Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Blaðsíða 14

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Blaðsíða 14
Fjárhús Gunnars i Súðavik. Sextugur Gunnar Gíslason 65 árum. Voru foreldrar hans hjónin Egill Benediktsson frá Brekku hjá Viðimýri og Jakobina Sveinsdóttir, sem var að föðurkyni húnvetnsk, en ólst upp á Sveinsstöðum. Þóttliöin séu 16 ár frá dauða Egils, en 28 ár siðan Jakobina dó, er þeirra beggja gjarnan getið, þegar minnzt er merkra manna hér um sveitir. Voru þau gædd sterk- um persónu-einkennum, hvort á sinn hátt. Hann einkum friður og ljós I svipnum, glaðvær og vel aö sér, enda hafði hann notið skóla heima og er- lendis. Gegndi hann trúnaðarstörfum fyrr á árum, en lifði nær 30 ár lamaður að likamsþrótti, dulrænn og hugall. Jakobina þótti og vel gerö og menntuð að hætti þeirra tima. f sérkenniiegum svipbrigðunum sú festa, er dró fólk að við kynni. öll bera börn þeirra, Sveinsstaðasystkinin, einkenni for- eldranna i góðum gáfum og vinsæld- um, og er oft jafnað til höfðingslegs svipmóts þeirra og framgöngu. Þannig var Sigurði ekki sizt farið, en hann var friður og fagurhentur, en glaður svipurinn lýsti fjörmikilli hugsun. Hann gleymist þeim ógjarn- an, er sáu og heyrðu. Það var tiðum spurt, hver hann væri þessi hvatlegi maður, er var svo vel farinn f andliti, en rómurinn mikill yfirmálinu. 1 starfi safnvarðar i Glaumbæ naut hann sin hið bezta, mælskur og mannblendinn, en fróður um allt, sem þar var að skoöa, og persónu-sögu allra þeirra, er helzt koma við héraös sögu fyrr og sið- ar. Svo glæddi hann frásögu sina hnitt- inni ferskeytlu eöa fallegu ljóði. Og viðmælandanum fannst mikiö ljós vera yfir þessum manni. Úti á Lang- holti var hann og heimamaður, þvi að hann ólst upp á Grófargili á árunum 1919-1925 hjá Jóni föðurbróður sinum og Sigurlaugu Brynjólfsdóttur, en þá voru þau Sveinsstaöahjón búlaus. Minntist hann ungu áranna með frændfólkinu á Grófargilii heils hugar gleði og þakklæti og hélzt æ siðan sannasta vinátta með honum og dætrum Jóns og Sigurlaugar. Nam Siguröur bókvisi i þessari hollu vist, en amma hans, móðir Jóns og Egils, Ingi- björg Einarsdóttir, systir Indriða rit- höfundar. Er það þekkt fræðafólk margt og iistvinir. Jón Benediktsson dó 1925 og fór Sigurður þá aftur heim i Sveinsstaði, en fermdur, einn sér barna, hjá sira Hallgrimi Thorlaciusi i Viðimýrarkirkju seint á slætti þetta sumar. Ekki er grunlaust, aö sira Hallgrimi þætti drengurinn kunna skil á barnalærdóminum. Foreldrar hans voru nú að hefja búskap að nýju á jörð sinni, og átti hann þar heima upp frá þvi, til þess er hann fluttist á nýbýlið Stekkjarholt, sem hann hafði reist i Sveinsstaöalandi með konu sinni Bertu Karlsdóttur, fyrir 13 árum. Alla tið 14 Blómsturvöllum, Súðavík Fjárhirðir góður og greindarmaöur. Afmælisósk. unni hann stöðvum bernsku sinnar og föðurkyns úti I Seyluhreppi, þó að eigi fölskvaðist átthagatryggð hans við Tungusveit við það eða stoltið yfir hlý- leik og búsæld Skagafjarðardala. Sigurður naut þvi miöur ekki lang- skólanáms, en lærdómsframi hans heföi án efa orðið mikill svo frábært sem næmi hans var og skilningur. Þess i stað gekk hann að ýmiss konar vinnu og hneigðist áhuginn brátt að vélum, þótt ótrúlegt megi virðast. Stundaðihann akstur þegarum 1930 og vélstjórn með flotgröfuna á Staðar- mýrum. Til þess tima má rekja veik- indi hans, sem háöu honum i áratugi. Þá var hann og við smiðar, enda prýðilega lagtækur og vandvirkur, en bóndi á Sveinsstöðum 1945-1950 og aftur siðar og svo nokkur ár i Stekkjarholti af áhuga og vilja, en háður vaxandi heilsuleysi, studdur ósegjandi dugnaði og myndarskap eiginkonunnar og dætra hennar af fyrra hjónabandi, er ólust upp með þeim. Fyrif fáeinum árum létu þau hjón jarðnæðið af höndum við dóttur Bertu og tengdason, en heimili áttu þau áfram i Stekkjarholti. Stundaði Berta lengst af vinnu i Skjaldarvik við Eyja- fjörð með Guðlaugu Egilsdóttur mág- konu sinni, er þar var árum sa/nan ráðskona, en Sigurður lagði gjörva hönd á margt þau misseri eftir þvi sem kraftar ieyfðu. A sumur var hann safnvörður i Glaumbæ, eins og þegar eraö vikið, og var þar réttur maöur á réttum stað. Lagði hann alúð við þetta eftirlætisstarf sitt og hlaut mikiö lof Hljóttu yndi, hæsta gengi, hræðstu ei vindana. Eltu kindur ennþá lengi upp á tindana! safngesta. útvarpsmenn fóru með honum um bæinn þjóðhátiðarsumarið og vakti frásögn hans óskipta athygli, fróðskapur og fagurt málfar. Þá skal pess einnig getið, að Sigurður var rit- færi bezta lagi, sem raunar er ekki að undra um svo viðlesinn bóka- og menntavin. Skrifaði hann minningar- greinar um gengna samtiðarmenn og sveitunga i blöð og bar fram snjallar ræður i afmælisveizlum og á héraðs- fundum Skagafjarðarprófastsdæmis, en siðustu árin var hann safnaðar- fulltrúi Goðdalasóknar og meðhjálpari kirkju sinnar. Þar var gott með honum að vera sem ávallt endranær, þessum lifsglaða, bjartsýna manni, sem langæ veikindiog vistirá sjúkrahúsum höfðu hvergi bugaö. Birtan i sál Sigurðar Egilssonar kom að ofan, andinn, sem þeir Grimur Thomsen höfðu báðir fundið og skilið, þó a ð eðli hans verði eigi skýrt á lifsins vegi, hversu djúpt, sem vér leitum við sjálfar uppspretturnar. En lifsvegur- inn heldur áfram eftir lausnir dauð- ans, hins milda þjóns eilifs veruleika æðri birtu og aukins þroska. Þar er hann nú kominn með ljóð reynslu sinnar og hugsjóna til fundar við Guð, — þar sem aðrar lindir aftur spretta upp til svölunar i geislum hins guð- dómlega vilja, sem ljóma um sál hins framliðna manns á vegi eilifrar veru og birtan á allt riki við sitt eigið upp- haf. 1 fyrra umhverfi eru vinir, sem sakna. Það er svo hljótt eftir þennan mann, þvi að sérkennin tóku yfir. Agúst Sigurðsson á MælifelL íslendingaþættir Auðunn Bragi Sveinsson.

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.