Heimilistíminn - 29.01.1976, Blaðsíða 12
— Ég hefði aldrei trúað þvf að kvik-
myndahlutverk gæti verið svo áhrifa-
mikið, að það blátt áfram breytti
manneskjunni, en það gerðist, þegar
ég lék hlutverk Billie Holiday í „Lady
sings the Blues” segir Diana Ross. —
Ég vann að þvi i nærri ár að hlusta á
plötur Billie og lesa allt, sem skrifað
hafði verið um hana. Þessi vinna
kenndi mér að hlusta og skynja. Ég
hafði aldrei gefið mér tima til að
hlusta á annað fðlk, en nú veit ég hvað
það er dýrmætt að geta hlustað.
Þetta segir hún Diana sem sagt. Hún
varð heimsfræg sem miðdepillinn i
söngtrióinu The Supremes. Á árunum
eftir 1960 stjórnaði það bókstaflega
vinsældalistum um allan heim og troll-
reið diskótekum. Þristirni þetta var
sérstætt og allir dáðu það. 14 gullplötur
fengu þær og topplög þeirra urðu 35
eða rúmlega það, áður en Diana Ross
yfirgaf trióið árið 1970.
Hún vildi spreyta sig ein og var ekki
i neinum vandræðum með að fóta sig.
Hún var örugg. Alls staðar fyllti hún
sali. Þegar fregnaðist að hún hefði
verið fengin til að leika hlutverk Biliie
Holiday i „Lady Sings The Blues”
hristu margir höfuðin og sögðu sem
svo: — Hún getur sungiö, en getur hún
leikið?
Gagnrýnendur virtust hrifnir og
áhorfendur lika og enginn hristi höfuð-
ið, þegar Diana kom til greina sem
óskarsverðlaunahafi. Hún fékk ekki
Óskarinn, en er afar stolt yfir útnefn-
ingunni. Hún er fyrsta litaða leikkqn-
an, sem hlotið hefur þann heiöur. Sið-
an hefur ekki skort kvikmyndatilboð-
in. Nýjasta myndin er „Mahogany”
þar sem Diana leikur ljósmyndafyrir-
sætu, pjattrófu hina mestu.
Annars hefur Diana mikið að gera.
Auk kvikmyndaleiksins syngur hún
alltaf og þar að auki hugsar hún um
heimili, mann og tvö börn þeirra.
Þe'lsa stundina er hún að safna lögum
á nýja LP-plötu, en segist þurfa að
taka sér hvild um tima og leika við
börnin heima i Beverley H.ijls. Þeks
má geta, að „Lady SingsThe Blue :”
var sýnd i Háskólabiói fram i siðustu
viku.
Díano
NNi» Ross
V.
12