Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 19
OSTUR — EEMN
TVEIR OG ÞRlR
Ostur býður upp á óend-
anlega möguleika, hvað við
kemur framreiðslunni, og
eitt er víst, öllum þykir gott
að fá ost, hvort sem hann er
aðeins niðurskorinn og bor-
inn fram með brauði, kexi
og ávöxtum, eða þá honum
er blandað á einhvern hátt i
gómsætan rétt. Engin veizla
er án osta, það höfum við öll
reynt mörgum sinnum.
Hér eru þrjár hugmyndir að osta-
réttum.
Skinka og ostur
Blandið saman 1 1/2 bolla af niður-
skorinni skinku, 1 bolla af rifnum
bragðsterkum osti, 1 1/2 bolla af
rjóma, 3 þeyttum eggjum, 1/4 tesk.
salti, 1/8 tsk. svörtum pipar, og 1/8
tsk. negul.
Hellið blöndunni I stórt form, sem
áður hefur verið þakið innan með
venjulegu pædeigi. Bakið iheitum ofni
I 30—35 minútur.
Þetta er ágætur réttur á kvöld-
verðarborðið, eða með kaffi og kökum
i staðinn fyrir einhvern heitan brauð-
rétt.
Sólblóm á ostabakka
Ostabakka má útbúa á margvisleg-
asta hátt. Hér er niðurskorinn ostur,
sem raðað hefur verið upp eins og væri
hann útsprungið blóm. Þar sem viö
höfum ekki tækifæri til þess að birta
myndina i lit, er_ekki vist, að þið sjáið,
nógu greinilega, hvernig þetta er gert.
Valdir hafa verið ostar, mismunandi
að gerð og lit, ljósir og dökkir, og
sneiðunum raðað i hvern hringinn inn
af öðrum.
tslenzku ostarnir eru nú orðnir svo
margbreytilegir, að þetta ætti ekki að
vera erfitt hér, fremur en annars stað-
ar. Venjulegur brauðostur er fremur
ljós, en siðan koma litbrigöin t.d. með
maribo-osti, sem er dekkri. Þið gætuð
meira að segja sneitt niður mysuost,
og þá verður hann mun dekkri en
nokkur sú tegund, sem hér hefur verið
höfð á bakkanum.
Berið ostabakkann fram með marg-
breytilegu kexi og ferskum ávöxtum,
sem ekki þurfa að vera á ostabakkan-
um sjálfum, heldur allt eins vel i skál
til hliðar á borðinu.
Ostur, brauð og rækjur
Setjið einn og hálfan bolla af rauð-
vini i fondue pott og látið hitna. Biand-
ið út i 2 1/2 bolla af rifnum sterkum
osti, 2 matsk. af hveiti, og hrærið vel
saman. Bætið þessu næst út i 2 mat-
skeiðum af smjöriog 2 matskeiðum af
rjóma. Kryddið með 1/4 tesk. salti og
1/8 tesk. af svörtum pipar.
Berið fram með franskbrauði, sem
skorið hefur verið niður i teninga og
einnig rækjum, sem hvort tveggja er
stungið niður i ostajafninginn, og siðan
borðað.
i
19