Íslendingaþættir Tímans - 13.01.1982, Page 15
Kristjón ©
þá gegnt þvi i 35 ár samfleytt, stundum
einn sins liðs, stundum við annan mann.
Eftir þessa löngu vist hjá forsetaembætt-
inu var Kristjón orðinn þjóðþekktur mað-
ur,flestirlandsmenn könnuðust við Krist-
jón á Bessastöðum, og ófáar eru myndirn-
ar þar sem hann sést standa einkennis-
Wæddur við forsetabilinn, þolinmóður og
reiðubúinn biðandi eftir húsbónda sinum.
Ef slikt er til einhvers ávinnings metið er
þvi engin hætta á að mynd Kristjóns
hverfi af oftnefndum sp jöldum sögunnar i
bókstaflegum skilningi þeirra orða.
Og mynd Kristjóns mun ekki heldur
hverfaúr huga þeirra sem honum kynnt-
ust. Persónulegir eiginleikar hans munu
sjá til þess. Vil ég þá öðru fremur nefna
hversu einlæglega hann gekk upp i starfi
sinu og hve mjög hann fann til þeirrar á-
byrgðar sem hann bar á lifi og limum for-
setahjóna og fjölskyldu þeirra og lét sér
vakinn og sofinn umhugað um velferð alls
þess fólks. Þá bar hann og virðingu stað-
arins á Bessastöðum mjög fyrir brjósti.
Allt þetta tók hann mjög alvarlega, svo að
mér er ekki grunlaust um að það hafi átt
sinn þátt i að á honum sáust slitmerki
nokkuð svo fyrir aldur fram. Ast hans á
starfi sinu og forsetasetrinu var mikil og
einlæg. Stundum heyrðist sagt að hann
ætti jafnframt til að vera nokkuð heima-
rikur þar á staðnum. En trúmennska
hans og háttvisi sem forsetabilstjóra var
óbrigðul og hjálpsemi hans^við forseta-
fjölskylduna á hverjum tima var óþrjót-
andi.
farið saman en um það má segja að við
erum sammála um velferðarmálin i fé-
lagsmálastörfum okkar þó að okkur
greini oft á um leiöir að settu marki.
Haukur er erfiður andstæðingur en heið-
arlegur. Hæfileikar hans og glöggskyggni
koma best i ljós i'litlum hópi, enda beitir
hann ekki lengur miklum ræðuhöldum.
Ég met Hauk mikils sem vin og nágranna
°g reyndar allthans fólk, og hin pólitiska
baráttta hefir ekki megnað að læða þar
kala á milli enda þótt oft sé fast deilt i ein-
stökum málum. 1 flokki sinum hefir
Haukur gegnt jímsum trúnaðarstörfum
°g heyri ég ekkiannað en að hann hafi þar
óskorað traust.
A þessum timamótum vil ég færa Hauki
heillaóskir og þökk fyrir samstarfið, og
væntum við sveitungar og vinir hans að
við megum enn njóta starfskrafta hans i
framtiðinni.
A seinni árum er bUskapur hans hefir
óregist saman hefir Haukur starfað sem
fangavörður i Reykjavik, og er hann gæt-
inn og vinsæll i þeim störfum hjá þeim
sem hlut eiga að máli, hvort heldur er um
að ræða verði laganna ellegar hina, sem
verður eitthvað á i samfélaginu.
L-if heill.
J.M.G.
HUsbóndahollusta var aðalsmerki
Kristjóns Kristjánssonar. Þess er mér
ljúft að minnast nú þegar ég hugsa til
langra samvista okkar á Bessastöðum. _
Ég og fjölskylda min kveðjum dyggan
þjónustumann með þakklæti og vinarhug.
Konu hans og heilladis, Guðbjörgu Þor-
steinsdóttur, og allri fjölskyldu þeirra
sendum við samUðarkveðjur.
Kristján Eldjárn
t
Kristjón Kristjánsson fyrrum forseta-
bilstjóri andaðist á Sólvangi Hafnarfirði
18. desember 1981 73 ára að aldri.
Kristjón var fæddur 25. september 1908
að Traðarbúð i Staöarsveit. Foreldrar
hansvoru hjónin Danfriður Brynjólfsdótt-
ir og Kristján Pálsson. Þau eignuðust 17
börn og Kristjón fimmti i röðinni.
Ungur að árum fluttist Kristjón til
Reykjavikur og gerðist atvinnubilstjóri á
Bifreiðastöð Steindórs og siðar á BSI. Sið-
an fluttist hann að Bessastöðum og gerö-
ist bifreiðastjóri þar 1941-1976.
