Heimilistíminn - 03.04.1975, Side 18

Heimilistíminn - 03.04.1975, Side 18
2. april Þeir hæfileikar, sem þú býrð fyrst og fremst yfir, eru á bókmenntasviðinu en annars ertu mjög fjölhæf manneskja og getur komizt langt á hvaða sviöi sem er. Dómgreind þín er framúrskarandi og þú getur þegar i fyrsta sinn, sem þú hittir einhverja manneskju, dæmt um hvort hún er hreinskilin eða er með sýndar- mennsku. Það er alltaf hægt að treysta dómgreind þinni og hugboði. Þér finnst gaman að velta fyrir þér hlutunum og öðlast meiri þekkingu og lik- legt er aö þú eyðir miklum tima i félags- skapbóka. Gættu þin að verða ekki aðeins áhorfandi að llfinu, en reyndu lika að veröa lifandi og starfssöm manneskja. Allt dulrænt og dularfullt vekur áhuga þinn og þú munt vafalaust gera vissar tilraunir á þvi sviði, en gættu þess þó að þetta fikt hafi ekki áhrif á heilbrigða skynsemi þina. Stjömurnar hafa gefið þér mikla leikhæfileika og ef þú notar þá ekki sem Hfsstarf, er nokkuð áreiðanlegt, að þú reynir að gera það mesta úr hverju smá- atviki, sem fyrir þig kemur og þú ert þeirrar skoðunar, að þetta gefi tilverunni aukna spennu. Ef þú hagnýtir þessa hæfi- leika og sameinar þá hugmyndaflugi þlnu, geturðu náð langt á einhverju sviði skapandi listar. Þú ert ákaflega vingjarnlegur I þér, en stundum fljótfær og lendir þvi iðulega I vandræðum, ef þú temur þér ekki að halda tilfinningunum I skefjum. Oöru fólki hættir til að fela þér verkefni, sem það ætti sjálft að inna af hendi. Ef þú gerir þig ekki stundum byrstan og segir nei, verður llf þitt hálf stjórnlaust. Þú dáir leiklist og hefur hæfileika I þá átt, en þú skalt muna, að það er mikil vinna að komast langt I leikhúsheiminum og þar er heldur ekki allt jafn stórfenglegt og þú heldur. Sem betur fer, býrðu yfir heilmikilli orku og ef henni verður beint i rétta átt á réttum tima ævinnar, eru allar llkur a að þér gangi vel og náir langt strax á unga aldri. Þú hefur fleiri hæfileika, einkum á sviði myndlistar og bókmennta. Mikilvægt er að þú dreifir ekki orku þinni of mikið og vinnir að of mörgum hlutum I einu. Byrjaðu á einhverju, ljúktu við það og byrjaðu slðan á einhverju öðru. Þannig stefnirðu beirtt að takmarki þlnu. Gættu þess að fá næga hvfld og hvað þú borðar. Þér hættir við að vanrækja sjálf- an þig, þegar þú vinnur mikið og þú hefur tilhneigingu til að fitna um miöjan aldur. 4. april Hugmyndaauðgi þin og sérvizka hafa mikinn metnað. Þú átt þér margar óskir og krefst þess að fá að fara þinar eigin leiöir. Skaplyndi þitt þolir ekki að þú sért undir annarra stjórn á nokkurn hátt. Ef þú getur fylgt ákveðnu striki án hliöar- stökka, nærðu fljótt frama. Þú ert skarpgreindur, hefur gott minni og auk þess hæfileika til að framkvæma nýjar hugmyndir. Þú getur unnið með smáatriði, en hefur ekki áhuga á þeim. Þú getur varla beðið eftir að sjá árangur verkanna og ef hann lætur á sér standa, veröurðu gjarnan niðurdreginn. Þú ert indæll, þegar allt gengur i haginn, en óþolandi, ef eitthvað fer úrskeiðis. örlög- in hafa ótrúleg áhrif á lif þitt. Ef þú missir af tækifæri, getur það þýtt gjörbreytingu á högum þinum og þú snýrö að likindum aldrei aftur. Hvort lif þitt verður gott eða slæmt, getur oltið á einu andartaki. Þú ert mjög félagslyndur og að öllum likindum framúrskarandi gestgjafi. Bfddu með hjónaband, þangað til þú hefur komið þér vel fyrir og veldu þá maka, sem fæddur er i merki sporðdreka eða bogmanns. 18

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.