Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 17
Þótt þú viljir umfram allt að allir hlutir
séu i röð og reglu og á sinum stað, máttu
ekki láta frumleika þinn gjalda þess.
Þegar þú loksins hefur það af að gera eitt-
hvað sem verða mætti undirstaða starfs á
sviði bókmennta, tónlistar,myndlistar eða
visinda, ertu kominn langleiðina til
frama. Versta skyssa, sem þér getur orð-
ið á, er að fara eftir venjulegum og við-
teknum leiðum. Það getur drepið beztu
listahæfileika.
Þú ert rólyndur að eðlisfari, og það ger-
ir þér kleift að yfirvinna vonbrigði og
halda áfram. Þú ert fyndinn og aðlaðandi
persónuleiki og eignast fljótt vini, þvi fólk
dregst að þér frá fyrstu stundu. Konur
fæddar þennan dag, hafa hönnuðarhæfi-
leika og geta orðið sérlega góðir innan-
hússarkitektar. Ef þú nýtir ekki þessa
hæfileika i starfi, gerirðu það heima fyrir
og i klæðnaði þinum. Þig langar til að eiga
mikla peninga og ert fremur sparsamur.
Það er ágætt út af fyrir sig, en þú ættir að
læra að láta peningana vinna fyrir þig,
þannig að þeir færi þér meiri peninga.
Liklega er óþarfi að segja þér, að þú ert
sérlega góður skipuleggjandi og færð pen-
inga úr hverju fyrirtæki, sem þú tekur að
þér.
31. marz
Bæði konur og karlar sem fædd eru
þennan dag, eru sérstakir persónuleikar.
Bæði eru þau hagsýn og jafnvel ófyrirleit-
in i hagsýninni. Karlmennirnir beita
kröftum sinum til að gera eitthvað
sérstakt i starfi og konur vilja komast i
fremstu röð i samfélaginu. Karlar hafa
gott minni á manneskjur og staðreyndir
og nota það til að vinna verkin frá upphafi
til enda. Þeir verða gjarnan háttsettir
verkstjórar, stjórnmálamenn eða
iðnaðarmenn.
Konur nota gjarnan hæfileika sina i
sambandi við ástina eða til að öðlast
frægð á leiksviði. En framinn verður þó
alltaf i öðru sæti i lifi þeirra. Góður eigin-
maður, ef til vill auk þess auðugur og
metnaðargjarn, eigið heimili og fjöl-
skylda er það sem stendur efst á óska-
listanum og liklegt er að konur fái óskina
uppfyllta á unga aldri.
Þar sem þær eru aðlaðandi, verða þær
eftirsóttar, bæði sem gestir og gestgjafar,
og það eru einmitt þeir eiginleikar sem
karlmenn kjósa að kona sin hafi, ef hún á
að hjálpa honum sem hraðast upp mann-
virðingarstigann.
Bæði kynin verða þó að gæta sin á einu,
en það er að gagnrýna minna það fólk,
sem hugsar og framkvæmdir öðru visi en
þau sjálf. Ef gagnrýnin er leiðbeinandi, á
hún rétt á sér, en að öðrum kosti virðist
hún leit að göllum og þá verða fjand-
mennirnir fleiri en vinirnir.
30. marz
Stjörnurnar hafa gefið þér einstaka list-
ræna hæfileika og þar sem þú getur lika
lagt hið ótrúlegasta að þér til að fram-
kvæma það, sem þú ætlar þér, muntu
veröa tekinn fram yfir eldri starfsfélaga
þina, þegar á unga aldri. Stjörnunum
hættir við að færa þér allt upp i hendurnar
á hinum margumtalaða silfurbakka. Ef
þú vilt þakka forlögunum fyrir þessa
einstæðu heppni, skaltu gera það með þvi
að hjálpa öðrum sem eru ekki eins heppn-
ir.
Það er brautryðjandi i þér og þú verður
ánægðastur með að fara þinar eigin leiðir
að takmarkinu. Þérgengur fremurilla að
vinna undir annarra stjórn. Þótt þú hafir
miklar áætlanir á prjónunum, er ekki allt-
af vist að framkvæmdirnar gangi eins vel,
þvi oft skortir næga skipulagningu og allt
verður að engu. Ef svo fer, skaltu reyna
að safna brotunum saman og byrja upp á
nýtt.
Ef þú getur einbeitt þér að einu verk-
efni, nærðu beztum árangri, en hafirðu of
mörg járn i eldinum á sama tima, eyðirðu
ekki aðeins orku þinni, heldur stendurðu
uppi með ótal hálfnuð verkefni. Þegar þér
hefur tekizt að breyta þessu, er varla sá
hlutur til, sem þú getur ekki framkvæmt.
1. april
17