Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Qupperneq 5

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Qupperneq 5
nærátján ára búskap að þau seldu jörðina °g fluttu til Siglufjarðar og siöan Dalvik- Ur- Þaöan lá leiðin til Akureyrar. Jón stundaði i fyrstu daglaunavinnu, en sfðan verslunarstörf. Þeim Jóni og Petru vegn- uði vel á Akureyri er frá leið og áriö 1960 stofnaði hann i félagi viö vin sinn, Magnús tngurjónsson bólstrara, húsgagnaverslun sem var til húsa að Skipagötu 13. Hún hmut nafnið Kjarni. Þessi verslunar- r®kstur gekk vel. Verslunin varð brátt vinsæl og um tima störfuöu þau Jón og k Fa ^ar haeði. Viöskipavinir komu viða a°- Oft kom fyrir að Petra fékk óvænta 8®sti Ihadegismat eða kvöldverö: Ef við- jhúptamaðurinn var langt að kominn, uvort heldur þar var á ferö gamall sveit- Uugieöa annar, var gestrisni þeirra hjóna söm viðsig. Jón Nielsson var einstaklega Sjafmildur. Hann naut þess aö gleöja þá Sern minna máttu sin. Börn Jóns Nielssonar og Petru eru: Jón ™arius kvæntur Kristfnu Jóhannsdóttur, Kristin, gift Hreiöari Valtýssyni, "^aria gift ■ Sveini Sæmundssyni, Niels Brimar kvæntur Hildi Sigursteinsdóttur °8 Jóhanna Helga gift Eirfki Eiðssyni. Jón Nielsson var með afbrigðum barn- góður maður. Börn hændust að honum "Var sem hann fór. Slikum manni var þvi mikil gleði aö barnabömunum, sem nú eru sum hver fulitíða fólk. Nú þegar Jón Nielsson er allur og verð- Uri dagkvaddur hinstu kveöju i Akureyr- arkirk ju leita gamlar og nýjar minningar ® hugann. Hann var maður óvenju h^argra góðra eðliskosta. Réttsýni hans, eiöarleika og reglusemi var viö brugðið. Hann var glettinn og gat veriö smástrið- jnu, en aldrei kerskinn. Hann varð inni- lega sár, ef einhver var órétti beittur. Jafn innileg var gleöi hans yfir velgengni eg hamingju. Jón var mannblendinn og lróöleiksfús,enda vinamargur og vinfast- A efri árum ræddi Jón oft um tilgang jjfsins. Hann var trúaður maður og trúöi á pað góða i þessum heimi. Hann var ham- lngjumaöur ieinkalifi og hjónaband Petru °ghans var einstakt. Hennar missir er þvi naikill. Jón gerði sér fulla grein fyrir þvi að aallið væri ekki langt undan. Ég er viss Uln að hann hvarf yfir móðuna miklu sátt- Ur við Guð og menn. Þaö er heiðrikja yfir hflnningunni um Jón Kr. Nielsson. Hann Var góöur maöur. Sveinn Sæmundsson Ragnar bif r eiðas tj ór i Akranesi Fæddur 22. april 1938. Dáinn 13. mars 1980. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness eftir erfiöa sjúkdómslegu 13. mars sl. Ragnar var borinn og barnfæddur Akurnesingur, einkabarn þeirra hjóna Felixar Eyjólfssonar og Magnhildar Jónsdóttur. Ragnar var af góðu bergi brotinn, móðirin er orðlögð mannkosta- kona. Hennar fólk er rómað dugnaðar- fólk, þar er margt um góða búhölda og framámenn I bændastétt. Felix Eyjólfsson var af dugnaðarfólki kominn, sem vann við góðan orðstir til sjós og lands. Sjálfur var hann lærður skipstjórnarmaður, dugnaðar sjómaður á sinum blómaárum, lengi stýrimaður á skútunum og fyrritiðarskipum. Hann var vörpulegur maður á velli, með hærri