Heimilistíminn - 29.01.1976, Blaðsíða 28

Heimilistíminn - 29.01.1976, Blaðsíða 28
Hún var myrt, en endurfæddist — Eg á mann...hann er mjög vondur maður....hann myrti mig...það er gatá maganum á mér. Þessi mjög svo einkennilega fullyrðing af vörum tveggja ára telpu, olli foreldrum hennar áfalli og varð til þess, að fram kom „ein traustasta sönnun fyrir endur- holdgun, sem vitað er um” að þvi kunnur sérfræðingur á þvi sviði segir. Prófessor Hamendra Nath Banerjee, sem rannsakað hefur þetta fyrirbæri i sex mánuði, segir að gift kona og fjögurra barna móðir, sem lézt af hnifstungu i kviðinn, sé endurfædd i litlu stúlkunni. — Þótt barnið eigi heima langt frá heimili látnu konunnar og hafi ekki haft neitt samband við fjölskyldu hennar, þekkir hún, að þvi prófessorinn segir — smáatriði úr lifi konunnar, sem enginn gæti vitað um, nema hún sjálf og hún þekkti strax eiginmann hennar sem morðingjann i fyrsta sinn, sem hún sá hann. — Sjaldan i sögu endurholdgunarinnar hefur komið fram tilfelli, sem hægt er að fylgjast jafn vel með, segir prófessorinn, sem er yfirmaður rannsókna við þá stofn- un i Indlandi, sem fjallar um parasál- fræði. Þessi undarlega saga hefst á kæfandi heitu júnikvöldi árið 1961 i Nýju Dehli, þegar 28 ára gömul kona að nafni Gurdeep Singh var stungin i kviðinn með hnifi. Það var eiginmaður hennar sem framdi morðið. Prófessor Banerjee segir að fyrstu merki þess að konan hafi snúið aftur til iifsins, hafi komið i ljós tæpum 7 árum siðar, þegar tveggja ára stúlka að nafni Reena Gupta skaut foreldrum sinum skelk i bringu meö þvi að segja: — 6g á mann....hann er mjög vondur maður....hann myrti mig. Litla stúlkan benti á magann á sér og sagði: — Eg er með gat á maganum. Móðir Reenu iitlu var hrædd um að barnið væri eitthvað brenglað á sálinni, en faðirinn, embættismaður i upplýsinga- málaráðuneytinu, hélt þvi fram, að barn- ið yxi upp úr þessum hugarórum. — Kn þvi meira sem ég reyndi að láta jþetta sem vind um eyrun þjóta, þeim mun tilþrifameiri urðu lýsingar hennar, segir móðirin. — Hún sagðist eiga fjögur börn og sagði okkur gælunöfn þeirra. Smátt og smátt komu fram fleiri smá- ,atriði úr lyrra lifi Reenu litlu. Hún sagði Irænku sinni, að maóur myrtu konunnar hefði skaddast á fæti við að setja mótor- hjól i gang Og Reena sagði að hann hofði 28 í lítilli stúlku Eitt áreiðaniegasta dæmi sem til er um endurholdgun, segir sérfræðingurinn -‘,4 Vh sell Tortryggnin leynir sér ekki i svip Reenu litlu Gupta, þar sem hún situr við hlið Surject Singh á heimili sínu i Nýju Delhi. — Hann var eiginmaður minn i fyrra lifi og hann myrti mig, scgir hún.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.