Heimilistíminn - 03.04.1975, Blaðsíða 3
ALvitur. ,
svaiar brétum
Svar til Námfúsu
Næpunar:
Þú færö allar upplýsingar scndar til
þín, ef þær eru þá ekki þegar komnar,
frá réttum aðilum Stöðugir baugar
undir augunum geta tæpast stafað af
of miklum svefni. Skriftin ber vott um
að þú skrifar ekki mikið, en hún er vel
læsileg og rétt. Sennilega ertu ekki
gefin fyrir að trana þér fram.
Alvitur
Kæri Alvitur!
Mér finnst þessi þáttur góður og
vonast þess vegna eftir góðu svari frá
þér. Þannig er mál með vexti, að
augnahárin bókstaflega hrynja af
mér. Ég er ailtaf með flösu í þeim og
þegar ég hreinsa hana úr, koma hárin
með. Þetta er mjög ljótt og ég er alltaf
með eldrauða hvarma ef gola er. Ég
hef ekki málað mig um augun I hálft
ár, en það virðist ekki skipta máli. Er
hægt að fá eitthvaö flösueyðandi krem
á augnahár? Hvaö lestu úr skriftinni
og hvað heldurðu að ég sé gömul.
Ein augnaháralaus.
Svar: Ég er alls ekki viss um að þetta
sé flasa og þori ekki að gefa nein ráð
nema það að fara til læknis. Ég les úr
skriftinni, að þú sért dugnaðarforkur
hinn mesti og líklega ertu 17-18 ára.
Alvitur.
Kæra blað.
Ég er að hekia kringlótta púðann í 5.
tbl og mynstrið kemur ekki rétt út.
Skekkjan er i 8. umferð eða svo, að ég
held. Geturðu leiðrétt þetta fyrir mig?
Helga.
Svar: Það er búið að fara yfir upp-
skriftina og það er að minnsta kosti
ekki prentvilla i henni, svo hún hlýtur
þá að vera skökk frá upphafi. En lik-
lega ertu annaðhvort búin með
púðann, eða hætt við hann, þegar þetta
birtist. Alvitur.
Kæri Alvitur!
Ég ætla að byrja á þvi að þakka þér
allt gamalt og gott, sem komið hefur i
blaðinu. Ég er hérna með nokkrar
spurningar, sem ég vona að þú getir
svarað:
1. Getur þú sagt mér heimilisfang eða
einhvern stað, þangað sem ég get
skrifað til Bill Bixby, sem leikur töfra-
manninn i sjónvarpinu?
2. Hvaða menntun þarf til að verða
lögreglumaður? Er eitthvert sérstakt
aldurstakmark?
3. Or hvaða merki eiga stelpuljón að
velja sér maka og hvað er happalitur
ljónsmerkisins?
4. Hvernig er skriftin?
Ein I vanda.
Svar: Þvi miður hef ég hvergi rekizt á
upplýsingar um Bixby, en það má
reyna að skrifa til framleiðanda
myndflokksins. Utanáskriftina sérðu
væntanlega i lok hvers þáttar ef að
llkum lætur.
2. Til að verða lögregluþjónn þarf að
útskrifast úr Lögregiuskólanum i
Reykjavik. Aldurstakmörk eru 20 til 30
ár og krafizt er gagnfræðaprófs.
3. Or krabbamerkinu, meyjarmerkinu
eða vatnsberamerkinu. Litur ljóns-
merkisins er gulur.
4. Skriftin og stafsetningin er ágæt, þó
finnst mér skriftin likjast forskriftinni
úr skólabókunum einum of. Þig vantar
kannski þjálfun.
Alvitur.
svar til K.S.R. Það þarf stúdentspróf
til handavinnukennaranáms. Vatns-
berastrákur og tviburastelpa geta
hæglega verið ástfangin alla ævina,
þótt þau liti ekki alla hluti sömu aug-
um. Ég les barnaskap og fljótfærni úr
skriftinni og stafsetningin er nokkuð
góð, (vonandi skrifarðu nafniö á
heimabæ þinum venjulega rétt).
Alvitur.
AAeðal efnis
í þessu blaði:
FranzLiszt............................Bls. 4
Hvað veiztu?............................ — 7
Þegar Lási lest fór í veizlu............ — 8
Rodney —sexára stjarna.................. — 11
Pop — Johnny Rivers..................... — 12
Ég er hamingjusöm nútímakona............ — 13
Einkastjörnuspáin ...................... — 16
Spé-speki .............................. — 19
Börnin teikna .......................... — 20
Þegar frænku langaði aðdansa............ — 22
Sittaf hverju í svanginn................ — 25
Þannig litur lygi út................... — 28
Eruþæreins? ................... —30
Heimatilbúin handsápa.................. —30
Móðirmin, Ijóð......................... — 30
Ljótu karlarnir........................ — 31
Ferðir Marco Polo....................... —32
Pabbi, mamma og börn, f rh.saga
barnanna............................... — 33
Endurf undir, frh.saga.................. —35
Ennf remur krossgáta, Alvitur svarar, pennavin-
ir, skrítlur og fleira.
3