Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 15

Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 15
Næturdrottning og systir hennar prinsessa næturinnar Næturdrottningin eða selenicereus/ nefnist einn sá kaktus, sem þykir öðrum merkilegri. Líklega er það vegna þess að erfitt er að fá hann til að blómstra að minnsta kosti hjá ófaglærðum blómaræktendum, en þegar blómið svo loksins springur út stendur það ekki nema klukku- tima eða eina einustu sumar- nótt. Blómið er rjómalitað og af því er vaniliuilmur. Ilmur- inn helzt lengi inni þar sem blómið hefur sprungið út, löngu eftir að það er fallið... Næturdrottningin hefur mjúka 2-3 cm svera leggi, sem veröa purpura- rauðir, þegar plantan tekur að gaml- ast. I heimalandi sinu, Suður-Ame- riku, vex kaktus þessi upp á að veröa eins konar runni, metrahár, eða rétt- ara sagt með metra langa leggi, sem ekki risa allir upp vegna þess hve grannir þeir eru. I heimahúsum gera menn það gjarnan aö binda upp legg- ina, vegna þess að annars likist plant- an meira hengiblömi en öðru. Næturdrottningin blómstrar óskap- lega fallegum blómum, sem geta verið að minnsta kosti 20 cm i þvermál. Kaktus þessi nýtur sin bezt I hita en hann þolir ekki vel allt of mikla sól, hálfskuggi er beztur. Bezt er að vökva kaktusinn reglu- lega og gjarnan með áburði svona annað slagið. Einnig getur verið mjög gott að úða vatni yfir næturdrottning- una i baðherberginu þar til knúpparn- ir fara aö myndast. A veturna verður að fara varlega i að vökva drottning- una vegna þess að þá þarf hún ekki mikiö vatn. Bezt er að láta hana standa á björtum en svölum stað þar sem hitinn er helzt ekki mikið meira en 12 stig. Bezt er að taka græðlinga af nætur- drottningunni aö vorlagi og þá gjarnan litla búta framan af einhverjum leggnum. Selenicereus pteranthus, prinsessa næturinnar er hálfsystir nætur- drottningarinnar. Blómin okkar 15 á

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.