Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 28.02.1974, Qupperneq 15

Íslendingaþættir Tímans - 28.02.1974, Qupperneq 15
kvaddi sér seinna oft hljóðs á málfund- um og lagði áherzlu á að tala skipulega, beitti löngum gamansemi og gatþá verið striðinn andmælendum. Aldrei heyrði ég sagða um Helga þá flatneskjulegu ályktun, sem margir veröa þó að sætta sig við að hljóta, að hann væri „eins og fólk er flest.” Hann hafði nógu sérstæðan persónuleika til þess að hverfa ekki i hópinn i huga fólks. Skógar eru hlunnindajörð vegna veiöiréttar i Reykjakvisl. Helgi hafði mjög gaman af að stunda laxveiðar i ánni og veiddi oft vel, þótt ekki væri hann sem veiðimaður jafnoki bróður sins, Sigurðar i Skógahlið. Helgi var einyrki og hafði alltaf smátt bú. En hann lagði kapp á að fóðra skepnur sinar vel og átti að staðaldri fallegt fé og áberandi vænt til frálags. Aldrei var Helgi, — svo ég heyrði — við kvenmann kenndur. 1 fljótu bragði væri hægt að álykta, að lif hans hafi verið einmanalegt. En svo var þó ekki. Helgi hafði mikið yndi af söng og ann- arri tónlist og veitti sér þann munað að njóta hljómburðar á einverustundum með tæknibúnaði. Systkinakærleikur var jafnan mikill með börnum Páls I Skógum. Bræðurnir Helgi og Sigurður voru ekki alltaf á sama máli, en bróðerni þeirra stóð ákaflega djúpum rótum og traustum — og var fagurt i reynd. Börn Sigurðar voru Helga hjálpsöm og nærgætin og hann unni þeim, eins og þau væru hans börn. Alltaf var Skógahlfðarfólkið reiðubúið að liðsinna einbúanum i Skógum II. Og alla tið var hann vel- kominn að borði og til dvalar I Skógahlið, eins og hann væri heimilis- maður. Niðurstaðan varð sú, að hann hélt til i Skógahlið a.m.k. á vetrum, og gekk eða ók i Skóga II til gegninga, eins og á beitarhús, enda stutt að fara. Helgi hafði lengi æfi sinnar verið vanheill. Hann veiktist rétt eftir ferm- ingu af brjósthimnubólgu og beið þeirra veikinda aldrei fullar bætur. Hann varð fyrir meiðslum i uppskip- unarvinnu á Húsavik og hlaut varanleg örkuml af. Einnig var hann á seinni árum þjáður af kransæðastiflu. Honum kom þvi vel að njóta aðhlynningar, er látin var I té ljúfu geði i Skógahlið af öllum þar. Hann var að þvi leyti mikill lánsmaður. Helgi andaðist 18. janúar s.l. Hann hafðium morguninn farið út i Skóga II til þess að gefa kindum sinum. Komst aftur heim i Skógahlið. Fékk æðastiflukast og lézt þar i örmum ástvina sinna. Helgi i Skógum var átthagaelskur maður. Hann átti lögheimili i Skógum allan sinn aldur. Hann dvaldist aldrei utan átthaganna, nema stutt timabil. A Grænavatni i Mývatnssveit var hann á fermingaraldri part úr ári hjá frændfólki sinu. Einn vetur var hann i Alþýðuskólanum á Laugum við nám. Nokkrum sinnum fór hann i vinnu til Suðurlands á vetrarvertiðum. Ennfremur stundaði hann á timabilum vinnu á Húsavik. Allt fé, sem honum áskotnaðist i heimanförum, var hann ánægðastur með að gengi til umbóta á Skógum II. Hann lifði það að sjá sveit sina fá góðar samgöngur, sima á hvern bæ, — og hitaveitu, eða tryggingu fyrir henni. Þetta var honum fagnaðarefni, eins og fundur „fyrirheitna landsins.” Helga dreymdi oft og tók mikið mark á draumum. Hann mun á sum- um skeiðum ævi sinnar hafa verið gæddur nokkurri dulargáfu, — séð sýnir. Seinast, þegar við hittumst, — en það var i sumar sem leið, — gaf hann mér i skyn, að stutt mundi verða til sins endadægurs. Ég tók það ekki alvarlega, vonaði að viö ættum eftir að heilsast og kveðjast oftar og betur. Maður kveður aldrei samferðamenn sina af langleiðum nógu vel, ef þeir hafa verið vinsamlegir og óbrigðulir. Með þessum fátæklegu minningar- orðum votta ég Helga Pálssyni þakklæti mitt og vinsemdarhug fyrir samfylgdina. Ég veit, að Sigurði bróður Helga — og Skógahliðafólki — mun þykja auð- ara og snauðara, þegar hann er dáinn. Ég samhryggist Sigurði og öllum ástvinum Helga Pálssonar. Hinum djúpu rótum góðs bróðernis og frændrækni fylgir dýrmæt hamingja. En allri hamingju i heimi fallvaltleikans fylgir áhætta sársauk- ans, er axla verður, er örlög skipa. Karl Kristjánsson Jóhann Hverju sinni ráðumst við aðeins i þann áfanga, sem við erum viss um að ná, en sérhver framkvæmd verður að vera steinn i stóra byggingu, sem stefnt er að.” t sérhverri Arbók, sem siðan hefur i komið út.hefur Jóhann gefið skýrslu ’ um framgang safnahússmálsins. Þar kemur fram óþreytandi elja hans við að vinna þvi fylgi, afla til þess fjár og koma byggingunni áfram. Nú er svo komið,að húsið er risið og tekið i notk- un fyrir bókasafnið, héraðsskjala- safn, og brátt mun náttúrugripasafnið koma þangað lika. Jóhann Skaptason hefur sýnt náttúrugripasafninu sér- stakan áhuga og sjálfur safnað til þess mörgum góðum munum. Störf Jóhanns Skaptasonar að þess- um málum hef ég gert að umtalsefni, vegna þess að þau eru dæmigerð fyrir manninn og lýsa honum bezt. Ég hygg, að þau séu honum einnig kærust allra hans verka, þó að hann hafi að sjálf- sögðu ljáð lið mörgum öðrum menn- ingar- og framfaramálum i héraðinu auk umfangsmikilla embættisstarfa. Jóhann er virtur og vinsæll sem yfir- vald og mun mörgum þykja eftirsjón að honum sem sýslumanni. Þó vita menn vel, að þegar hann hættir em- bættisstörfum, mun hann áfram sinna sinum áhugamálum,sem eru að reyna að sjá til þess,að héraðið hans fái „not- ið alls þess sólskins sem islenzk menn- ing hefur upp á að bjóða”. Þess óska ég Jóhanni og héraðinu til handa, að honum endist lengi aldur og heilsa til að vinna að þvi að byggja „menningarmiðstöð Þingeyinga”. Jónas Jónsson frá Yztafelli íslendingaþættir 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.