Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 4

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 4
Fræg tónskáld og konur þeirra: Franz Lizst — hreifst af ráðríkum konum ÞAÐ var ekki fyrr en hljóð varð i áheyrendasalnum, að hann gekk inn á sviðið. Hægt og þegjandi dró hann af sér hanzkana, lét þá falla kæruleysislega á gólfið og settist við pianóið. Hann neri saman löngum, grönnum fingrunum, strauk höndinni gegnum hárið, neri fingrunum aftur saman og byrjaði siðan loks að spila. Þegar hann spilaði, endurspeglaði and- lit hans tónlistina — stundum brosti hann, stundum horfði hann reiðilega niður á hljómborðið. Hann sló aldrei rangan hljóm og lék ótrúlega erfið verk eins og þau væru það auðveldasta sem til væri. Þegar hann hafði lokið verkinu, var hann vanur að sitja kyrr um stund, uppgefinn. Siðan tók hann á móti fagnaðarlátunum og yfirgaf sviðið með dauflegt bros á vörum. Áheyrendur einkum þó kvenþjóðin voru einnig hálf uppgefnir eftir hljómleikana. Franz Liszt var ekki aðeins frábær pianó- leikari, heldur kunni hann að ná áheryrendum á sitt vald með heillandi persónuleika sinum. Margt fólk sagði, að hann hefði hreint eins og sá vondi sjálfur, eins og sagt var um fiðlusnillinginn Paganini. Annað fólk vissi að hann var upprunninn á sléttum Ungverjalands, þar sem sigaunar flökkuðu um og léku villta tónlist sina i bjarma varðelda og sumir töldu, að hann væri af sigaunum kominn — tökubarn. Vissulega hafði hann heyrt sigauna- tónlist sem barn. Faðir hans, Adam Liszt var bústjóri á herragarði Esterhazy fursta og fjölskyldan bjó i litlu þorpi. En þegar Franz var ellefu ára, fór faðir hans með hann til Vinar, til tónlistarnáms. Hann hafði þegar leikið á pianó fyrir furstann og hóp aðalsmanna, sem kom siðan saman um að kosta nám hans i planóleik og tónsmiðum. Eftir eitt ár i Vin fór fjölskyldan til Parisar.A þessum tima, — um 1820 —var Paris miðstöð evrópsks tónlistarlifs. Upp frá þessu átti Paris eftir að vera heima- borg Liszts og Frakkland föðurland hans. Hann lærði frönsku fullkomlega, gleymdi móðurmáli sinu og kunni siðar meir að- eins nokkrar, illskiljanlegar setningar á ungversku. Hann nam pianóleik og tónsmiðar, en hann var þegar orðinn mikill planóleikari, undrabarn. í æsku gekk hann óreglulega i skóla og átti aldrei vini á sama aldri og hann sjálf- ur. Að miklu leyti var það þetta sem olli þvi, að hann varð hæglátur mjög og inn- hverfur. En þrátt fyrir það, sagði faðir hans við hann á banasænginni nokkur orð, sem áttu eftir að standast. Þá var Franz 16 ára. Mörgum árum siðar skrifaði Franz vini sinum: — Hann sagðist vera hræddur um að konur yrðu mér vandamál I lifinu og hefðu mig á valdi sinu. Undar- legt að hann skyldi sjá þetta fyrir, þvi þá vissi ég tæplega hvað kona var. En hann komst fljótlega aö þvi. Eftir dauða föðurins kom Franz móður sinni fyrir I þægilegri Ibúð I Paris og tók að vinna fyrir þeim báðum. Milli hljóm- leika kenndi hann á pianó og uppgötvaöi að einhver ósköp af ungum stúlkum höfðu fengið áhuga á pianóleik. Einn nemenda hans, Coroline de Saint-Cricq, var rétt 16 ára. Þau léku saman og hún kenndi honum auk þess að meta ljóö og lét hann lesa allar eftirlætis- bækur sinar. Þegar móðir Caroline lézt, tengdust þau fastari böndum, en þegar faðir hennar komst að þvi að pianótimarnir stóðu fram undir morgun, þakkaði hann Liszt kærlega fyrir og sparkaði honum á dyr. Caroline átti að giftast d’Artigaux greifa, sagði hann. Verum hvort öðru allt! Þetta var mikið áfall fyrir veslings Liszt. Hann sneri baki við tónlistinni um tima og gældi við þá hugmynd að gerast Franz Liszt hinn ungi varð eftirlæti allra kvenna. 4

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.