Kristjóni varð 5barna auðið, elsta dótt-
irinKristinerbUsett i Ameriku. Hann var
tvikvæntur. Með fyrrikonu sinni átti hann
einn sonPál Braga, hann er kvæntur Stef-
aniu Pétursdóttur og eiga þau fjögur
börn. Seinni kona hans er Guðbjörg Þor-
steinsdóttir ættuð frá Vestmannaeyjum,
og áttu þau þrjU böm : Steinu Kristinu gift
Lárusi Jóhannssyni, eiga þau tvær dætur,
Danfriði heitbundna Sverri Jónssyni, eiga
þau einn son og Kristján Brynjólf, sem
léstl4. janUar I981,aðeins 18 ára aðaldri.
Viö hugsum til Guðbjargar og barnanna
og þökkum þeim hvað þau hafa reynst
honum vel i' hans veikindum.
Margserað minnastog margt að þakka
þegar viö kveðjum Kristjón, svo vel
reyndist hann okkur alltaf.
Astvinum öllum færum við á þessari
stundu samúðarkveðjur og biðjum þeim
allrar blessunar.
Við minnumst Kristjóns með hlýhug og
virðingu. Blessuð sé minning hans.
Fjölskyldan Sólheimum 32,
Rcykjavik
t
Kristjón I.Kristjánsson var forsetabil-
stjóri þpu 16 ár sem við þekktum til á
Bessastöðum. Raunar var hann miklu
meira en bilstjóri, þvi að með réttu má
segja að hann hafi borið velferð staöarins
svo fyrir brjósti, að hann vann það sem
gera þurfti, eins og góður bóndi búi sinu.
Hann unni staðnum og forsetaembættinu
og gaf þeimaf heilum hug alla sina starfs-
orku um meir en þriggja áratuga skeið.
Kristjón réðst sem bilstjóri til Sveins
Björnssonar rikisstjóra árið 1941. Stai faði
hann sioan osnúo a Bessasiöðum i tið
þriggja forseta, þeirra Sveins Björnsson-
ar frá 1944 til 1952, Asgeirs Asgeirssonar
frá 1952 til 1968 og Kristjáns Eldjárns frá
1968 til 1976, en þá lét Kristjón af störfum.
Við vorum enn á bernskuskeiði, er við
kynntumst Kristjóni, þegar afi og amma
fluttust tii Bessastaða. Kristjón tók okkur
þá strax eins og hann ætti i okkur hvert
bein og spjallaði við okkur eins og gamla
félaga. Hann var glettinn og talaði tæpi-
tungulaust. Hann sýndi okkur slikt traust,
að við kepptumst við að fá að ganga i verk
með honum. Þessi vinátta treystist enn,
þegarsonur Kristjóns bættist i hópinn. Þá
eltu fjórir strákhvolpar Kristjón hvert
sem hann fór, og hafa eflaust þvælst fyrir
og truflað verkmanninn að störfum. En
aldrei brást þolinmæði Kristjóns og alltaf
hafði hann lag á að láta okkur verða að
liði. Það var okkur holl lifsreynsla að
kynnast þvf, hvernig þessi maður vann,
natni hans og hugulsemi við hvert verk.
Hann var sivinnandi allt þaö sem honum
þótti stuðla að sóma og reisn staðarins.
Greiðvikni og hjálpsemi Kristjóns var
viðbrugðið.
Kristjón var mikill bóndi i sér. Hann
hafði yndi af skepnum og sérstakt lag á að
umgangast þær. Nokkrar kindur átti
hann, sem hann hirti ásamt kindum afa.
Þeim, sem komu i fjárhúsið bar saman
um að vart sæju þeir annars staðar vænna
fé eða betur hirt. Margar voru ánægju-
stundimar sem við áttum með Kristjóni i
tóndastússi og i fjárhúsinu, þegar hann
dyttaði að jötum og grindum. Allt varð
snyrtilegt og haganlegt, sem hann fór
höndum um.
Við vorum tiðir gestir á heimili Krist- ■
jóns, þar sem hans ágæta kona, Guðbjörg, j
reiddi fram góðgerðir i slsvanga strák-
ana. Þau bjuggu fyrst i litilli risibúð á
„Búinu” sem svo var kallaö, en fluttust
siðan i nýtthús, er reist var þar i grennd.1
Heimili þeirra Guðbjargar varsmekklegt
og hlýlegt,og virtust þau hjóninbæði hafa
sama metnað fyrir hönd forsetaembættis-
ins og reisn Bessastaða.
Of t heyrðum við afa og ömmu tala um
að Kristjón væri ómetanlegur fyrir
Bessastaði. Traustariog samviskusamari
ráðsmann var ekki hægt aö fá.
Asgeir, Sigurður og Sverrir.
Þeir sem skrifa
minningar- eða af-
mælisgreinar i ís-
lendingaþætti, eru
eindregið hvattir til
þess að skila vélrit-
uðum handritum.
íslendingaþættir