Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 14

Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 14
að leita að fötum með tiu ára gömlu sniði til að henta slæmum fjárhag Helenar og aðstöðu. Þannig klæðnaður sagði Alison að hentaði sér ekki. Annars segist hún hafa litlar áhyggjur af fötum. Svo lengi sem hún hefur eitthvað til að fara i (þarf þó helzt að vera sitt), er henni nokkuð sama, hvernig það litur út. Einangraði sig Það sem skiptir hana mestu máli er litla dóttirin, sem þau hjón eignuðust i júli sl. eftir sjö ára hjónaband. Eiginmaður- inn er Stephen Fagan, 31 árs, ári eldri en Alison sjálf. — Með Harriet rættist margra ára draumur okkar. Hún var eins velkomin og nokkurt barn getur verið. Kannski lika vegna þess, að ég missti fóstur meðan verið var að taka upp Helen. Það tók mjög á mig og ég ákvað að hafa það rólegt, ef ég yrði barnshafandi aftur. Það gerðist svo um það bil mánuði eftir að upptökunum var lokið, og þá einangr- aði Alison sig næstum eins og Sophia Lor- en. Þegar Harriet fæddist, var ákveðið hvað hún átti að heita. — En ef það hefði verið sonur? — Tom. Vonandi getum við notað það næst, eða þar næst, þvi við viljum eignast að minnsta kosti þrjú börn. Jarðskjálfti í Japan Þegar Alison var 18 ára, fór hún á leik- listarskóla. Þegar hún hóf námið, hafði hún engan brennandi metnað, en áhuginn óx smátt og smátt. Hún kom fyrst fram þremur árum siðar, i skozku leikhúsi. Sið- an hefur hún staöið á mörgum leiksvið- um, en fyrsta verkefni hennar i sjónvarpi var 1970. Það sjónvarshlutverk, sem gerði hana fræga, var flokkur BBC „Roads to Freedom”, og auk þess hefur hún vakið eftirtekt sem meðlimur i Konunglega Shakespeare-leikfélaginu. — Ég hef farið i leikferðir utan með fé- laginu nokkrum sinnum, segir Alison. — Einu sinni vorum við i Japan, og Stephen var með. En hann var heima á hótelinu, þegar jarðskjálftinn kom. Ég var á svið- inu, þegar allt tók að hristast. En við hættum ekki, þótt nokkrir i salnum stæðu og færu. Það er liklega eitthvað af leik- araandanum. Maður gefst ekki upp, þótt maður fótbrotni á sviðinu, tekur varla eft- ir þvi. Gestirnir komu inn aftur, og við héldum áfram. En á eftir sagði Stephen, að lyftugöngin i hótefinu hefðu skekkzt svo, að siðan þurftum við að nota stigana. Atvinnulaus Þessa stundina er Alison Fiske atvinnu- laus, og hefur ekkert á móti þvi. Harriet litla heldur henni heima, en þó viðurkenn- ir Alison, að hún geti hugsað sér að fara að gera eitthvað bráðlega. Helzt vill hún standa á leiksviði og hafa samband við á- horfendur, en slikt fæst ekki gegnum sjón- varpið. Tulley-fjölskyldan úr sjónvarpinu: Helen, Frank, Chris og Diana, meðan þau voru enn öll saman. Þegar að þvi kemur að Alison fer út að vinna, verður Stephen heima og sér um Harriet. Hann skrifar fyrir leikhús og sjónvarp og þarf ekkert nema ritvél og pappir til vinnu sinnar. Hann hefur aldrei samið neitt sérstaklega fyrir Alison, og veit ekki hvort hann gerir það heldur nokkurntima. — Stephen er miklu húslegri í sér en ég, viðurkennir hún. — Þegar við vorum að taka upp Helen i Kent, kom ég oft heim seint á kvöldin, og þá hafði Stephen til kaffi eða te og eitthvað að borða. Hann var stórkostlegur, meðan á þessu gekk. Alison sýnir öll merki þess, að hún sé hamingjusöm i hjónabandi sinu, andstætt þvi sem Helen var, — Heldur þú að þú hefðir farið að eins og Helen, ef þú hefðir lent i hennar að- stöðu? — Já, það held ég. Helen var heiðarleg. Hún reyndi ekkert til að breyta aðstöðu sinni. Hún gerði sér grein fyrir að hún yrði að vera ein, vegna þess að Frank hafði verið henni ótrúr. Þó svo að hann skildi litið, og alls ekki afleiðingar þessa hliðar- spors hans. — Finnst þér Helen hafa verið of hörð? — Ekki við hann. Hann átti ekki skiliö að vera tekinn i sátt aftur. Hann lék tveimur skjöldum, án þess að gera sér grein fyrir að það særði Helen. Þetta var honum sjálfum að kenna. Alison veltir upptökunum á Helen svó- litið fyrir sér og man vel smáatriðin: — í fyrsta þættinum átti Frank að slá mig ut- 14

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.