Heimilistíminn - 03.04.1975, Page 7
öllum trúarsetningum hans til að verða
ástmær hans. Hún var lika ráðrik og
viljasterk kona, eins og Marie og
prinsessan. Liszt tókst ekki að slita sam-
bandi þeirra fyrr en hún hótaði að myrða
hann.
Eftir þetta virðast öldurnar hafa farið
að lægja I ástamálum Liszts, en þó skorti
hann aldrei ungar stúlkur sem nemendur
og allar dáðu þær hann. Sú staðreynd, að
hann gekk yfirleitt i svörtum prestakufli,
skipti engu máli, hvorki fyrir hann né
þær.
Árið 1866 fór Liszt til Bayreuth til að sjá
óperu vinar sins Wagners, „Tristan”. 1
lestinni var ungt og ástfangið par, sem
endilega vildi hafa opna gluggana til að
Carolyne von Sayn-Wittgenstein
prinsessa reyndi um árabil að fá skilnað
frá manni sinum til að geta gifzt Lizst.
OG
njóta landslagsins betur. Þau tóku ekki
eftir prestinum, sem sat skjálfandi úti i
horni. Franz Liszt lézt úr lungnabólgu
nokkrum dögum siðar.
I Ð
ri
HVAÐ VEIZTU
L_____________________________á
1. Hvernig er hreinn brennisteinn á lit-
inn?
2. Hvaða Iistmálari skar af sér eyrað i
æðiskasti?
3. Ein af sónötum Beethovens heitir
Appasionata. Hvað þýðir það orð?
4. Hvernig er fjórða boðorðið?
5. Hvar er Guia hafið?
6. Hvað hét konan, sem Gunnlaugur
ormstunga clskaði?
7. Hvaða dýr nær hæstum aldri?
8. Eftir hvern er Silungakvintettinn?
9. Hver hét upprunalcga Norm Jean
Baker?
10. Hver er léttasta viðartegund, sem
til er?
Hugsaðu þig vandlcga um — en svörin
er að finna á bls. 39.
— Nei, þetta cr ekki mynd af mér. Þetta er mamma, þegar hún var á
mlnum aldri.
7