Heimilistíminn - 03.04.1975, Page 11

Heimilistíminn - 03.04.1975, Page 11
Rodney sex ára stjarna — elskaður um öll Bandaríkin Hann er milljónamæringur i dollurum, sá yngsti I heiminum sem hefur orðið það af eigin starfi. Upphafið var það, að hann var valinn til að borða hamborgara i aug- lýsingakvikmynd. Hann gerði það af svo mikilli innlifun, að áður en hann vissi af, var hann orðinn frægur. Fólki I skemmti- iðnaðjnum skildist að ný stjarna hafði bætzt i hópinn. Nú hefur hann verið i ótal auglýsingamyndum, komið fram sem gestur i vinsælustu sjónvarpsþáttunum þar vestra, sungið inn á plötu og leikið i fyrstu alvöru kvikmyndinni. Faðir hans er götusópari og hefur 90 dollara á viku i laun. Móðir hans heitir Flossie og er bezti vinur hans. Hann á tvö systkini. — Ég gæti hætt að vinna og lifaö af tekjum Rodneys, segir faöir hans, — en það væri ekki rétt. Ég hef séð fjölskyld- unni ágætlega farborða alla tið og þetta gengur áreiðanlega lika framvegis. Tekj- ur Rodneys eru lagðar i sjóð, þvi ,ég vil að börnin min njóti allra möguleika, sem þeim bjóðast. Þegar hefur komið i ljós, aö Rodney er ekki aðeins listamaður frá náttúrunnar hendi, heldur einnig kaupsýslumaöur. Þegar börnin i götunni eöa skólafélagarn- ir vilja að hann syngi fyrir þau, krefst hann 10 centa af hverjum, áöur en hann opnar munninn. Þegar hann var að syngja inn á plötu nýlega, sagði stjórnandinn eftir að þeir höfðu lengi glimt við ákveðna hljóma: — Þú færð dollar, ef þú getur það næst. — Láttu mig fá tvo, þá get ég það áreið- anlega, svaraði snáöinn. Mamma er nú best af öllum. 11 ..Taktu lifinu svolitiö léttar,” stendur á skyrtunni hans.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.