Íslendingaþættir Tímans - 13.01.1982, Side 3
uppruna sinn meðal annars að rekja til
hinnar þekktu Arnardalsættar.
Helgi Rafn brautskráðist frá Sam-
vinnuskólanum i Reykjavik árið 1955, en
hafði áður lokið gagnfræðaprófi. Hann
starfaði nokkur sumur hjá Kaupfélagi
Patreksfjarðar og sumarið 1954 hjá fjár-
máladeild S.l.S. i Reykjavik. Hann vann i
sjódeild og siðan i bókhaldi Samvinnu-
trygginga 1955-1960. Hann gerðist kupfé-
lagsstjóri Samvinnufélags Fljótamanna i
Haganesvik árið 1960 og gegndi þvi starfi
til ársins 1963, er hann var ráðinn fulltrúi
kaupfélagsstjóra Kaupfélags Skagfirð-
inga. Þvi starfi gegndi hann til ársins
1972, er hann þann 1. júli það ár tók við
stöðu kaupfélagsstjóra þess félags úr
höndum Sveins Guðmundssonar, og það
starf hafði hann á höndum til dauðadags.
Geta má þess, að Helgi Rafn átti sæti i
stjórn Kjötbúðar Siglufjarðar 1960-1963, i
stjórn Framleiðsluráðs landbúnaðarins
átti hann sæti frá 1973, i stjórn Mjólkur-
samlags Kf. Skagfirðinga frá 1973 og i
sláturhúsráði kaupfélagsins frá stcínun
þess. Hann átti sæti i stjórn Fiskiðju
Sauðárkróks frá 1973 og endurskoðandi
hennar nokkur ár þar á undan, formaður
stjórnar þess fyrirtækis varð hann 1978. 1
stjórn Kaupfélagsstjórafélagsins átti
hann sæti 1973-1975. Hann sat um tima i
Markaðsráði samvinnufélaganna og i
stjórn Tryggingalánadeildar samvinnufé-
laga. Hann átti sæti i stjórn Landflutninga
h.f. árum saman, stjórnarformaður i upp-
hafi og aftur 1981 til dauðadags. Helgi
Rafn var varamaður i stjórn Sambands
islenzkra samvinnufélaga um árabil til
dauðadags.
Auk framantalinna starfa hlóðust á
Helga Rafn ýmisleg trúnaðarstörf önnur,
og skulu þau helztu nefnd hér. Hann átti
sæti i stjórn Ungmennasambands Skaga-
fjarðar 1964-1972 og hafði áður unnið
nokkuð að iþróttamálum i Reykjavik.
Hann var formaður hátiðarnefndar sem
undirbjó minningarhátið um 100 ára bú-
setu á Sauðárkróki 1971. Formaður i
stjórn félagsheimilisins Bifrastar var
hann 1972-1973. Hann var formaður raf-
magnsveitunefndar Sauðárkrókskaup-
staðar 1966-1978. Þá ber að geta þess eigi
hvað sízt, að hann var formaður sóknar-
nefndar Sauðárkrókskirkju frá 1972 tii
dauðadags. Hann rækti það starf af mik-
illi alúð og dugnaði og átti þar með þátt i
að gera kirkjunni vmislegt til góða, enda
mun hann hafa verið einlægur trúmaður,
sem vildi sýna kristinni kirkju tilhlýðilega
virðingu.
Ungur hóf Helgi Rafn störf á vegum
samvinnuhreyfingarinnar, og aðalstörfin
i lifi hans —- hans skömmu ævi — voru
helguð samvinnuhreyfingunni. Þar hefir
hann ætið reynzt trúr og traustur liðsmað-
ur, enda hlaut hann trúnað i samræmi við
þá reynslu. Stjórnarmenn Kaupfélags
Skagfirðinga hafa góðar endurminningar
um Helga Rafn. Hann var góður félagi,
íslendingaþæiíir
sem gott var að starfa með: samstarf við
hann var ætið gott á stjórnarfundum,
skýrslur hans allar og málflutningur ein-
kenndust af skýrleika og góðum skilningi,
framsögn hans öll var skilmerkileg og
greindarleg. Helgi Rafn var framfara-
sinnaður og vildi hag og heiður Kaupfé-
lags Skagfirðinga i hvivetna. Hann hafði
forystu um ýmislegt, sem til framfara
horfði fyrir félagið, og átti þátt i ýmsum
framkvæmdum á þess vegum. Má þar til
nefna, að hann átti mikinn hlut að þvi
máli að byrjað var á að koma upp verzl-
unarhúsi og aðalstöðvum kaupfélagsins i
nýju stórhýsi, sem nú er i smiðum. Þá
skal þess og getið, að nú standa yfir mikl-
ar endurbætur og stækkun á húsakynnum
og vélakosti Fiskiðju Sauðárkróks. Fleira
mætti nefna, þótt fleira verði eigi greint
hér.
Helgi Rafn var gæddur andlegum hæfi-
leikum i bezta lagi. Hann var likamlega
vel á sig kominn og hafði til að bera hlý-
legt viðmót og geðþekka framkomu. Hann
var mikill atorkumaður, málafylgjumað-
ur góður oft og einatt, er á þurfti að halda,
og gat verið þungur á bárunni. Að minum
dómi hafði hann til að bera farsæla hæfi-
leika i starfi sinu sem kaupfélagsstjóri, og
tel ég félagið eiga mikils i að missa við
sviplegt fráfall hans.
