Heimilistíminn - 17.07.1975, Page 12

Heimilistíminn - 17.07.1975, Page 12
Mich Ronson MICH RONSON er talinn einn af fimm beztu popp-gítarleikurum heimsins og á tveimur sóló — LP — plötum hefur hann lika sannaö, að ekkert er að raddböndum hans. Auk þess er hann leiðtogi hljómsveitarinnar Mott the Hoople. En það var fyrr á árum, að Mich dreymdi um að verða pianóleikari af lifi og sál. Hann hóf pianóleik þegar hann var 5 ára og áður en hann náði 12 ára aldri, lék hann bæði á planó, fiölu og flautu. Foreldrar hans voru litt hrifnir af áhuga drengsins á tónlist fyrir sig. En foreldrarnir reyndu að fá hann ofan af þvi og töldu tónlist ekki almennilega atvinnu. Þegar Mich var 17 ára, hætti hann við pianóleikinn, keypti sér gitar og stofnaði eigin hljómsveit. The Mariners. Þeir höfðu aðsetur i heimaborg Michs, Hull, en komust aldrei lengra en að leika á dansleikjum. Aður en Mich lagði leið sina til London, lék hann i þremur öðrum hljömsveitum heima i Hull. Hann fann ekki sérlega mikla uppörvun i höfuðborginni. Hann vildi fram, en þær hljómsveitir, sem hann var i, vöktu ekki sérstaka at- hygli. Mich fór aftur til Hull og gerðist ráðsmaður i stúlknaskóla. 1 upphafi árs 1972 var hann kynntur fyrir David Bowie og þá tóku hlutirnir að gerast með miklum hraða. Mich hóf störf hjá Bowie og fór með I hljóm- leikaferðir. Loks fékk sú tónlist útrás, sem allan timann hafði búið hið innra með honum. Bowie hleypti skriðunni af stað. Siðan gekk Mich i hljómsveit- ina Mott the Hoople, þar sem hann er ennþá. Tvær sóló-Lp-plötur hefur hann siðansentfrá sér,sú nýrriheitir „Play Don’t Worry” Mich Ronson er fæddur 26. mai 1949.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.