Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 16

Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 16
Einkastjörnuspáin 27. marz Þú ert framsýnn og raunsær í eöli þfnu og fyrsta flokks skipuleggjandi, en kærir þig helzt ekki um aö vinna aö einhverjum smáatriðum, þau læturðu öðrum eftir. Gættu þess bara, að það fólk, sem þú felur verkefni, sé fært um að valda þeim. Sé ekki svo, getur endirinn orðiö sá, aö þú þarft sjálfur að vinna verkiö, og það er slæm lausn á málinu. Góður leiðtogi veit, hverja hann á að velja og hvaða verk hann á að fela þeim. Þú ert glaðlyndur og þykir gaman af alls kyns skemmtunum. Þér liður alltaf bezt, þegar þú ert umkringdur fólki sem hefur sömu áhugamál og þú. Þú nýtur þess aö deila velgengni þinni með öðrum og ert alltaf viss um að eiga enn það bezta til góða. Þú hefur gott lag á aö græöa pen- inga og á það einkum við á sviði verzlunar og auglýsinga. Þú nýtur þess að ferðast og munt að likindum fara til margra fjar- lægra landa um ævina. Tilfinningar þínar eru sterkar og þú gerir miklar kröfur til þeirra sem þú elskar. Þú getur gefið mik- ið, en vilt skilyrðislaustfá eitthvaö f stað- inn. Ef þú ert mikið einn, áttu vanda tii þunglyndis og þess vegna væri skynsam- legt af þér, að ganga snemma I hjónaband og eignast stóra fjölskyldu. Þú ert einstaklega frumlegur i þér á öll- um sviðum, en áhugamálin eru flest á andlega sviðinu, þótt þú sért búinn þeim hæfileika að geta aflaö þér fjár. Sjaldan fer þetta tvennt saman, en þegar svo er, er viökomandi tryggð velgengni. Þú getur ekki aöeins framkvæmt eigin hugmyndir, heldur og annarra. Þú hefur gaman af ferðalögum og vilt heimsækja sem flest lönd heimsins. Sérstakan áhuga hefurðu á Austurlöndum og lfklegt er að þú dveljir þar mikið. Sálræn fyrirbæri heilla þig og þú vilt gjaman fá tækifæri til að kanna þau. En það eru aðeins þeir allra nánustu, sem þekkja þessa hlið á þér. Konur fæddar þennan dag, eru mjög uppfinningasamar og framkvæma ævinlega samkvæmt eigin hugboði, en aldrei að þaulhugsuðu máli. Þegar þú hittir nýtt fólk, gerirðu þér strax grein fyrir, hvort þér likar við það eða ekki. Ef til vill finnurðu enga ástæðu fyrir hvoru heldur sem er, en samt sem áður stendurðu ósveigjanlegur á skoðun þinni. Þú átt ekki i vandræðum með að gera notalegt f kring um þig og maki þinn og böm munu verða allrar ástúðar aðnjót- andi af þinni hálfu. Þú hefur mikla framkvæmdaþörf og óþrjótandi orku og notar þetta til að vinna þau verk, sem þér eru falin. Karlmenn fæddir þennan dag, hafa einkum áhuga á stjómmálum. Það er undir þér komið, hvaö þú kemst yfir mikið, en ef þú vinnur að hlutunum á stærri mælikvarða, nærðu áreiðanlega hárri stööu i þjóðfélaginu sem heild, en ef þú takmarkar þig við litið samfélag, verðuöu mikill maður á litlum stað. Þar sem persónuleiki þinn dregur aö þér fólk, eignastu marga vini og heldur flestum þeirra alla ævina. Þú hefur samúö með ööm fólki og vilt hjálpa þvf eins og þú getur. Þú ert þolinmóður og skilningsríkur gagnvart göllum annarra, þó skiptiröu þér ekki mikið af lötu fólki. Þú skammar heldur aldrei þann sem ger- ir vitleysu. Tilfinningar þfnar eru nálægt yfirborð- inu og eitt það fyrsta, sem þú þarft að læra, er að halda þeim i skefjum, ef þú vilt komast áfram. Draumar þinir eru mjög fjörugir og þar se'm þeir skipta oft máli, er mikið undir þvi komiö, að þú leggir þá á minnið. Þú getur fengið aðvaranir um slys og óhöpp gegnum drauma þina. 16

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.