Heimilistíminn - 02.11.1978, Blaðsíða 11

Heimilistíminn - 02.11.1978, Blaðsíða 11
vitnisburö, að hinn sami sé hinnar evangelisku lútnersku trúar og þvi að kirkjunnar lögum fri og frjáls”. Hér er prófasturinn séra Jón Halldórs son, i raun réttri að fara fram á það að Vestmannaeyjar séu settar i nokkurs konar andlega sóttkvi, vegna hættunnar á útbreiöslu mormónskunnar. Hann er hræddur um að hún breiðist út til megin- landsins og verði þar til áhrifa. En sam- kvæmt lögum var erfitt að framkvæma slika sóttvörn, enda varð ekkert Ur henni. 2. En prófasturinn i Rángárvallaprófats- dæmi lét ekki við þaö eitt sitja að rita ábyrgðarkapeláninum I Vestmanna- eyjum. Hann ritaði einnig til stiftsyfir- valdanna 30. júli 1853. Þvi miður finnst það bréf ekki en af svari yfirvaldanna 9. ágúst 1853 má að nokkru ráða efni bréfsins, en þaö hefur verið aö sækja um staöfestingu stiftyfirvaldanna á fyrirskip- unum sínum til séra Brynjólfs Jónssonar. En liklegt er að undirrótin að þessum skrifum prófastsins séra Jóns Halldórs- sonar, hafi veriö skýrsla séra Jóns Austmanns, er hann ritaði og sendi sumarið 1853 og brátt verður vikiö aö. Llklegt er, að fyrst i stað hafi séra Jón Austmann ráðið mest um skoðun prófasts á störfum séra Brynjólfs Jónssonar i Vestmannaeyjum. En séra Brynjólfur var ákveðinn og viljasterkur maður, sem hvergi lét standa á sér til svara og athafna, sérstaklega þegar honum þótti, að sér væri gert rangt til. Séra Brynjólfur ritaði sýslumanninum I Vestmannaeyjum bréf 31. júli 1853 og sveigir Baumann sýslumaðurað efni þess I bréfi I ágústmánuði en sjálft finnst bréfiö ekki. Máliö gekk þvi I þófi milli embættis- mannanna og virðist fremur hafa rikt ráðleysi i athöfnum þeirra og gerðum gagnvart mormónunum. En I byrjun ágústmánaöar 1853 fór prófasturinn i Rángárvallaprófatsdæmi, séra Jón Halldórsson i visitasiuferð til Vestmannaeyja, og er vlsitasiugeröin dagsett 2. ágúst. en það einkennilega blasir við I henni, að ekkert er þar minnst á mormónana, nema það, sem þegar er I máli minu. Sjáanlegt er af þvl aö pró- fastur hefur viljaö fara varlega I þessum sökum, enda var hann sérstaklega hóg- vær og gætinn maöur I öllum verkum sinum, jafnt I embætti pröfasts og prests. En hins vegar er það liklegt, að það sé runnið undan rifjum prófasts, að séra Brynjólfur ritaði sýslumanninum I Vestmannaeyjum reglulegtkærubréf á þá Guðmund gullsmið ogSamúel Bjarnason, og er það dagsett daginn eftir að vlsitasiugeröin er rituð, eða 3. ágúst 1853. Bréfiö er að vlsu ekki varöveitt, en staöfesting á þvi aö þaö hefði verið ritað er i réttarhöldunum er hafin voru 6. ágúst að tilefni þess. 3. Eins og áður var sagt, lét Johan Nikolai Abel af embætti sýslurhanns I Vestmanna- eyjum fyrir fullt og allt sumarið 1852. Þá var settur þar sýslumaður Adolph Christian Baumann, og var hann þar I embætti til haustsins 1853. Hann kemur þvl talsvert við sögu mormónanna. Það féll I hlut hans að halda réttarhöld yfir Guðmundi gullsmið og Samúel Bjarna- syni sumarið 1853. Samúel Bjarnason var fyrst kallaöur fyrir. Hann játaði óhikað.aö'hann heföi orðið mormóni af sannfæringu og algörlega af sjálfdáðum, en jafnframt af fortölum prestsins danska, J. P. Lorentzsen er dvaldist I Vestmannaeyjum hluta af sumarinu 1853. En jafnframt segist Samúel hafa orðið fyrir áhrifum af kenningum Guömundar Guðmundssonar gullsmiðs. Jafnfrant viöurkennir Samúel, aö hann hafi fengið svonefnt „Kaldsbrev”, og með þviog vlgslu Lorentzsen, var hann oröinn löglegur prestur mormónasafnaðarins I Vestmannaeyjum að þeirra lögum. Hann viðurkennir lika aö hafa eftir fyrr- greindum bréfi skirt konu sina i viðurvist J. P. Lorentzsen og Lofts bónda Jóns- sonar i Þórlaugargerði. Þegar honum var af sýslumannibentá aöþetta athæfi væri algörlega ólöglegt og gagnstætt lögum landsins kvaðst hann ekki hafa hugmynd um það. 4. Guömundur gullsmiður Guðmundsson var yfirheyrður af Baumann sýslumanni og segir svo i réttarbókinni: „Hann segist einstaka sinnum hafa haft fáeina menn hjá sér, fyrir hverjum hann hafi predikað evangellum, og við þessi tækifæri Utbýtt kvöldmáltiðarsakramentinu, og þar aö auki skirt eina persónu I nærveru fleiri persóna, sem þó ekki voru tilkvajidar sem vitni. Sá framstandandi segist ekki hafa vitað, aöþetta var lögum gagnstætt, en að hann hafi tekið það fyrir af þvl, að hann áleit, aö það mundi seinna meir hafa heilladrjúgar verkanir á þá er það meö- tækju...