Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 35

Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 35
nú kom ég bara við afturendann á honum. Nicholas heyrði Gaybrielle grípa andann á lofti °g notaði tækifærið til að neita ásökuninni. — Þér eruð lygari, svaraði hann kuldalega og ákveðið. — Hann himdi yfir stýrinu eins og kappaskturshetja, hélt hinn áfram. — Heldur víst að hann sé einhver Stirling Moss. — Ég verð að óska yður til hamingj u með sjónina, sagði Nick. — Fyrst þér gátuð séð allt i kvöld- myrkrinu, gat ég varla hafa verið á yfir hundrað. — Þau sátu og drukku á Toby Jug. Ég þekkti bæði hann og stelpuna aftur, um leið og ég sá þau. — Er það rétt? Voruð þið á Toby Jug í kvöld? — Já, við borðuðum þar, en ég var ekki drukkinn. — O, hann hafði fengið sér nokkra sjússa. Ég sá, þegar hann gekk út og settist fram í. Hún kom á eftir. Þau höfðu bæði verið að drekka, já og..... Bílstjórinn æpti upp, þegar Nick lét undan löngun sinni til að rétta honumhnefann í andlitið. Blóð og formælingar streymdu út, þegar risinn reif sig lausan frá lögreglumanninu. — Þetta er yður ekki til málsbóta maður minn. Lögreglumaðurinn hélt risanum frá, þangað til að- stoðarmaður hans kom til aðstoðar. — Þér verðið að koma strax á stöðina. Læknirinn þar athugar yður, meðan þér gefið skýrslu. — Sá er góður. Ég gæti kært hann fyrir árás og allt, sagði flutningabílsjórinn ákafur. — Við sjáum um þetta. Lögreglumaðurinn hélt opnum bíldyrunum. — Ef þér og ungfrúin viljið koma með. Við sjáum um að færa bílinn. — Þarf að draga frú Allen inn í þetta? Má ekki aka henni heim? — Er það ekki hún, sem á bílinn? Jú, það er veski í hanzkahólf inu og pappírarnir og ökuskírteinið eru þar, svaraði Gaybrielle. — Gott frú. Roberts tekur það að sér. Læknirinn beið þeirra, þegar þau komu á stöðina. Nicholas var þegar vísað inn i uppljómað herbergi og þótt læknirinn ætti fyrst og fremst að annast meiðslin, var honum vel Ijóst hver ástæðan var fyr- ir því að hann var hingað kominn. Nicholas sagði ekkert meðan verið var að taka blóðpruf u og horfði á lækninn meðan hann athugaði gögn sín. Síðan batt hann um sárið. — Þetta er líklega dálitið sagði hann. — Já, en það er víst ekki við öðru að búast. — Hm. Þetta er Ijótt. Á ég ekki að hringja á sjúkrahúsið? — Ég tala við minn eigin lækni. — Eins og þér viljið. Býr hann í grennd við yður? — Já, Maitland. Virginia Water. Læknirinn setti upp blíðari svip.— Ég þekki hann. Ágætis maður. Við leikum golf saman öðru hverju. — Búinn, læknir? Lögregluþjónninn stakk höfðinu inn fyrir. — Já, þið fáið skýrsluna á morgun. — Með tilliti til f ullyrðinga bílstjórans, má ég þá spyrja um niðurstöðurnar af blóðprufunni? — Hún er neikvæð. Ég skal gera nákvæma skýrslu fyrir lögreglustjórann. Lögregluþjónninn rórillaði á hælunum og leit á lækninn. — Það er lið- inn góður tími síðan hann fór f rá Toby Jug. — Ekki nógu langur til að of mikil áfengisáhrif væru horfin, svaraði læknirinn. — Er þetta matsatriði, læknir? — Ég hef þegar sagt yður allt, sem ég get. Áfengis- magnið í blóði þessa manns er langt fyrir neðan það sem leyf ilegt er. Læknirinn lokaði tösku sinni og tók upp pípuna. — Ef þið ætlið að krafa ákæru, verðið þið að bíða eftir skýrslu minni. Lögregluþjónninn dró enga dul á að þetta var honum á móti skapi og sneri sér að Nicholas. — Ég er á móti fólki, sem ekur ölvað. — Það gerir enginn af okkur, góði minn. Læknir- inn kveikti í pípunni. — Mér skilst að hann hafi slegið bílstjórann. — Það stendur heima. Hann móðgaði f rú Allen og dónaskapurinn kostaði hann nokkrar tennur. Nicholas stóð upp. — Ef þessu er lokið núna, vil ég fara heim. Ef hægt að fá bíl? Það er sennilega of framorðið til að fá leigubíl hér úti? — Býr frú Allen i.... Lögregluþjónninn leit i vasa- bók sína.... í Virginia Water líka? — Nei, sagði Nicholas. — Hún býr við Knightsbridge, en dvelur á heimili mínu um helgina með níu ára dóttur sína. Lögregluþjónnin leit á hann. — Ég skil. — Það held ég ekki, en sleppum því núna. — Jæja, ég skal fá einhvern til að aka ykkur heim. Þið megið búast við manni f rá okkur á morgun. — Það sagði mér félagi þinn áðan. En þið getið sofið alveg rólegir, ég sting ekki af. Hann fór i jakkann og fylgdi lækninum inn á skrifstofuna. — Ég vona að frú Allen hafi ekki verið mikið yfir- heyrð. Hún hefur orðið fyrir miklu á einum degi. — Það var ekki nauðsynlegt, sagði lögreglu- maðurinn. -^Hún er ekki viðriðin þetta nema sem eigandi bilsins. Auk þess getur hún borið vitni, ef til réttarhaldakemur.Hann skaut hökunni fram: — Ég ræð yður til að skýra lögfræðingi yðar frá öllum atriðum slyssins.... í öryggisskyni, skiljið þér? 35

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.