Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Blaðsíða 4
hann þarað minnsta kostií ein átta ár, eða til 1912 og undi hag sinum vel, enda geðprýðismaöur á heimili, útsjónar- samur og farsæll starfsmaður, sem þeir feðgar Sigurður og séra Jón kunnu vel að meta, og létu hann njóta. Tókst lika meö þeim Sigurði og Einari hin einlægasta vinátta, sem aldrei slitnaði meðan báðir lifðu. A Stafafelli kynntist Einar konuefni sinu, Katrinu Einarsdóttur. HUn var fædd 1. ágúst 1884. Foreldr- ar hennar voru hjónin Einar bóndi á Brekku i Lóni og Berufirði Jónssonar. bónda i Byggðarholti, og Steinunnar Jónsdóttur I Tunguhlið í Alftafirði. Systir Jóns i Byggöarholti var Sólveig kona séra Björns Þorvaldssonar I Holti. (Ættir Austfirðinga). Katrln hafði að nokkru alizt upp hjá séra Benedikt Eyjólfssyni i Berufirði og farið með honum að Bjarnarnesi, en var nú á Stafafelli,er hér var komiö sögu. Það var þvi likt á komið með þeim Einari, að bæði höfðu um árabil dvalið á fyrirmyndarheimilum. Voru það I raun og veru alþýðuskólar þeirra tima og hinir gagnlegustu. Arið 1912 genga þau i hjónaband, Katrin og Einar, og hófu þegar sjálf- stæðan búskap, þó að efnin væru ekki mikil. Fyrstu tvö árin voru þau i Vik i Lóni. Þaðan lá leiöin upp i Breiðdal með búsetu á Anastöðum i tvö ár og Skriðustekk i fimm ár. Vorið 1921 fluttu þau að Viöilæk 1 Skriödal og þaöan 1928 að Vaöi i sömu sveit. A öll- um þessum jörðum hafði Einar verið leiguliöi með ómegö og óvissa ábúö en 1936 urðu hér þáttaskil. Þaö ár er góö- býlið Eyjar i Breiödalauglýsttil kaups og ábúöar. Þar þurfti að visu allt að gera til að svara kröfum hinna batn- andi tima, rækta og byggja, en hins vegar landkostir óumdeilanlegir. Að athuguöu máli var ráðizt i þessi jarðarkaup með aðstoð og atbeina systkinanna er heima voru, enda reyndist þessi ráðstöfun hin far- sælasta. 1 höndum þessa fólks var jörðinni hinn mesti sómi sýndur, ræktað og byggt yfir fólk og fénaö samfara þvi, að efnahagurinn batnaði stórum. Börnin voru nú lika hvert af öðru að komast upp og studdu heils hugar þessa uppbyggingu. Katrin var ágætlega greind kona, i meðallagi að vexti, hljóðlát og blið- lynd, einstaklega góð og umhyggju- söm manni sinum og börnum eins og eftirfarandi ljóðlinur Einars bera meö sér. „Min var gæfa aö eignast ást og alla bliðu þina sem eiginkona aldrei brást og umbarst galla mina.” 4 Hún var prýðilega verki farin, hirðusöm og nýtin húsmóðir og sivinn- andi meðan heilsan leyfði, en sfðari huta ævinnar var hún heilsutæp. Mátti næstum segja.að siðasta áratuginn væri hún meiri og minni sjúklingur. í þeirri löngu sjúkdómsraun sýndi hún bæði hugrekki og þolinmæði. Góð- málmurinn i eðli manns hennar kom kannski aldrei betur i ljós en i þeirri miklu umhyggju er hann sýndi henni, þá mest á reið. Hún lézt á sjúkrahús- inu I Neskaupstað 17. mai 1971. A heimili þeirra Katrinar og Einars þótti öllum gott að koma. Þau voru bæði gestrisin og viðmótshlý og framúr- skarandi hjálpsöm ef til var leitað og ekki drógu systkinin þar úr eftir að þeirra fór að njóta við. Börn þeirra Katrinar og Einars eru: Hjörtur kvæntur Jóninu Bjarnadóttur fósturdóttur Vilborgar á Þorvalds- stöðum. Þau byggöu fljótlega nýbýli út úr Eyjalandi og nefndu Lágafell. Þar hafa þau búið siöan, hinu fallegasta búi og unað glöö við sitt. Dætur þeirra eru Vilborg og Erna Þórey, báðar hús- freyjur í Breiðdal. Kristin giftist Eyjólfi Halldórssyni bónda i Haugum. Hann lézt árið 1944. Þau áttu tvo syni, er þá voru enn á barnsaldri, Reyni lic. pharm. Reykjavik og Kjartan, nú búsettan i Breiðdalsvik. Kristln átti heimili i Skriödal með sonum sinum i allmörg ár eftir fráfall manns sins. En, er aldur og þreyta færðist yfir foreldra hennar, fluttu þau Kjartan að