Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 19

Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 19
Þil ert framkvæmdasamur og eiröar- laus meö afbrigðum meðan þú ert ungur aö árum, en það breytist með aldrinum og þú verður ákveðnari og gerir meiri kröfur til llfsins. Þú vilt gera allt eins vel og hægt er og ert yfirleitt aldrei ánægður með hlutina eins og þeir eru, heldur vilt alltaf hafa þá betri. Stjörnurnar hafa gefið þér vott af snilligáfu og meðan þú ert að skapa þér frama, reynirðu að gera alla hluti nákvæmlega rétt. Bæði á grundvelli þess og þeirra krafna sem þú gerir til sjálfs þln og samstarfsfólks þins, verður að telja, að þér takist að komast í háa stöðu snemma á ævinni. Ef þú velur þér starf við leikhús, dag- blöð, auglýsingaiðnaðinn eða stjórnmál, máttu vera viss um að hljóta viðurkenn- ingu. Þú hefur fréttanef og auk þess get- urðu stundum vitað fyrir fram, hvað g’er- ast muni. Þessi hæfileiki er dýrmætur og skiptir miklu máli fyrir þig. Þú hefur lfka viðskiptavit og munt að likindum aldrei tapa neinu á þeim vett vangi. Ef þú ert að hugsa um hjúskap, skaltu velja maka, sem kann að meta hæfileika þfna. w^vimr Kinversk stúlka, sem fædd er 1. júlf 1962, vill eignast fslenzka pennavini á aldrinum 12 til 14 ára. Áhugamál hennar eru: Að safna frimerkjum, hlusta á tónlist, dansa, leika bad- minton, synda og syngja. Og nafn og heimilisfang stúlkunnar er: Pollyanna Vu, 26 Pak Tai st. I/F, Rear, Kowloon, Hong Kong. Mig langar að komast I bréfasam- band við stráka og stelpur á aldrinum 12 til 14 ára. Ég heiti: Álfhildur Jónsdóttir, Unnarstig 8 Flateyri, önundarfirði. Okkur langar að komast i bréfasam- band við stráka og stelpur á aldrinum 13 til 15 ára. Margre't Þorvaldsdóttir Jaðarsbraut 37, Akranesi, Rakel Árnadóttir, Brekkubraut 24, Akranesi. Ég óska eftir bréfaviðskiptum viö stúlkur eða drengi á aldrinum 12 til 14 ára. Ahugamál: tónlist af léttara taginu, hestar og bókalestur. Lára ólafsdóttir, Uppsölum, Miðfirði, V-Hún. Ég óska eftir pennavinum (strákum) á aldrinum 13 til 15 ára. Mynd fylgi fyrsta eöa ööru bréfi. Ahugamál mfn cru tónlist og húsdýr. Hrafnhildur Ingimarsdóttir, Eyrarlandi, Fljótsdal, N-Múl Við elskum alltaf þá sem dást að okkur, en viö elskum ekki alltaf þá, sem við dáumst að. Til eru bflstjórar, sem halda að þeir þurfi ekki umferðarmenningu, af þvf bilarnir þeirra eru 5 tonn. Það er með hjónaband eins og sjálfs morö. Maður þarf aö vera snöggur að ákveða sig. * Láttu þig bara dreyma.. en láttu draumana rætast. Frestaöu aldrei hlutunum til morguns.. þá getur verið búið að leggja skatt á þá. Flestir vilja gera litinn greiöa. Reyndu að biðja einhvern um stóran. örvæntu ekki. t hverjum manni er efni I mann. A Fötin eru saumuð eítir máli. þvf miöur ckki minu. Mig langar að skrifast á við strák á aldrinum 12 til 14 ára. Sjáf er ég að verða 13 ára. Vil helzt fá mynd mcð fyrsta bréfi. Birgitta B. Sigurðardóttir, Staðarbakka, Hörgárdal, Eyjaf jarðarsýslu. Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 9 til 10 ára. Christine Gisladóttir, Heiðmörk 2-a, Sclfossi. Nú á dögum getur föðurlandið ekki bjargast án inæðrahjálparinnar. Það var uppþot i vöruhúsinu I gær. Þaö kom kona og greiddi út i hönd. 5. april 19

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.