Heimilistíminn - 15.11.1979, Síða 18

Heimilistíminn - 15.11.1979, Síða 18
eftir Marcella Thum röddin var vingjarnlegri, þegar hann sagði: — Ungfrú Prentice — þér ættuð ekki að vera á ferli um húsið svona seint. Er eitthvað að? — Nei... nei, stamaði ég og reyndi að jafna mig. — Ég gat ekki sofið og datt i hug að svo- litill mjólkursopi gerði mér gott.Fyrirgefið, ef ég hef hrætt yður..... Hann hristi höfuðið eins og hann væri að reyna að losna undan áhrifum vonds draums. — Þetta var min eigin sök.... eitt augnablik hélt ég ... Hann sleppti takinu á handlegg minum og steig eitt skref aftur á bak. — Ég hlýt að vera þreyttari en ég hélt mig vera. Nema ég hafi drukkið of mikið viský. Jonas er enn á fótum, og ég skal biðja hann um að koma með mjólk upp til yðar.... Næstum allur likami hans var hulinn myrkr- inu, en skin lampans féll á andlit hans, sem ég sá greinilega. Allt i einu datt mér i hug, að náttkjóll og sloppur væru ekki réttu fötin til þess að standa hér og halda uppi samræðum. Mér fannst ljósið frá lampanum næstum brenna mig i andlitið, og ég sneri mér snöggt við. — Þakka yður fyrir. Fyrirgefið, ef ég hef verið til vandræða. — Þetta eru engin vandræði, sagði hann sannfærandi. — Ég sat og var að vinna við bókfærsluna. Tölur eruekki min sterka hlið, og Giles er engu skárri en ég, þvi miður. Ósjálfrátt sneri ég mér við. — Faðir minn sagði alltaf, að ég væri góð i stærðfræði? Ef til vill gæti ég hjálpað yður við 18 bókfærsluna, hrökk út úr mér, áður en ég hafði náð að hugsa. — Þetta er mjög vingjarnlega boðið! ungfrú Prentice, en ég geri ráð fyrir, að þér eigið eftir að hafa nóg að gera með Quentin. Hann hló lágt og á næsta augnabliki rétti hann út höndina og strauk létt og mjúkt yfir slegið hár mitt. — Á þessari stundu litið þér alls ekki út fyrir að vera nógu gömul til þess að kenna einhverj- um eitthvað. Höndin stöðvaðist eitt augnablik, en það var eins og timinn stæði kyrr. Ég horfði á manninn fyrir framan mig. Sorgarsvipurinn var horfinn á andlitinu. Augun, sem mættu mínum, voru hlý og full af þrá. Hann virtist bæði opinn og svo viðkvæmur, að auðvelt væri að særa hann eins og ungan drerig. Ég fann til i hjartanu, og æðarnar á hálsi mér þöndust út. Ef til vill voru tilfinningar minar allt of auðlesnar úr svip minum, vegna þess að skyndilega fann ég hvernig hárið á mér festist i grófri, vinnulúinni hendinni, þegar hann dró hana að sér. Hann dró enn djúpt andann og röddin var hranaleg, þegar hann sagði: — Það er bezt, að þér farið upp i herbergið yðar. Ég tók lampann og hljóp upp stigann, og fann að maðurinn, sem stóð fyrir neðan, horfði á eftir mér. Eftir stutta stund kom Jonas upp með volg a mjólk handa mér. Þegar ég var búin að drekka hana og hafði lagzt aftur upp i rúmið, fann ég að ég gat ekki sofnað að heldur.

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.