Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 15.11.1979, Qupperneq 13

Heimilistíminn - 15.11.1979, Qupperneq 13
óhindrað. Hvernig er hægt að fara meðalveginn svo vel fari? Hér birtum við fáeinar myndir, sem sýna hinn „gullna" meðalveg, að minnsta kosti að áliti ein- hverra, — kannski ekki allra. f stað þess að nota gardínur í þess orðs venjulegri merkingu hafa hér verið notaðir litlir dúkar útsaumaðir og f íleraðir. A mynd númer eitt er notaður egglaga dúkur, saumaður með venesíönskum saum. Hann hefur verið spenntur milli tveggja lista, sem síðan eru festir innan I gluggann. A mynd númer tvö eru einnig útsaumaðir dúkar, en I þetta skiptið hafa þeir verið strengdir á ramma, sem svo er festur I gluggann. Þriðja myndin sýnir fíleraðan kringlóttan smádúk, sem festur er með böndum út í horn gluggans. Þarna mætti allt eins nota heklaðan smá- dúk, ef hann er til á heimilinu. Ef margar smárúður eru í glugganum getur verið fallegt að hafa eina kringlu í hverri rúðu, eða þá ferkantaða dúka, eins og eru á mynd númer fjögur. Að lokum er það svo fimmta myndin þar sem af- langur dúkur hefur verið festur á lista, og hangir eins og kappi i glugganum. Svona má hafa bæði sem efri og neðri gardínu í glugga, ef þess er óskað. Þetta gæti verið skemmtileg tilbreyting í staðinn fyrir hinar hefð- bundnu eldhúsgardínur, sem eru búnar að vera nokkuð fábreytilegar um margra ára skeið. Þessir ólíku smádúkar eiga það sameiginlegt, að þeir hleypa birtunni skemmtilega í gegn um sig, um leið og þeir skyggja svolíðá það, sem fyrir innan gluggann er. Af dúkum einsog þessum er mikið úrval í flestum handavinnubúðum, og svoeiga líka flestir eitthvaðaf gömlum hekluðum dúkum heima há sér, sem nota má á þennan hátt, ef ekki er verið að nota þá á borð eða önnur hús- gögn. 13

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.