Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 32
Marco Polo
Kublai Khan
Ferðir AAarco Polo
Hinn frægi feneyski ferðalangur, sem
lifði á árunum 1254 til 1324, skrifaði eina af
mestu bókum allra tima. Nafn hennar var
Hka eitt það lengsta, sem verið hefur á
bók, en þar er á ensku „The book of
Marco Polo, Citizen of Venice, Called
Million, Where in is Recounted the
Wonders of the World.”
1 bókinni lýsir Marco Polo ferð sinni um
hálfan hnöttinn frá Feneyjum til Kina og
aftur til baka og reynslu sinni i riki
Mongólakeisarans mikla, Kublai Khan.
Polo varð fyrstur manna til að upplýsa
vestræna menn um Kinaveldi og fyrstur
til að lýsa daglegu lifi keisaranna. Um
hundruð ára hafa nemendur i skólum
rannsakað mismunandi útgáfur bókar-
innar, en hún varð ekki almennt Jesin fyrr
en á 19. öld. Siðan þá hefur hún verið þýdd
á mörg tungumál.
Faðir Marcos Polo og frændi höfðu þeg-
ar heimsótt Kublai Khan, sem bað þá að
koma til Kina aftur og taka með sér nem-
endur og kennara. 1 árslok 1271 fóru þeir,
ásamt tveimur nemendum og Marco
áleiðis austur.
1 upphafi ferðar þeirra. , ákváðu nem-
endurnir að snúa aftur og létu
þremenningana um að halda áfram. Þeir
fóru gegn um Bagdad og þaðan til Persa-
flóa, gegn um Afghanistan og til Kina yfir
Pamir-fjöll, Iashgar, Yarkand, Khotan og
Góbi-eyðimörkina. Ferðin tók þá um það
bil þrjú ár og engir aðrir Evrópumenn
fóru slika ferð næstu 600 árin.
Kublai Khan tók á mót þeim i Shangtu
og réð Marco við hirð sina og gerði hann
siöar að fulltrúa. Næstu 17 árin starfaði
Marco fyrir keisarann, og lærði kin-
versku. Hann þurfti að ferðast talsvert á
vegum hans og fór meöal annars til
Burma, Indókina og sennilega Indlands,
auk þess sem hann fór um allt Kinaveldi.
Keisarinn vildi ekki lofa þremenning-
unum aðfara fyrr en 1292, þegar þeir fóru
sjóleiöina heim og komu til Feneyja 1295
með mikil auðæfi.
Arið 1298 handtóku Genuamenn Marco
Polo i sjóorrustu og meðan hann var i
fangelsi, hitti hann rithöfund að nafni
Rusticano de Pisa. Marco sagði manni
þessum sögu sina og Rusticano skrifaði
hana niður. Fyrsta frásögn landkönnuðar
haföi verið skrifuð.
32