Eftirlifandi kona Helga Rafns er Inga
Valdis Tómasdóttir, sem hann kvæntist
árið 1957. Hún er dóttir hjónanna Tómas-
ar Sigvaldasonar loftskeytamanns I
Reykjavik og Magneu D. Sigurðardóttur,
og er hún hin mætasta kona, enda hefir
hjónaband þeirra Helga og Ingu verið far-
sælt og gott. Þeim varð 5 barna auðið, og
eru þau eftirtalin: Trausti Jóel, f. 21. okt.
1958, Rannveig Lilja f. 6. marz 1960, Tóm-
as Dagur, f. 26. okt. 1961, Guörún Fanney,
f. 28. nóv. 1963, og Hjördis Anna, f. 8. ág.
1966.
Þungur harmur er nú kveðinn að fjöl-
skyldunni, og vill stjórn kaupfélagsins
votta þvi mæta fólki djúpa samúð sina. Og
Helga Rafni vill stjórnin af alhug þakka
dýrmæt störf hans fyrir félagið, og mun
þeirra lengi verða minnzt að verðleikum i
héraðinu.
Útför Helga Rafns Traustasonar fór
fram frá Sauðárkrókskirkju þriöjudaginn
5. þ.m., að viðstöddu miklu fjölmenni, og
var hún kostuö af Kaupfélagi Skagfirð-
inga i virðingar- og þakkarskyni við hinn
látna.
6. janúar 1982
Jóh. Salberg Guömundsson
+
Sjaldan hefur mér brugðið meira held-
ur en kvöldið 21. des. s.l. þegar ég frétti að
vinur minn og stéttarbróðir, Helgi Rafn
Traustason kaupfélagstjóri á Sauðárkróki
hefði látist á heimili sinu þá fyrr um
daginn. Það var skólabróðir og náinn vin-
ur Helga sem flutti mér þessa frétt. Ég
hef i löngu starfi lært að vera sem best
viðbúinn bæði góðum og slæmum fréttum.
Það er nauðsynlegt mönnum, sem fást við
fjölþætt verkefni og umgangast margt
fólk. En fráfall Helga Rafns nú i blóma
lifsins, þar sem hann stendur i broddi
fylkingar i stóru og umsvifamiklu kaup-
félagi, er okkur vinum hans og samvinnu-
fólki yfirleitt sem reiðarslag og þá fyrst
og fremst skagfirskum samvinnumönn-
um.
Þegar ég og Anna kona min stofnuðum
heimili árið 1949, tókum við á leigu ibúð að
Grettisgötu 82 i Reykjavik. Einmitt i þvi
húsi bjó Helgi og foreldrar hans, þá til-
tölulega nýflutt til borgarinnar vestan af
Patreksfirði. Helgi er þvi aðeins tólf ára,
þegar fundum okkar og hans ber saman
fyrst. Okkur fannst hann þá þegar
myndarlegur drengur og sérstaklega ein-
arðlegur og frjálslegur i allri framgöngu
af svo ungum pilti að vera.
Foreldrar Helga voru þau Trausti
Jóelsson vélstjóri og kona hans Rannveig
Lilja Jónsdóttir. Þegar við kynntumst
Helga, var faðir hans vélstjóri á togara.
A Grettisgötu 82 hafði fjölskyldan þá
komið sér vel fyrir og ástæðulaust annaö
fyrir unga piltinn Helga Rafn en að vera
bjartsýnn á framtiðina, en hann var eina
barn þeirra hjóna, Trausta og Rann-
veigar.
En skjótt syrti i lofti, Rannveig lést 17.
des. 1950, aðeins fertug að aldri og
skömmu seinna leggst faðir hans bana-
leguna. Á fermingardegi Helga Rafns var
það fyrsta verk hans, að lokinni ferm-
ingarathöfn i kirkju, að koma að sjúkra-
beði föður sins, sem þá iá á sjúkrahúsi.
Trausti lést 6. mai árið 1951, tæplega 42ja
ára að aldri.
Helgi naut þvi ekki lengi samvista við
foreldra sina og stóð ungur uppi foreldra-
laus. Hann mun að visu hafa átt náin
skyldmenni, sem hann hefur haft stuðning
af, en þvi máli er ég ekki kunnugur.
Ungum skildist honum þó, að hann varð
að standa á eigin fótum og treysta sinni
eigin dómgreind. Setti þetta m jög svo svip
sinn á Helga alla tið, enda varð hann fljótt
sjálfstæður i skoðunum.
A unglingsárum sinum vann Helgi á
sumrin hjá Kaupfélagi Patreksf jarðar, en
stundaði nám i Reykjavik á veturna.
Hann fór i Samvinnuskólann og lauk
þaðan prófi vorið 1955.
Að loknu Samvinnuskólaprófi hóf Helgi
störf hjá Samvinnutryggingum. Fyrst i
sjódeild, en siðan i bókhaldi, þar sem
hann vann til ársins 1960.
Árið 1957 kvæntist Helgi jafnöldru sinni,
Ingu Valdisi Tómasdóttur. Inga er ættuð
úr Reykjavik, ágætis myndarkona, sem
nú lifir mann sinn ásamt fimm börnum
þeirra hjóna, en þau eru: Trausti Jóel f.
1958, Rannveig Lilja f. 1960, Tómas Dagur
3