Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 29.01.1976, Qupperneq 9

Heimilistíminn - 29.01.1976, Qupperneq 9
Hún sat róleg i stólnum sinum eins og venjulega. Hún hafði þegar hellt i glös handa þeim, en tók ekki útsauminn fram, vitandi að það færi i taugarnar á honum, ef hún sæti og saumaði, ofan á allt annað. Hann stóð frammi fyrir henni og hún var með hendur i skauti. Þegar hún leit niður, sá hún aðhann var kominn i inniskóna, en hafði gleymt sokkunum. — Af þvi þú ert að fara. — Enég sagði ekki, hvenær ég færi. Ég sagðistekki vera að fara strax, en það er ástæðulaust að reka mig bókstaflega út úr húsinu. — Ég vil að þetta ár byrji núna strax, svo það verði fyrr búið. — Þú vilt að hlutirnir verði ákveðnir sem fyrst? — Auðvitað — Hvernig sem það fer? — Já. — Og þú vilt hafa þaðheilt ár? — Já. Hann sparkaði i brennikubb i arninum, svo neistar flugu upp i loftið. Hann gat ekki verið kyrr, en gekk um gólf i stof- unni, hreyfði við hlutum á arinhillunni, á smáborðunum og rak sig ótal sinnum á stólana. — En hvers vegna? Hvers vegna heilt ár? sagði hann loks. — Hálft ár er ekkert, sagði hún. Eitt ár er hins vegar alllangur timi. A einu ári geturðu orðið viss. — En ég er orðinn það, sagði hann. — Hvers vegna stakkstu þá upp á hálfu ári? Ef þú ert þegar orðinn viss i þinni sök? Hún sá þau fyrir sér, i sólinni ein- hvers staðar i Suður-Frakklandi, Daphne liggjandi i sandinum, stinnur og sólbrúnn likami hennar — og hann við hlið hennar. Hún lokaði augunum. — Ég býst við að það hafi nánast verið þin vegna. Ég vildi ekki að þú héldir að þetta væri eitthvert fljótræði, einhver meinsemd. Bros hans var i hennar augum það fallegasta, sem hún gat hugsað sér. En hún var að hugsa um Daphne og ferða- töskurnar og þagði. — Það var þin vegna, endurtók hann. — Fallegt af þér að hugsa um mig og það er þess vegna, sem ég vil að þú farir núna. Einmitt min vegna. Þvi fyrr, þvi betra. — Núna? Núna á stundinni? — Jæja, þá i fyrramálið. Hún stóð upp til að sækja matinn fram i eldhúsið, en hann stóð fyrir henni. — Hvers vegna viltu endilega losna við mig? Hann skildi hana ekki, en hann var viss um, að það var enginn annar kal- maður i lifi hennar. — Gleymdu ekki, að þú áttir hug- myndina, ekki ég. Hvers vegna skyldi mig langa til að losna við þig? — Þú ætlar að senda mig burt i heilt ár. Hann leit út eins og litill drengur, sem mjög hefur sárnað. Hana langaði mest til að taka utan um hann — ekki aðeins til að hugga hann. — Já,ég ætla að gera það. Eitt áreðaekk- ert. — Þá skulum við segja — ekkert, sagði hann. Bros hans varð allt i einu skinandi bjart. — Er það alvara þin? — Já, það er alvara. —r Og ertu viss um, að þú munir ekki skipta um skoðun? sagði hún, þegar hún gekk fram til að sækja kampavinsflösku sem hún hafði sett á is. — Alveg, sagði hann og sá fyrir hugskots- sjónum sinum þau Daphne einhvers- staðar i Suður-Frakklandi. Hann sá hana liggja i sandinum og sólina skina á brúnan likama hennar, en sjálfan sig sitja við hlið hennar með höndina fyrir munninum — til að fela geispa. Nashyrningsfuglinn fékk gervinef Eyja, þar sem kettir hafa ekki rófu, eins og er á eynni Mön, hlaut að vera staður fyrir neflausan nashyrningsfugl. En þó að Manarkettirnir lifi góðu lifi rófulausir, olli nefleysið næstum dauða Henrys, en svo heitir nashyrningsfugl sá, sem hér um ræðir. Það varð að taka af honum nefið vegna sjúkdóms og þá fengu dýrasér- fræðingarnir i þjóðgarðinum á Mön þá hugmynd að biðja tannlækni að smiða fyrstu gervitennur, sem gerðar hafa verið handa fugli. Henry var svæfður meðan verið var að máta nýja nefið og festa það á og þegar hann vaknaði aftur, tók hann varla eftir þvi að hann var breyttur. Vörður i þjóðgaröinum segir: — Nas- hyrningsfuglar nota þetta sterklega nef sitt til að merja sundur fæðuna, áöur en þeir hleypa hana. Þessi fugl, hann Henry, er sérstaklega skrautlegt eintak og við vildum ekki missa hann. Þess veg’na var ekki nema um eitt að ræða — falskt nef. 9

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.