Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Síða 9

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Síða 9
sPekileg tilsvör uröu héraösfleyg. A Samals aldri sagöist hann hafa gert tvö j'andtök á æfinni. Annaö i Kálfadal i' Os- nhö 0g hitt á Grænuhlið, en þá bjargaöi Uann skipiog skipshöfn meösnarræði sfnu brimlendingu. Var Hiram þá háseti hjá raenda sinum Albert Benediktssyni á Hesteyri. Elisabet amma Kristins var barödugleg greindar kona, sem alist haföi bPp viö kröpp kjör i Steingrimsfiröi á Ströndum. Ast mikla festi hún á þessum Unga dóttursyni sfnum og öl hann upp viö ^ambland af hörku og ástiið. Meiri vin ~^ra og smælingja hef ég aldrei kynnst. ™jög voruþau ólik að skaplyndi Híram og Ehsabet og lengst af bjuggu þau viö fá- l®kt eins og margir sveitungar þeirra. Nokkrum árum eftir að Kristinn kom til msturforeldra sinna byggöu þau sér býli f Jandi jaröarinnar Sæbóls i Aöalvík, sem Pau nefndu Sægrund, en i daglegu tali kallað Grund. Viö þann staö var Kristinn 4yallt kenndur af sveitungum sinum og Vl6 þann staö kenndi hann sig sjálfur síöar b *finni. Mjög snemma fór Kristinn aö taka þátt i þeim störfum er til féllu á •aeimili hans, enda geröust nú fósturfor- e'drarnir aldurhnignir og lasburöa. Hug- Ur hans stefndi til trésmiðanáms hjá fr*nda hans á Isafiröi, en þegar til kast- anna kom fannst þessum samviskusama °g heiöarlega unglingi, aö hann gæti ekki skiliö heimiliö eftir fyrirvinnulitiö. Bestu ðr Kristins liðu þvi i faömi þeirrar sveitar erhann haföi alið. Arin liöu viö sjósókn í Verum og heimaslóö. Fáir ungir menn í Aðalvik báru betur sjóklæöi en Kristinn á ^rund. Hann var eftirsóttur sjómaöur, bvort heldur vár á litlum vélbátum Aöal- yikinga, stærri útilegubátum Isfiröinga er Wttu undir jökul eöa vertföarbátum ®Unnlendinga. Til sildveiöa fór Kristinn aeinustu árin f Aöalvik, en þá gátu faöir bans og bróöir annast heyskap fyrir búiö bjá fósturforeldrunum. Ungur aö árum smíðaöi Kristinn sér skektu, sem hann réri til fiskjar á vorin og siöan keypti hann vélbát meö öörum manni og geröi út frá ^balvik. 'slendingaþættir Á heimili Kristins var bókakostur meiri en almennt geröist og snemma kom í ljós áhugi hans á lestri bóka og einkum ljóöa- bóka. Hann var mjög vel lesinn maður og áhugi hans á þjóðmálum ótviræöur. Meö fátæklegum kosti smiöaáhalda byrjaöi Kristinn ungur aö smiöa ýmsa hluti sem ungir drengir í nágrenni hans höföu áhuga á. Ég minnist þess, aö margt haustkvöld var hann viö þessa iöju sina 1 litlum óupp- hituðum skúr við bæjarveginn. Tilfinningamaöur var Kristinn mikill og haföi rlka réttlætiskennd, hugurinn frjór og flesta hluti gerði hann einfalda í fram- setningu, enda var af nægum gáfum aö taka. Hann haföi marga kosti snillingsins en jafnframt bresti hans. Ekki batt hann alltaf bagga sina sem samferöamenn, en vinum sfnum var hann trölltryggur. Trú lega hefur ábyrgð sú er hann axlaöi korn- ungur sem forsjármaöur heimilis á erfiö- um timum, markaö viöhorf hans ævi- langt. 