Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Side 15

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Side 15
Kr. fyrir skömmu siðan. Sama var um ýmsar blaðagreinar, sem hann haföi lesið fyrir löngu. Ungurmaður i Dölum vestra, var hann eldheitur stuðningsmaður Bjarna frá vogi meöan hans naut við eða til 1926. Minntist hann oft glæsimennsku hans og ræÖusniUdar, ásamt sivakandi áhuga fyrir sjálfstæðismálum þjóöarinnar. Eftir Það gerðist Jón einbeittur stuðningsmaö- ur Framsóknarflokksins og vann jafnan wikið og gott starf fyrir hann alla tið. Hann var einn af stofnendum Fram- sóknarfélags Akraness. Var um tfma í stjórn félagsins og i áratugi i fulltriiaráði þess. Þá vann hann mikið fyrir Timann á Akranesi. Hann varóragur að takast á við verkefninog eigum við samherjar hans á Akranesi honum miklar þakkir aö gjalda fyrir fórnfýsi hans og félagslegan áhuga. Hann átti mikilvægan þátt i þvi, aö Fram- sóknarfélag Akraness byggði sér litiö fylagsheimili 1961, sem hefur ómetanlega Þýðingu fyrir starfsemi þess. Hann var fram á siðasta dag óþreytandi baráttu- óiaður fyrir málefnum flokksins og sann- {®rður um það, að þvi meiri sem áhrif Uramsóknarflokksins væru, þvi betur yrði stjórnaö. Hann var einn af þessum mörgugóöuflokksmönnum, sem lifa fyrir Þaðað veita góðum málum brautargengi, eu gera aldrei neinar kröfur fyrir sig. s*gurlaunin eru fólgin i þeirri ánægju, Sem þaöveitirað sjágóðum málum miöa 1 rótta átt. engin pólitísk markalina, þótt skoðanir hans væru þar fast mótaðar. Tryggðin við átthagana — Dalasýslu — var einstök. Og þótt hann væri bilsettur á Akranesii nær 60ár, var hugur hans jafn- an bundinn átthögunum og lifsbaráttu fólksins þar. Þangað fór hann flest árin og rækti frændsemi og forna vináttu. Oft lá leiöhans isjilkrahúsið á Akranesi i heim- sókn til fólks Ur Dalasýslu, sem þar dvaldi lengri eða skemmri tima. Þar kom fram þessi einstaka umhyggja og velvild hans til vina sinna, ef hann gæti oröiö þeim að liði með einhverjum hætti. Þau hjón — Jón og Björg — hafa ekki borist á um dagana. Stundum var lifsbar- áttan erfið vegna þrálátra veikinda henn- ar. Samt var samlif þeirra — ást og ein- drægni —■ sem fagur sólskinsdagur. Per- sónuleg eyösla var þeim fjarri skapi, en stuðningur við góð málefni var þeim lifs- fylling. Þau hafa gefið gjafir til æsku- stöövanna i Dalasýslu og fyrir 7 árum færðu þau Krabbameinsfélagi Islands myndarlega gjöf. Ýmsum öðrum hafa þau rétthjálparhönd, þótt leynt hafi farið. Allt var þetta I samræmi við hyggindi þeirra og ráðdeild. Börn áttu þau ekki, en drengur Ur ná- grenninu — Kristján Pétur Guönason nU ljósmyndari i Reykjavik — varð þeim mjög handgenginn á unga aldri. Hefur hann jafnan sýnt þeim frábæra tryggð og vináttu, sem þau kunnu bæði vel að meta. Sama má segja um syni ólafs, bróður Jóns. Þar rikti einnig gagnkvæm vinátta og traust, sem var þeim mikils virði. V. Sérstæöur og eftirminnilegur persónu- leiki var Jón Kr. Guðmundsson, sem jafn- an fór sinar eigin leiðir i daglegu lifi. Hann hugsaöi málin og tók sinar ákvarö- ar*ir. Hann var hreinskilinn og lét skoöan- lr sinar i ljósi við hvern sem var. Hann Var fróður, átti gott bókasafn og las mikið. Var stálminnugurogkunni góð skil ómönnum og málefnum samtiðar sinnar ailt frá upphafi aldarinnar, eins og áður er viícið að. Hann kunni ógrynni af göml- Um vlsum og kveðlingum og sögur um til- drög þeirra. Jón vartraustur ogvinfastur svo af bar, en lét ógjarnan sinn hlut, væri hann órétti beittur. Þá gat hann verið harður i horn abtaka og fastur fyrir. Hann var einstak- Ur vinur vina sinna. Hjálpsamur og greið- vdíinn og sást ekki fyrir, ef þvi var aö Smpta. Hann leitaöi eftir þvi að veröa vin- Um si'num að liöi, ef hann taldi þá skorta e>tthvað, sem hann gat af hendi látið. Hann var vandur aö vinum og þar réði ,5|endingaþáettir VI. Ég á margar góðar minningar um vin- áttuog tryggð Jóns Kr. Guðmundssonar i tæpan aldarfjóröung, sem ég hafði af hon- um kynni. Hvort sem við unnum aö sam- eiginlegum baráttumálum á Akranesi, fórum á laxveiðar eða grasafjall, verður mér jafnan efst i huga brennandi áhugi hans, dugnaður og þrek, sem átti sér fáa lika. Hann vaknaöi fyrstur á morgnana, gekk hraðar en aðrir og hafði ævinlega næg umræðuefni. Glettinn og spaugsam- ur, ef þvi var að skipta. Drengskapur hans og umhyggjusemi brást aldrei, hvorki mér né öðrum vinum hans. Þegar slikir samferöamenn hverfa skyndilega, er sem eitthvaö bresti hið innra og allt verður tómlegra en áöur. Þótt árin hafi verið orðin mörg, var ekkert sem gaf til kynna, aö svo skammt væri til endadæg- urs. Söknuðurinn er þvi sár hjá öllum hinum mörgu vinum hans, en fyrst og fremst eiginkonunni, sem svo skyndilega missti ástrikan og umhyggjusaman lifsförunaut. Megi hún öðlast styrk á erfiðum tfmamót- um og fagurt ævikvöld. Blessuð sé minning Jóns Kr. Guð- mundssonar. Danfel Agústfnusson Leiðrétting 1 23. tbl. Islendingaþátta var preptvilla i nafni Páls Ingvarssonar, er þar ritaði minningargrein um Sigurlaugu Kristinu Stefánsdóttur. Aö sjálfsögðu er hægt að lesa i máliö hið rétta nafn, en viðkomandi eru beðnir afsökunar á þessum glöpum. 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.