Heimilistíminn - 02.11.1978, Blaðsíða 3
Halló Alvitur!
Ég hef einu sinni skrifað þér áöur, og
fékk þá m jög góð svör. Svo ég vona, aö
þú niiskunnir þig niiyfir mig og svarir
þessu bréfi einnig.
Mitt vandamál er það, aö ég er meö
mjög litil brjóst. En þar sem litiö er
hægt aö gera viö þvi, þá er ég ekkert
aö fárast yfir þvl. Nú fyrir stuttu varö
ég svo vör viö, að þau eru farin aö
veröa slöpp, og þar sem mér finnst svo
ljótt aö vera með brjóstin hangandi
niður á maga, þá biö ég þig um aö gefa
mér eitthvert gott ráö. Ég er meö of
Htil brjóst til aö ganga i brjóstahald-
ara, svo ekki kemur þaö til greina. Eru
ekki einhverjar leikfmiæfingar til, til
þess aö laga þetta? Bentu mér þá á
einhverja.
Eru góöir atvinnumöguleikar fyrir
arkitekta hér á iandi?
Ég er i niunda bekk grunnskóla. Ef
ég fer út I arkitektúr, hvaö á ég þá eftir
að læra i mörg ár? Viltu segja mér,
hvernig náminu yröi þá háttaö, ég
meina, hvaö mörg ár i hvaöa skóla?
Segöu nú vel frá'.
Og svo ég setji nú eitthvaö út á
blaöið, þá finnst mér vanta leiðbein-
ingar fyrir námsfólk um ýmiss konar
nám. Hvernig væri aö þiö tækjuö
ykkur nú til og heföuö fastan þátt I
blaðinu, þar sem sagt væri frá hinum
þessum störfum? Þáö yröi vel þegiö.
Jæja, þetta er vist oröið allt of langt
tii birtingar, en fyrir alla muni
svaraöu mér.
Vertu blessaöur Alvitur minn,
Þin pennaóöa vinkona
Góða bezta pennaóða vinkona!
Fyrst eruþaöbrjóstin. Einföld æfing
til þess að styrkja brjóstavöðvana er
þannig: Taktu með annarri hendinni
utan um framhandlegg þinn og meö
hinni innaná framhandlegginn hinum
megin. Ýttu svoupp á við, eða út á við,
þ.e. Þú finnur strax að þessi hreyfing
tekur ibrjóstin.ogá að styrkja þau, og
koma i veg fyrir að þau verði slöpp og
linkuleg.
Ætlur þú þér að læra arkitektúr, þá
þarftu fyrst að ljúka menntaskóla-
prófi. Eftir það ferðu svo i háskóla, og
enn sem komiö er, verður þú vlst að
hugsa til náms erlendis i þessu fagi.
Námstiminn er nokkuð mislangur, allt
frá fjörum árum upp I ég veit bara
ekki hvað, en svo fer þetta lika allt
eftir þvi, hvað þú ert dugleg og iðin við
námið. Þú gætir eflaust verið lengi,
jafnvel þar sem námið á ekki að taka
nema fjögur ár, ef þú heldur þig ekki
við efniö.
Um atvinnumöguleikana er fátt að
segja. Það virðist nú vera farið að
brydda á þvi hér, að atvinnuleysi sé
hjá að minnsta kosti sumum þeim
hópum, sem stundað hafa langskóla-
nám, vegna þess hve margir leggja út
á þær brautir nú orðiö. En þeir sem
eru duglegir ættu alltaf að komast i
vinnu og standa sig vel.
Þaö liggur nú við, aö Alvitur hafi
verið nokkurs konar fræðslumála-
ráðgjafi, ástundum að minnsta kosti,
svo oft er spurt um nám og náms-
brautir , og svo oft hefur hann reynt að
svara einhverju til, eftir beztu vitund.
Við látum þaö nægja I bili, en kannski
tökum við tillögu þlna til athugunar
siðar.
Kæri Herra Alvitur,
Mig langar til þess aö spyrja þig,
hvaö þarf langt nám til þess aö geta
orðiö dýraiæknir og á hvaöa máli eru
bækurnar.
Og af hverju stafa baugar. Eru þeir
af svefnleysi, sjónvarpsglápi eöa
næringarskorti, og ef þeir eru af
svefnleysi, af hverju eru ekki allir,
sem sofa lítið meö bauga?
Hvaöa strákur á bezt viö boginanns-
stelpu?
Meöfvrirfram þiikk,
Ein, sem horfir litiö á sjónvarp
Dýralæknanám stundar iólk erlend-
is, svo ekki er gott um það aö segja á
hvaða málum bækurnar eru. Þaö fer
auðvitaö eftirþvi I hvaða landi iært er.
Námið tekur ein 4-6 ár.
Svo er það þetta með baugana. Þeir
geta vist stafað af öllu þvi, sem þú tel-
ur upp. Þú spyrð, hvers vegna allir
sem sofa litið haf i ekki bauga. Það fer
liklega eftir þvl, hversu mikinn svefn
fólk þarf. Slikt er mjög einstaklings-
bundið. Sumum nægir að sofa 6-7 tíma,
en aðrir þurfa 8-10 tima. Þess vegna
fær fólk misjafnlega mikla hvild, og
þess vegna litur það misjafnlega illa
ut.
Bezt er fyrir bogmann að velja sér
maka úrvogar- eða hrútsmerki. Og þá
hefurðu það!
Meðal efnis í þessu blaði:
Rithandarsýnishorn illmenna og
góðmenna.......................... bls. 4
Hann hefði áttaö vera Gústav V.....bls. 7
Sögur og sagnir....................bls. 8
Norsk söngkona — Anita Skogran....bls. 13
Sólog saltur sjór lækna bezt.......bls. 14
Spænskur pipar.....................bls. 15
Hekluð motta úr grófu garni........bls. 16
Enn koma stafir til að sauma út.....bls. 16
Eplaterta...........................bls. 18
Svínakótelettur og sveppir..........bls. 18
Spænskur fiskréttur.................bls. 19
Allir vilja eignast tilraunaglasabörn .. bls. 20
Panf lautan — eitt af hlióðfærum
grunnskólans........................bls. 36
Vísir— Ijóð.........................bls. 37