Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 12

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 12
ÞEGAR Johnny Rivers kom aftur fram á tónlistarsviðið I árslok 1972 var honum vel fagnað. Þá hafði hann ekki komið fram I eitt ár. I fyrsta lagi hafði hann langað til að hvila sig eftir þreyt- andi liferni og i öðru lagi ætlaði hann að komast að þvi hvort hann ætti að gera tónlist að ævistarfi sinu. Hann ákvað að gera það og sneri aftur með plötuna „Blue Suede Shoes” og LP- plötuna „L.A. Reggae”. Þeim var báðum vel tekið og fólk tók að hlakka til að fá meira. Rivers lagði upp i mikla hljómleika- ferð um Evrópu og gekk vel. Gamlir og nýir aðdáendur létu ekki á sér standa að fagna honum, en einhvern veginn staðnaði þetta svo allt saman. Fleiri plötur hafa ekki komiö frá Rivers, en vera kann, að það sé tima- bundið ástand. Johnny Rivers fæddist 7. nóvember 1942 í New York. Hans rétta nafn er Johnny Ramistella. Þriggja ára fluttist hann með fjölskyldu sinn til Baton Rouge i Louisiana og þar lærði hann að spila á gitar. Hann er að öllu leyti sjálflærður. A skólaárunum kom hann fram með eigin hljomsveit viö ýmis tækifæri, en 17 ára gafst hann upp á skólanum, pakkaði niður og fór til Nashville og sfðar til New York. Á þessu timabili tók hann að skrifa, en sú framleiðsla hafnaði I skúffu. Æðsta ósk hans var aö verða plötufram- leiðandi og 1960 fluttist hann til Los Angeles f von um slikt starf, en mörg ár liöu, áður en sú ósk rættist. Það var ekki fyrr en hann stofnaði eigið plötufyrirtæki. En áður en hann komst svo langt, náði hann miklum vinsældum á sviði. Það byrjaði af tilviljum 1963, þegar eigandi litils næturklúbbs bað hann að hafa ofan af fyrir gestunum. Honum tókst vel og fékk siðan ótal tilboð úr öllum áttum, og ekki leið á löngu, unz hann fékk plötusamning. Velgengnin hélt áfram. Johnny Rivers fékk gullplötur fyrir „Memphis”, „Maybelline” og „Mountain of iove” og samdi heil ósköp af lögum og teiíSlim. Þekktustu LP-plötur hans eru: „Live At The Whiskey A Go Go,” „The History Of Johnny Rivers”, „Johnny Rivers Superfack”, „Home Grown”, „Portrait” og sú siðasta „L.A. Reggae”. Johnny Rivers 12

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.