1 vinahóp var Kristinn meö skemmtilegustu mönnum, oröheppinn, rökfastur og kimnigáfu mikil eins og hann átti kyn til. Vorið 1948 er Kristinn var tæplega þritugur aö aldrei andaöist fóstra hans og siöar á sama ári fóstri hans. Flutti Krist- inn þá til Reykjavíkur rikari af reynslu en veraldarauöi. Uröu þá samfundir hans meö gömlum æskufélögum færri og hann byggöi sér nýjan heim athafna og tóm stunda. Hóf Kristinn fljótlega störf hjá Stálsmiöjunni h.f. og vann þar viö járn suöu til siöasta vinnudags. Um störf hans þar er mér ekki nægilega kunnugt svo um meigi dæma, en þriggja áratuga þjónusta viö sama húsbónda segir nokkra sögu. Ariö 1961 kvæntist Kristinn, Huldu Ingadóttur og eignuöust þau einn son Kristin Guðjón. Hann stundar nám viö Menntaskólann á Akureyri. Hulda lést áriö 1971 og tregaöi Kristinn hana mjög. Haföi hún búiö þeim mjög vistlegt heimiji aö Drápuhliö 30. Fyrstu árin eftir frá- fall Huldu uröu þeim fegöum erfiö aö mörgu leyti. Taldi Kristinn aö aldrei gæti hann þakkaö mágkonu sinni Onnu og manni hennar ólafi Sverrissyni um- hyggju viö soninn Kristinn Guöjón, en hjá þeim hjónum hefur hann dvaliö langdvöl- um á undanförnum árum. Viö fráfall Kristins frá Grund brestur sterkur hlekkur þeirrar keöju er bundiö hefur mig viö bernskuvoriö heima I Aöalvik. A heimili foreldra minna, sem var næsti bær viö Grund, var Kristinn alltaf aufúsugestur og oft var til hans leitaö, hvort sem var i gleöi eöa sút. Háöldruöum fööur Kristins og einka- syni ásamt öðrum ástvinum sendi ég minar dýpstu samúöarkveöjur. Kristinn var fæddur á jóladag og var borinn for- eldrum sinum sem jólabarn. Fósturfor- eldrunum var hann skyldurækin sonur, skjöldur og skjól. Samferöamönnunum var hann fyrirmynd um flesta hluti. Guö blessi minningu vinar mins Krist- ins frá Grund. Baldur Jónsson Kristln Ásmundsdóttir Kristin var fædd aö Mosfelli I Mosfells- sveit. Foreldrar hennar voru Bjarghildur Jónsdóttir frá Úlfsstööum I Landeyjum og Asmundar Jónssonar frá Stiflisdal I Þing- vallasveit. Borghildur og Asmundur áttu, auk Kristinar, aöra dóttur, Jónfnu. Kristin fór á 1. ári i fóstur til Halldðrs Jónssonar og Vilborgar Jónsdóttur aö Gullbringum i Mosfellssveit. Eftir lát fósturföður sins fluttist hún til Reykjavik- ur, meö fóstru sinni og eldri fóstursystur. Ungaöárum réöst Kristin i kaupavinnu noröur yfir heiöar, nánar tiltekiö aö Neöri-Fitjum i Húnavatnssýslu, til hjón- anna Arna GislaSonar og Sigrlöar Guömundsdóttur. Þar kynntist hún bóndasýninum Jóhannesi Arnasyni, sem varö lifsförunautur hennar og deildu þau saman mikilli gæfu. Kristin og Jóhannes gengu i hjónaband áriö 1935 og hófu búskap aö Neöri-Fitjum, á móti Guömundi bróöur Jóhannesar, og konu hans Guörúnu Guömundsdóttur. Ariö 1943 reistu Kristin og Jóhannes ný- býliö Efri-Fitjar, byggöu öll hús frá grunni og juku mjög viö ræktaö land. Búskapur Kristinar og Jóhannesar á Efri-Fitjum var meö miklum ágætum. 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.