Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 28
Þannig lítur
lygi út
%íir
CHART NO.5009
COUNTERINTELLIGENCE AND SECURITY II
Jafnvel minnsta hvit lygi finnst á röddinni og nálin i sannleiks tækinu hoppar og hristist.
HÆGT er að setja mikla lygi á blað. En
raunveruleg lygi litur þannig út: Eftir
rúðustrikuðu blaði liggur lárétt, bein lina,
sem skyndilega breytist i óreglulega sikk-
sakk linu, sem stekkur upp og siðan niður
aftur. Þar kemur lygin i ljós og það er
engin lygi.
Til að reyna þetta kerfi, þarf tilrauna-
manneskju, sem hefur lag á að hagræða
sannleikanum, og tæki, sem heitir „sál-
streituvarpi” eða eitthvað i þá áttina.
Þetta er ekki það sama og sá gamli, góði
lygamælir, heldur mjög endurbætt útgáfa
af honum. Nú þarf aðeins að leika af
segulbandi rödd tilraunamanneskjunnar.
Á sama andartaki og hún segir ósatt,
hoppar og dansar nálin á ritanum og flett-
ir þar með ofan af lyginni. Með öðrum
orðum: tilraunamanneskjan hefur ekki
hugmynd um, hvenær tilraunin er gerð.
A sýnishorninu sézt hvernig linan er lá-
rétt og bein á meðan sagt er satt. En um
leið og tilraunamanneskjan vogar sér út
af vegi sannleikans, fer nálin að hoppa og
hristast vegna streituspennu viðkomandi.
Tækið er svo nákvæmt, að það veröur
jafnvel vart minnstu breytinga, til dæmis
ef tilraunamanneskjan dregur spil úr
stokk og segir hafa dregið annan lit en hún
fékk.
— Það er algjörlega ómögulegt fyrir
fólk að stjórna þessari spennu, segir Phil
Hicks,sem er sérfræðingur á þessu sviði.
— Þessi aðferð er traustari og nákvæmari
en venjulegur lygamælir. AUir þræðirnir,
leiðslumar og rafeindaskautin, sem eru
tengd lygamælinum, gera viðkomandi
manneskju óstyrka fyrirfram en með
þessu nýja tæki, þarf viðkomandi ekki
einu sinni að vita, að verið sé að prófa
hana. En ef segulband með rödd
manneskjunnar er leikið i vélinni, nemur
hún þegar hverja breytingu á sálarspennu
viðkomandi.
En þessi sannleikavél getur lika sagt
ósatt. Það getur til dæmis komið fyrir, að
karl segir konu sinni, að hann komi seint
heim, vegna eftirvinnu. Hann virðist
óstyrkur, þótt þetta með eftirvinnuna sé
satt. Hann kviðir aðeins undirtektum kon-
unnar. Undir þessum kringumstæðum
lýgur tækið.
Þess vegna er háþróuð og þaulreynd
28