Heimilistíminn - 12.07.1979, Síða 14
Ku Klux Klan-
krossinn
brennur á ný í USA
Hin skelfilega bandariska
hreyfing Ku Klux Klan er tek-
in til starfa af fullum krafti á
nýjan leik, að þvi er bezt
verður séð. Klan-leiðtogarnir
hafa i mörg ár reynt að koma i
veg fyrir að ofbeldi og hryll-
ingsaðferðum sé beitt innan
hreyfingarinnar, en nú eru
menn farnir að sjá æ oftar
hinn logandi kross i Suðurrikj-
unum, tákn Ku Klux Klan.
Einnig sjást grimuklæddir
menn, skotvopn ogsvipur, rétt
eins og gerðist, þegar hreyf-
ingin var upp á sitt bezta.
Allt bendir nii til þess að Klan-hóparnir,
sem beita vopnum fyrri daga, valdbeit-
ingu og misþyrmingum, séu að verða
sterkari og sterkari með hverjum deg-
inum sem liður. Verst er ástandið i Missi-
sippi og norðanverðu Alabama-riki. Þar
eru nýir félagar I Ku Klux Klan nU að
minnsta kosti 1500.
Maðurinn, sem heldur um taumana, er
William Wilkinson frá Denham Springs I
Louisiana. Hann er aöeins 34ára gamall,
en er aðalmaðurinn i mjög sterkum hópi,
sem kallar sig ósýnilegu dómarariddara
Ku Klux Klan. Sjálfur er hann kallaður
„keisaralegi töframaðurinn” og hann
dregur ekki dul á að fólk hans óttast ekki
nokkurn skapaðan hlut — ekki yfirvöldin
og alls ekki hina hörundsdökku I
nágrannabyggðunum. Klan-ið, sem hann
stjórnar, er eitthvert hið herskáasta af
sexstærstuKlönunum, sem starfandi eru.
Talið er, að þriðjungur allra starfandi
Klans-mannaséuundir stjórn Wilkinsons.
Wilkinson fer ekki dult með það, að of-
beldi er ofarlega á lista hjá honum og
mönnum hans. A Klan-fundi i Gunters-
ville nú ekki alls fyrir löngu kom hann
fram umkringdur fimm grimuklæddum
lifvörðum, sem allir voru vopnaðir vél-
byssum, eða gömlum veiðibyssum. —
Þessar byssureru ekki ætlaðar til kanínu-
veiða, sagði Wilkinson. — Þær duga vel
gegn mönnum.
Bannað er að menn eigi sjálfvirkar vél-
byssur, en þrátt fyrir það hefur Klan-inu
tekizt að komast yfir nokkrar sllkar.
Vopnabúr flokksins er mjög fullkomið, og
geta menn fengið að sjá þaðef fullri þag-
mælsku er heitið.
Fýrir nokkrum vikum var samþykkt I
borgarstjórn Decatur í Alabama að
bannað væriað bera vopn innan 300 metra
fjarlægð frá öllum þeim mótmælafund-
um, sem haldnir væru með leyfi yfir-
valda. Klanið svaraði meö eigin mót-
mælaaögeröum. Tvö hundruð kuflklæddir
menn, alvopnaðir fóru i fylkingu í gegn
Framhald a bls. 16
14