mönnum, ekki þrekinn en slvalur, sterkur og hinn liðlegasti á að lita, góður iþrótta- maður, frisklegur og friöur sýnum. Glim- an var 1 hávegum höfö hjá fyrritiðar mönnum svo aörar frjálsar iþróttir t.d. þeyrði ég talað um aö Felix heföi hér áöur kennt ungum mönnum hnefaleika. Hann var enginn aukvisi eöa lamb að glfma viö. Slöari æviárin var hann vörubilstjóri all- mörg ár, til dauðadags. Við vorum félagar á Vörubllaátöð Akra- ness fá ár, aUkunnugir og fór jafnan vel á með okkur. Felix var einstakt snyrti- menni, mikiU reglumaður og hinn vand- aðasti drengur. Ragnar bar sterkt svipmót föður sins, eftir þvi sem ég leit tU erfði hann marga hans bestu mannkosti. Ragnar var með stærri mönnum að vaUarsýn, heldur þreknari en faðir hans, samsvaraöi sér vel, var bjartur yfirlitum og friður sýn- um. StiUtur maður og prúöur i aUri fram- göngu, glaöur og vingjarnlegur i viðmóti við alla unga sem eldri. Unglingarnir og börnin kunnu vel að meta hans nærgætni, hýra bros og hlýja viðmót. Bömin þyrpt- ust að honum, smá og stór. OU litu þau á hann sem vin, sem gaf sér tima tU að tala til þeirra, veita þeim athygli og vinar- hlýju. Þetta er UtU saga af framkomu þessa manns i sveitinni, þegar hann var mjólkurbilstjóri i samfellt 17 ár hjá okkur bændum ofan Hvalfjaröar, en mjólk okk- ar var keyrð tU Reykjavikur. Og það voru fleiri en börnin og unga fólkið sem fögn- uðu komu þessa manns á heimahlað okk- ar, hann Ragnar var hvers manns hug- ljúfi. Það sem hér hefur verið sagt gefur glögga visbendingu um hvernig maður Felixson þetta var. Lýsingarorðin þurfa tæpast að vera öllu fleiri. Það má segja, að undanfarna 2-3 ára- tugi hafi tæknibyltingin veriö svo ör f is- lenskum landbúnaöi, að vart hafðist við að tileinka sér nýjungarnar, sem urðu til að létta verkin og auka afköstin. Eina þá bestu framför seinni tima tel ég vera svonefnda tankvæðingu. Það var sannarlega framför að losna við mjólkur- brúsana, kælingu mjólkur i vatni, við mis- jöfn skilyröi, svo flutningana á pallana daglega. Það voru sannarlega aufúsugestir sem óku i hlaöiö þegar þeir þrir félagar, allt úrvalsmenn, léttu af okkur öllu amstrinu með mjólkina. Rafkældar stórar ámur geymdu mjólkina kælda á réttu stigi, þar tiltankbillinn kom og mjólkinni var dælt á milli. 011 átök og umstang úr sögunni. Við vorum heppin meö bllstjóra, þeir voru sannarlega verki sinu vaxnir. Mér finnst ég standa i það mikilli þakk- arskuld við þessa menn, aðég taldi skyldu mina að birta þakkir minar á þessari stund, þegar einn þessara góðu drengja er kvaddur hinstu kveðju. Ragnar Felixson var eins og sagt er 100% maður i sfnu starfi, á betra varö ekki kosiö. Areiðan- legri mann og vandaöri var ekki hægt að hugsa sér, snyrtimennskan og reglusemin var frábær, hann mátti ekki vamm sitt vita i neinu. Það var sama hvort litið var á bflinn eöa bilstjórann, allt bar vott snyrtimennskunnar. Það var sannarlega góð fyrirmynd. Við vorum mörg sem söknuöum Ragn- ars úr þessu starfi, ungir og aldnir. Það 5 'slendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.