Heimilistíminn - 03.04.1975, Page 9

Heimilistíminn - 03.04.1975, Page 9
þú komið, Lási lest? Veizlan byrjar klukkan tvö og stendur sennilega til kukkan fimm. — Geturðu komið spurði Kalli kanina og leit upp á Lása. — Ég má eiginlega ekki fara út úr húsinu minu einn, en ég á fri á sunnudaginn og skal reyna að læðast út dálitla stund, svaraði Lási. — Gott, sagði Kalli og stökk svo inn i skóginn aftur. Þegar Pétur kom aftur, sagði Lási honum ekkert frá því að hann hefði talað við kaninuna á teinunum. Pétur setti i gang og þeir héldu ferðinni áfram gegn um skóginn. Á hverjum degi þá vikuna var Lási að hugsa um veizl- una, á meðan hann ók gegn um skóginn frá Litlabæ til Stóruborgar og frá Stóruborg til Litlabæjar. Loks kom sunnudagurinn og Lási stóð inni i eimreiðarhús- inu sinu og beið þess að klukk- an yrði hálf tvö, svo hann gæti lagt af stað i veizluna. Á minútunni hálf tvö, lagði hann af stað. Varlega ýtti hann upp hurðinni og gægðist út. Nei, það var enginn i grenndinni og hann renndi sér eins hægt og hljótt og hann gat út svo enginn heyrði til hans. Sem betur fór, voru hjól- in vel smurð, svo enginn heyrði til hans. Hann renndi sér varlega framhjá stöðvar- húsinu þar sem Pétur átti heima og brátt var hann kom- inn inn i skóginn og enginn sá til hans lengur. Hann jók hrað- ann og flautaði eins og hann gat af eintómri ánægju. Lási fór lengra og lengra inn i skóginn og loks kom hann þangað, sem Kalli kanina hafði hitt hann á teinunum. Beggja megin teinanna stóðu nú dýrin i röð og biðu hans. — Velkominn! hrópuðu þau i kór, þegar hann hemlaði og nam staðar hjá þeim. Björninn steig fram, þvi hann átti að bjóða gestinn vel- kominn með ræðu. — Kæri Lási lest, byrjaði hann. — Við dýrin i skóginum erum ákaflega glöð yfir að þú gast komið i veizluna okkar. Við höfum séð þig draga alla vagnana hérna fram hjá og 9

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.