginn hefur séð ástæðu til að vísa til einnar ritsmíðar sem Sigurður Gylfi nefnir sérstaklega í grein sinni, þ. e. kafla hans um alþýðumenningu á Íslandi í Íslenskri þjóðfélagsþróun 1880– 1990 (Rv. 1993). Þessi ritsmíð hans fjallar um aðra þætti alþýðumenningar en áhersla er lögð á í bókinni sem við ritstýrðum. * Það sæmir illa fræðimanni að hafa stór orð um ritverk annarra án þess að taka mið af því hvaða markmið því eru sett og hvers eðl- is það er. Hefði Sigurður Gylfi nálgast þetta ritgerðasafn með ögn opnari huga, hver veit nema þá hefði lokist upp fyrir honum annað sjónarhorn en það sem hefur nú orðið honum efni til eins konar þöggunarkenningar, auk sérstaks áfellisdóms yfir okkur sem þágum „styrk úr þremur virðulegum vísindasjóð- um“ og kostuðum þar með vinnu samstarfs- manna að þeim rannsóknum sem margum- rædd bók er ávöxtur af. ANDSVAR VIÐ ÁDREPU SIGURÐ- AR GYLFA MAGNÚSSONAR E F T I R I N G A S I G U R Ð S S O N O G L O F T G U T T O R M S S O N „Það sæmir illa fræðimanni að hafa stór orð um ritverk annarra án þess að taka mið af því hvaða markmið því eru sett og hvers eðlis það er,“ segir í þessari grein þar sem ritstjórar Alþýðumenningar á Íslandi 1830–1930 svara gagnrýni Sigurðar Gylfa Magnússonar í síðustu Lesbók. Sigurður Gylfi gefur villandi mynd af verkinu, segja greinarhöfundar. Ingi Sigurðsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Loftur Guttormsson er prófess- or í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands. VAKA-HELGAFELL telur sér skylt að svara nokkrum atriðum í grein eftir Jónínu Ósk- arsdóttur sem birtist 8. maí sl. í Lesbók Morgunblaðsins en þar kemur fram gagnrýni á forlagið og einn af þýðendum þess. Í textafræði er þess ávallt krafist að bornir séu saman sambærilegir textar. Í grein sinni í Lesbókinni virðist greinarhöfundur hafa skotist fram úr sjálfum sér með því að bera saman þýðingar á mjög ólíkum textum á frummáli og draga þar af leiðandi villandi ályktanir. Sú útgáfa Vöku-Helgafells á ævin- týrum H.C. Andersens frá 1998, sem rætt er um, er ekki textarétt þýðing úr frumtexta H.C. Andersens og því algerlega ómaklegt að áfellast þýðanda fyrir sitt starf. Í því tilfelli þýddi Sigrún Árnadóttir þann texta sem fyrir lá – eins og starf þýðandans býður ævinlega upp á – en fór ekki að færa þýðinguna nær upprunalega textanum eins og greinar- höfundur gefur í skyn að hún hefði átt að gera. Sigrún Árnadóttir er einn af okkar fær- ustu þýðendum og hefur hlotið mikið lof fyrir þýðingar sínar, enda hefur hún þýtt margar af helstu gersemum norrænna barnabóka á íslensku, til dæmis bækur eftir Gunnillu Bergström (Einar Áskell), Astrid Lindgren og Jostein Gaarder. Í framhaldi af þessu skal þess getið að nú í haust er væntanleg hjá Vöku-Helgafelli ný þýðing Sigrúnar Árnadóttur á nokkrum frægustu ævintýrum skáldsins og mun bókin bera titilinn Úrvalsævintýri H.C. Andersens (H.C. Andersens bedste eventyr). Þannig munum við fagna stórafmæli hins sígilda ævintýraskálds með viðeigandi hætti strax í haust. E F T I R O D D N Ý J U S . J Ó N S D Ó T T U R Höfundur er barnabókaritstjóri Vöku-Helgafells. UM ÞÝÐINGAR Á H.C. ANDERSEN Hver skal hljóta, heiðursstærsta óð, hverjum á að færa bezta ljóð. Svarið verður, bezta móðir blíð, bið ég Guð, hún verndist alla tíð. Það var hún, sem í heiminn fæddi mig. Það var hún, sem lagði allt á sig. Til að gera göfgan, hvern minn dag. Til að gæfan færðist mér í hag. Hún studdi mig, er stálpaður ei var, hún styrkti mig, og hlúði all- staðar. Nú skal gjalda, er gömul verður hún, græða sár, og slétta hverja rún. Elsku mamma, eigðu þakkar brag, undu hjá mér, fram á síðasta dag. Ég ætla að borga, bernskuárin mín, borga allt, og greiða sporin þín. Ég gef þér allt, er get af hendi misst, og gleðst með þér, af innstu hjartans list. Gefist þér, svo gleði fram á kvöld, Guð skal biðja, að lifir heila öld. EGGERT SNORRI KETILBJARNARSON Höfundur var skáld og listmálari. Ljóðið er ort 1928 til móður hans, Halldóru Snorradóttur. Eggert Ket- ilbjarnarson drukknaði er hann fór eina ferð sem kyndari á togaranum Apríl árið 1930. MAMMA

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.