Eyjum, og á þeim hvildi búreksturinn þar um mörg ár og uppbygging heimilisá Breiðdalsvik, eftir að horfið var að þvi ráði að breyta til áriö 1973. Björn f.v. bóndi Skjöldólfsstöðum Breiðdal. Kona hans var Svava Þórlindsdóttir (skildu), börn þeirra: Unnar Viðir Djúpavogi og Sveinbjörg Svana húsfreyja á Breiðdalsvik. Ragnheiður giftist Árna Bjarnasyni frá Borg. Þau hafa aldrei úr Skriðdal farið og búiö i Birkihlið, Hátúnum og Litla Sandfelli, alls staðar með sér- stökum snyrtibrag. Synir þeirra: Sig- urður starfsmaður hjá Búnaðarsam- bandi Austurlands, búsettur á Egils- stöðum, Bjarni bóndi i Litla Sandfelli, Einar og Sigurbjörn sem ásamt foreldrunum byggja upp eyðibýlið Hryggstekk i Skriðdalshreppi. Unnar Sigurbjörn fórst i bilslysi um tvitugs- aldur. Jón, búsettur á Breiðdalsvlk. Hann var kvæntur öldu Hansen (skildu). Þau áttu einn son Jóhann Sigurð. — Halldór, búsettur I Reykja- vlk, vinnur hjá Hæstarétti. Hann er kvæntur Sigrúnu Stefánsdóttur og börn þeirra eru: Stefán lögfr., Unnur húsfrú og Halldór, 12 ára. Einn son misstu þau, Einar á fyrsta ári. Sffiari ár Einars 1 Skriðdal unnum við saman I stjórn Bústofnsleigusjóös Skriðdalshrepps, sem var eins konar hjálparstofnun, eins og nafnið bendir til, fyrir hina efnaminni bændur_ sveitarinnar, á vegum Kaupfélags Héraðsbúa og hreppsins. Varð þessi starfssemi til á hinum svokölluðu kreppuárum og kom að góðu gagni- Mér er þetta samstarf einkar kært i minningunni, fyrir skapfestu hans og trúmennsku. Hann vildi, aö allt væri pottþétt frá okkar hendi, hvar og hvenær sem við værum kraföir sagna, og fylgt væri settum reglum út i yztu æsar, hver sem i hlut átti. Þeir menn, sem þannig vinna heils hugar, eru lofs verðir og hollt og þakkarvert að eiga með þeim samleiö þegar það og við bætist, að þeir eru einkar skemmtileg- ir félagar, eins og Einar var. Honum þótti gott aö bragöa vin, en allt var það i hófi. Samt varð hann miklu opnari og glaðari, einkum þó, er hann var kominn á hestbak, en á þeim árum mátti segja, að hesturinn væri eina farartækið bæja á milli. Einar var hestamaöur f orðsins beztu merkingu- Það var ánægjulegt, og i senn lær- dómsrikt, að sjá Einar meðhöndla hesta, hvort heldur var i húsi inni, eða úti undir beru lofti, tygjaða til reiðar. Hann strauk þeim og klappaöi og tal- aði við þá. „Var likast þvi sem blessuð skepnan skildi”, svo orðalag Grlms Thomsens sé notað, hvers hann ætlað- ist til af þeim, þvi hann var ekki fyrr kominn i hnakkinn, en hesturinn hafði gripið „hýru sporið”. Ég held, að ekki séofmæltaö segja, að Einar hafi verið i fremstu röð reglulegra hestamanna. En það voru fleiri skepnur, sem Einar hafði gaman af aö meðhöndla. Mátti segja, að hann legði alúð við allar skepnur sem tilheyrðu þeirra tlma sveitabúskap, og fóðraði og hirti eftir beztu getu. Hann var enginn brask- maöur I búskap og bjó aldrei stóru búi, fyrr en þá kannski á slðari árum i Eyjum, að hinum vinnandi höndum fjölgaði. Það átti vel við Einar, ef hann var vel fyrir kallaður, og helzt einn með manni, aö rifja upp eitt og annað frá æskuárunum. Það fór ekki á mill' mála, aö bjart var yfir Stafafellsveru hans I minningunni. Kom þar margt til. Húsbændurnir hinir mikilhæfustu, heimilið mannmargt og skemmtilegt og orðlagt fyrir menningarlega heimilishætti. Þar fékk hann vinnu sina llka það vel borgaöa, að hann sá sér fært að gerast sinn eigin húsbóndi, er hann fór þaöan, og slðast en ekki sizt, komst hann þar I snertingu viö þá vakningaöldu, sem átti sér stað I hinu islenzka þjóöllfi um þær mundir og reis kannski aldrei hærra, en á fyrstu árum eða áratugum aldarinnar. Og af þvl aö það er I beinu framhaldi af þvL sem hér hefur verið sagt, skal þess íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.