Heimilistíminn - 26.04.1981, Page 6
Má hjálpa mongólítum með auk-
inni vítamín- og steinefnagjöf?
Er hægt að auka á and-
legan þroska þeirra, sem
fæddir eru vangefnir með
því að auka vítamingjöf og
bæta steinefnim i fæðuna? í
merkilegri tilraun nokkurra
visindamanna hefur tekizt
að hækka greindarvisitölu
hjá nokkrum mjög van-
þroska einstaklingum, og
Eru þær eins?
Finnið fimm atriði, sem ekki eru eins
Lausn á bls. 15
þá sérstaklega hjá mongó-
lítum.
í janúarhetti bandariska visinda-
ritsins Proceedings of the National
Academy of Sciences, segir frá þvi, að
hópur visindamanna undir stjórn Ruth
Harrell hafi unnið að áðurnefndri til-
raun. Ruth Harrell var áður prófessor
i sálarfræöi við Old Dominon Univers-
ity i Norfolk i Virginiu og er vel þekkt á
sinu sviði.
1 tilraun visindamannanna tóku þeir
22 mjög mikið þroskaheft börn, og
bættu fæðu þeirra á ýmsan hátt. 1 hópi
þessara 22 barna voru átta mongó-
litar. Helmingur barnanna fékk til-
tölulega stóran skammt af hinum
margvislegustu vitaminum, og auk
þess var bætt i fæðu þeirra átta stein-
efnum þrisvar á dag i fjöra mánuði.
Hin börnin fengu svokallað placebo-
efni, sem ekki haföi nein áhrif.
Eftir fyrstu fjóra mánuðina kom i
ljós að greindarvisitala barnanna
hafði vaxið greinilega. Mæidist hún nU
fimm stigum hærri en áður hefði verið
hjá þeim börnum, sem fengu auka-
skammta af vitaminum og steinefn-
um. Tiirauninni var haldið áfram og
þá fengu börnin, sem áður höfðu fengið
placebo einnig vitamin og steinefni i
fjóra mánuði. Að þeim tima liðnum
haföi gáfnavisitala þeirra hækkað um
10 stig að meðaltali.
Báðir hóparnir voru nU i fjóra mán-
uði til viðbótar látnir fá viöbótar-
skammta af vitaminum og steinefn-
um. Að þvi loknu var gerð könnun á
gáfnastigi þeirra og kom i ljós, aö
meðaltalshækkun hjá börnunum öllum
var 16 stig frá þvi, sem verið haföi,
þegar þau voru fyrst tekin tii meðferð-
ar.
1 einu tilfellinu, hjá barni, sem var
mongóliti, hafði gáfnatalan hækkað
um 25 stig, og var það algjört met.
Þess má geta, að almennar gáfur
mælast eitthundraö stig.
Visindamennirnir komust sjálfir að
þeirri niðurstöðu, eftir þessar tilraun-
ir, að I raun og veru mætti gera eitt-
hvaö til að auka andlegan þroska með
vitamin- og steinefnagjöf. Börnin
mældust ekki aðeins gáfaðri heldur
breyttust þau að þvl leyti, að þau urðu
á ailan hátt liprari og auðveldari við-
fangs: Þau þyngdust lika, en um ieið
dró Ur vatnssöfnun I andlit, handleggi
og fótleggi barnanna. Þfb
6
/