Þar er nú vitnið hefur breytt svona, „bone fide” (fann dómarinn), einkum útdeiling sakramentisins og skirnin, væri striðandi mót hérgildandi lögum, og var honum líka, eins og þeim hinsvegar nefnda (Samúel Bjarnasyni) gefin saman áminning og viðvörunun undir sömu hótun Utaf væri brugðið....” Réttarhaldið yfir Guömundi Guö- mundssyni gullsmið, er fremur ófullkom- ið. Hann virðist hafa haft lag á þvl aö smeygja sér undan sjálfu málefninu, og leiöa það aö aukaatriðum. En þrátt fyrir allt kemur fram I réttarhöldunum þýö- ingarmikið atriði, og er til uppfyllingar við skýrslu séra Jóns Austmanns um starfsemi mormóna I Vestmannaeyjum. Guðmundur gullsmiður viöurkennir, að hannhafi haldið samkomur, en þó undar- legt sé, kemur ekki fram, hvar þær hafa verið haldnar. En eftir skýrslu séra Jdns Austmanns er vitað, að þær voru i Þór- laugargeröi á heimili Lofts Jónssonar. Þessar samkomur hafa verið haldnar mjög leynilega, og af þeim sökum er litiö um þær vitaö. Þaðer einkennilegt, að hvorugur þeirra Guðmundar og Samúels viðurkenndi fyrir réttinum, að þeir hafi vitað um það, að þeir voru að fremja ólöglegan verknað með þvl að ganga inn I störf presta. Ein- kennilegt er, aö sýslumaður skuli hafa látið þá sleppa við það, þar sem honum átti að vera kunnugt um réttarprófiö yfir Þórarni Hafliðasyni, og jafnframt, að það gat ekki fariö fram hjá þeim tvimenning- unum. En sýslumaðurinn var ekki neinn sérstakur lögfræðingur og þau að auki óvanur islenskum yfirheyrslum. En Guömundurgullsmiður var kænn og kunni vel að skjóta sér undan. Hann viö- urkenndi, að hann vissi um trúfrelsi var komið á I danska ríkinu, og jafnframt að hann starfaði eftir þeirri vissu. En hins vegar fór hanneftir alþekktu bragði mor- móna, að reyna aö forðast að komast I kast við yfirvöldin I lengstu lög, skjóta sér undan með hægð og lipurö, en hefna sín þvibetur á þeim siðar, ef hann fengi tæki- færi til þess. Mormónarnir fyrirlitu jafnt trúarbrögö mótherja sinna og lög. Nú er þess að gæta I sambandi við þetta, að flestir mormónarnir í Vestmannaeyj- um, voru velgefnir menn og sumir framarlega I hópi upplýstra alþýðumanna i Eyjum, eins og Loftur Jónsson sátta- semjari i Þórlaugargerði, er kosinn var þjóðfundarmaöur Vestmannaeyja og Guðmundur gullsmiður, sem kunni góð skil á mörgu. En þessir menn kunnu ltka vel að snúa á danskan sýslumann og hálf- < dönsk geistleg yfirvöld. Þeir áttu fyrir hendi annað land og önnur lög I nýju landi, þar sem rikti slfellt sólskin og guðsrlki. Þeim varð llka að ætlunum slnum og báru ‘ fullan sigur af hólmi. Guðmundur Guömundsson, sjálfur „Præsidentinn” i mormónas'Wnuöinum I Vestmannaeyjum, lætur undan frammi fyrir yfirvaldinu danska I Vestmannaeyj um, lætur slgundan, en hugsar sér gott til glóöarinnar slöar. Sama er aö segja um félaga hans, Samúel Bjarnason, sem átti eftir aö snúa enn þá betur á valdsmenn Eyjanna. Athyglisvert er, að þeir Guðmundur og Samúel, eru enn þá undanlátssamari við yfirvöldin, en Þórarinn Hafliðason var á smum tima, þrátt fyrir það, aö hann var búinn aö ganga af trúnni, þegar hann var yfirheyröur. Hann reyndi þó svolitiö að malda I móinn. En þeir fyrrnefndu virð- ast ekki hafa gert neina tilraun til þess, bara látið undan, játað bót og betrun en hafið sama starf og sömu lögbrot, þegar þeir voru komnir úr augsýn sýslumanns- ins. 11

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.