Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Blaðsíða 6
Gunnlaugur Pétur
Sigurbj örnsson
F. 18/2 1893
D. 16/1. 1969
Gunnlaugur fæddist að Hvoli f
Vestur-Hópi: Foreldrar: Sigurbjörn
Björnsson frá Völlum i Skagafirði, og
Sigurlaug Nielsdóttir. Þau byggöu ný-
býlið Geitland i Miöfiröi, og bjuggu
þar lengi.
Gunnlaugur ólst upp á hrakningi.
Sjálfsagt hefur örbirgðin komið þar
viö sögu. Gunnlaugur sagði mér sjálf-
ur, að hann hefði alizt upp á átján
stööum. Sú ganga var honum örðug, en
hann kom úr þeirri þrautagöngu ókal-
inn á hjarta.
Gunnlaugur byrjaði búskap sinn á
Ytri-Torfustöðum i Miðfirði vorið 1916.
Fyrri kona hans, Agnes Magnúsdóttir
Ólafssonar á Bessastöðum, f. 16/10.
1893. Þau Gunnlaugur og Agnes giftust
1918. Þeim hjónum varðþriggja barna
auðið. Elzt þeirra systkina er Guð-
björgSigurlaug f. 18/5. 1919. Guöbjörg
giftist Valdimar Danielssyni, bónda að
Kollafossi i Miðfirði, mætum manni og
drenglunduðum. Valdimar Danielsson
erdáinn. Guöbjörg (seinni kona hans)
byr áKoliefossi með börnum sinum.
Næst elztur þeirra systkina, er
Magnús, bóndi á Ytri-Torfustöðum,
giftur Margréti Sóleyju Guömunds-
dóttur. Magnús Gunnlaugsson er
góður búþegn og veimetinn dreng-
skaparmaður. Yngst bama þeirra
Gunnlaugs og Agnesar er Skarpheiður,
gift Þórði Jónssyni, ágætismanni.
Þórður Jónsson er ættaöur úr Húna-
vatnssýslu. Heimili þeirra hjóna er aö
bráðar hurfu menn og hestar sjónum i
dökkva hraunsins.
Sfzt grunaði mig þá að þetta væru
siðustu fundir okkar.
Nú er vegir skilja að sinni þökkum
við ferðafélagarnir Sigurgeir margar
glaöar samverustundir og samfylgd
um fegurstu ferðaslóðir þessa lands.
Við erum þess fullvissir aö hinum
margreynda feröamanni mun vel
greiðast hin mikla för.
Þeim sem nú eiga um sárt að binda
sendum við hugheilar samúðarkveðj-
ur. pán a. Pálsson.
Stillholti 15 Akranesi. Gunnlaugur
missti konu sina Agnesi, árið 1923. —
Þá stóð Gunnlaugur einn eftir með
börnin sin þrjú: Guðbjörgu 4 ára,
Magnús 3 ára, Skarpheiði 2 ára.
Förunauturinn trausti og tryggi var
horfinn af sjónarsviðinu, yfir landa-
mærin. Þung spor sem Gunnlaugur
átti ógengin voru framundan.
Gunnlaugur Pétur brást ekki börnum
sinum i einu né neinu. Nú kom
Gunnlaugi að haldi barátta bernsku-
og æskuáranna. Hann hafði lært þá
lexiu, að slá af, en halda þó i horfinu.
— Það er andæfa eftir megni.
Gunnlaugur var greinur maður og
fjölhæfur smiðurgóöur, verklaginn og
lundin og framkoman slik, að þar af
mátti margur læra. Slikum manni sem
Gunnlaugi varð margt til hjálpar i
hans raunastrfði.
Guð og góðir hjálpendur komu
Gunnlaugi til styrktar. — Guðbjörg
dóttir hans, var áfram á Ytri-Torfu-
stöðum, hjá Magnúsi afa sinum.
Halldóra Magnúsdóttir, afasystir
Skarpheiðar, tók hana til sin,ól hana
upp. En hvað varð um drenginn,
Magnús Gunnlaugsson? Næsti
bær, utan við Ytri-Torfustaði, eru
Bergsstaðir. Bóndinn þar hét Jens,
(hans er getið i sögu „Landpóst-
anna.”) Dóttur átti Jens, Soffiu að
nafni. Seytján ára að aldri tekur Soffia
Jensdóttir dreng i fóstur og annast um
uppeldi hans. Slik fórnarlund er fátið.
Fóstursonur Soffiu, sá er hér um
ræðir, hét Haraldur Sigvaldason.
Haraldur Sigvaldason er fæddur 8/3
1900 d. 1966. Haraldur var heilsutæpur
alla ævi. Ég get um Harald vegna
þess, að ekki sæmir að þessa fóstur-
sonai Soffiu sé að engu getið.
Hún átti eftir að annast um fleiri
fóstursynina seinna á ævinni.
Þegar Agnes deyr og Gunnlaugur á i
erfiöleikum, þá er það auðvitað hún
Soffia Jensdóttir, sem býðst til þess að
taka Magnús litla i fóstur. Þetta þáði
Gunnlaugur með þökkum.Hann þekkti
Soffiu að öllu góðu. Soffia var f
nágrenni Ytri-Torfustaöa. Auk þess
voru þær, Soffia og Agnes, vinkonur
frá fyrri tið. Næstu fjögur árin vann
Gunnlaugur að smiðum, á ýmsum
stöðum. Gunnlaugur lét ekkert tæki-
færi ónotað, sem honum bauðst til
bjargar sér og sinum.
Arið 1927 18. febrúar giftast þau,
Gunnlaugur og Soffia Jensdóttir.
Sofffa var þá búin að vera ráðskona I
tvö ár á Ytri-Torfustööum, hjá
Magnúsi ólafssyni, tengdaföður
Gunnlaugs. Auðvitað fylgdi Magnús
Gunnlaugsson fóstru sinni eftir að
Ytri-Torfustöðum, er hún fór þangað
ráðskona, Nú var fóstran góða oröin
stjúpa barnanna hans Gunnlaugs
Péturs. Hvernig reyndist Soffia stjúp-
börnum sinum? Ég hef svarið viö
spurningu þessari tilbúið. Tel mig þess
umkominn að geta sagt þetta svar
stjúpbarnanna hennar Soffíu. Svariö
yrði þessu likt: Stjúpmóöurstaðan
breytir engu. Soffia er okkur öllum
sem bezta móðir.
A búskaparárum sinum á Ytri-
Torfustöðum tóku þau, Gunnlaugur og
Soffía, tvo drengi til fósturs, Björn
Mattías Tryggvason, er kom til þeirra,
4ra ára og Braga Friðriksson, 6 ára —
Birni Mattiasi, fóstursyni þeirra, hef
ég ekki kynnzt. En um séra Braga
Friðriksson mun ég fullyrða, að hann
minnist fóstra sins og fóstru meö
ævarandi þökk og virðingu. Það mun
hinn fóstursonurinn óefað lika gera.
Fátæktin var mikil hvað efnahaginn
snerti fyrstu búskaparár þeirra hjóna,
Gunniaugs og Soffiu. En rikidæmi
andans var þvi meira. — Þau hjón
munu engan synjandi hafa látiö frá sér
fara. Þetta mun ekki ofmælt. Það
6
íslendingaþættir