Heimilistíminn - 02.11.1978, Side 14

Heimilistíminn - 02.11.1978, Side 14
1 sumum tilfellum er allur ifkaminn undirlagöur af þessum s júkdómi, og fátt ef nokkuð kemur sér betur en sól og böö i söltum sjó. SÓL 06 SALTUR SJÓR ERU EINASTA LÆKNINGALYFIÐ Nálega tiundi hver Norð- maður ferðast til suðlægra landa, hyort sem harðnar i ári eða ekki. En i þessum stóra hópi eru fáeinir ferðamenn, sem ekki ferðast suður á bóg- inn til þess fyrst og fremst að njóta sumarleyfisins á spenn- andi og skemmtilegum stað og til þess að koma heim brúnni en nágranninn. Fyrir þennan hóp er sólin og heitur sjór- inn nokkurs konar lækning. betta fólk þjáist af hUðsjúkdómi, sem ekki er vitaö af hverju stafar, og enn hefur ekki fundizt nein lækning við. Psoriasis heitir sjúk- dómurinn, og venjulega þjáist fólk af sjúkdómi þessum allt lifið. Nákvæmar upplýsingar liggja ekki fyrir um útbreiöslu sjúkdómsins, en taliö er, að um 90 þúsund Norðmenn séu meö psoriasis, en flestir á fremur lágu stigi, sem betur fer. Á þeim, sem verst hafa oröið úti, er all- ur likaminn þakinn nokkurs konar skel, sem einna helzt likist vaxi. Undir þessu lagi er húðin eldrauð, þunn og gegnsæ og springur hún auðveldlega og þá blæðir úr sárunum, sem myndast. Sagt er, að i Noregi sé litiö gert fyrir psoriasis-sjúklinga, og jafnvel minna en á hinum Norðurlöndunum. Verst ku vera settir sjúklingar i Norður-Noregi, en þar 14 er sjúkdómurinn útbreiddari en annars staöar i' Noregi, og tala ungs fólks, sem með hann er er þar lika hærri en annars staðar. íbúar Norður-Noregs hafa heldur ekki eins mikla möguleika á þvi að baða sig i söltum sjó að sumarlagi og íbúar sunnar i landinu. Læknar telja, að eitt af þvl bezta, sem hægt sé aö gera fyrir psoriasis-sjúkling, sé að láta hann njóta sólar og sjóbaða I suðlægum löndum. Ahrifin eru mjög góð, Á islandi rétt eins og annars staðar er mikið um psoriasis sjúklinga. Þeir hafa myndað með sér samtök, og hafa reynt að fá með því málum sinum borgið. Hér segir frá málum psoriasis-sjúklinga i Noregi, en þar verða mál þeirra tekin fyrir i stórþinginu i haust. bæði andlega og likamlega. Sjúklingarnir finna að þeim fer að liða skár, og i mörg- um tilfellumhverfa einkennin algjörlega, og þeim léttir sem eðlilegt er. Eftir þrjár til fjórar vikur geta þeir snúiðheim á leið með endurnýjaðaan Ufskraft og baráttu- vilja, þrátt fyrir þennan króniska sjúk- dóm, og tekið til við sin fyrri störf á nyjan leik. Bæði læknum og sjúklingum kemur samanum, að beztsé fyrir sjúklingana að halda suður á bóginn að vetrarlagi. En sjúkdómurinn herjar einmitt mest á fórnarlömb sin á þeim árstima. Þykir þvi rangt, að norsk heilbrigðisyfirvöld haldi áfram að kosta sjúklinga til suðurfarar á sumrin, eins og gert mun hafa veriö til þessa. 1 ráði er, að taka fyrir mál psorias- is-sjúklinga á norska Stórþinginu nú I haust, og verður þá lagt fram frumverp frá félagsmálaráöuneytinu um „lofts- lagsmeðferð” sjúklinga erlendis. Viö þetta tækifæriverða lagðar fram skýrslur um árangur sem náðst hefur viö meðferö sjúklinga á suðlægum stöðum undanfarin þrjú ár. Árlega munu um 500 psorias- is-sjúklingar hafa fariö til Júgóslaviu á timabilinu mai til september og dvalizt þar um fjögurra vikna skeið. Hafa opin- ber yfirvöld greitt kostnaö af þessum ferðum eins og væri um sjúkrahúsmeð- ferð að ræða heima i Noregi. En nú erkomið að stjórnmálamönnum I Noregi að ákveöa um frekari framgang Framhald á bls. 27.

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.