NT - 29.05.1984, Blaðsíða 1

NT - 29.05.1984, Blaðsíða 1
Líf og fjör í farsinu! ■ Kjötfars og fiskfars sem haft er til sölu í verslunum á Reykjavíkursvæðinu er sumt yfirfullt af alls konar gerlum. Gerlar þeir sem eiga sér bú- stað í einu grammi af fiskfarsi reyndust þannig í einu tilviki jafnmargir íbúum Banda- ríkjanna þegar Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis rannsakaði gerlainnihald í kjötfarsi og fiskfarsi fyrir skömmu. Niðurstöður rannsóknar- innar voru birtar á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Á fund- inum var ennfremur rætt um innflutning á kartöflum og grænmeti en þau mál hafa verið mjög í brennidepli að undanförnu sem kunnugt er. Þá var kjörin ný stjórn. Form- aður var kosinn Sigurður Sig- urðsson og tekur hann við af Jóhannesi Gunnarssyni. Sjá nánar um rannsóknina á bls. 4 Tveirfélluaf vinnupalli og slösuðust ■ Tveir menn slösuðust í gær er vinnupallur við hús við Óðinsgötu brast undir þeim. Féllu þeir niður á gangstétt, þriggja til fjögurra metra fall og öklabrotnaði annar, en hinn brotnaði á báðum hælum. Þriðja manni sem var við vinnu á pallinum tókst að verjast falli. Maðurinn sem ökla- brotnaði er iðnaðarmaður en hinn sem hælbrotnaði er eigandi hússins, sem verið er að vinna við, Arn- ar Jónsson leikari. Þeir voru báðir fluttir á Borgar- spítalann. Rannsóknar- lögreglan, Vinnueftirlitið °g Öryggiseftirlit borgar- innar rannsökuðu vett- vang og er helst álitið að leyndur fúi í þverbita hafi valdið slysinu. Árekstur í kappakstri ■ Um þessar mundir fer fram kappaksturskeppni í Indianapolis komast lífs af. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús, þar sem í Bandaríkjunum. Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér, þá hann hefur legið á gjörgæslu. < hefur keppnin ekki verið áfallalaus. Annað slys setti svip sinn á þessa keppni. Gordon Johnson Bandarískur kappakstursmaður, Patrick Bedard, ók á öryggis- þekkt kappaksturshetja, fór út af brautinni, ók á öryggisgirðingu girðingu kappakstursbrautarinnar, og gjöreyðilagðist ökutækið , og kastaðist út fyrir hana. Nærri lá að ökutækið ienti á einum af eins og sjá má. Undravert má teljast að ökumaðurinn skyldi bitvélavirkjum keppninnar. Gordon slapp með öklabrot. Áburdarskort- ur í Gufunesi - verksmiðjan stopp í þrjár vikur vegna bilunar ■ Tilfínnanlegur áburðar- skurtur hefur verið hjá Áburð- arverksmiðju ríkisins í Gufnesi að undanförnu og hefur það víða bitnað á bændum. Ástæð- an er að sögn Þorsteins V. Þórðarsonar sölustjóra að sýr- uverksmiðja fyrirtækisins bilaði um mánaðamótin aprfl-maí og komst fyrst í lag fyrír nokkrum dögum. Af þessum sökum stöðvaðist öll framleiðsla í þrjár vikur en á þeim tíma átti að framleiða um 5000 tonn af tún- blöndum fyrir bændur. Nú er væntanlegur til landsins skips- farmur með áburði frá Noregi, um 2500 tonn. Upphaflega pantaði verksmiðjan 5000 tonn en vegna verkfalls í Noregi tókst ekki að koma nema einum skipsfarmi úr höfn þar ytra. „Við eigum ennþá nóg af kjarna, magna og garðáburð í kartöflugarða en vantar tún- blöndur", sagði Þorsteinn, „að undanförnu höfum við selt sól- arhringsframleiðsluna af henni á einum degi, en þar kemur fleira til. Það hefur vorað óvenj- usnemma í ár ög þá fyllast bændur bjartsýni. Þeir bæta við fyrri pantamr og hætta við að hætta búskap", sagði Þorsteinn. Þá kom fram hjá Þorsteini að norski áburðurinn væri væntan- legur til landsins á næstu dögum og er þá búist við að vandinn verði úr sögunni. Loðin svör í heróínmálinu ■ „í stuttu máli: við erum bara engu nær eftir þetta skeyti“ sagði Arngrímur Isberg fulltrúi lögreglustjóra um svar sem . barst frá norskum yfírvöldum í gær við fyrirspurn íslenskra lög- regluyfirvalda vegna ummæla Oddmund Dahle, starfsmanns norsku fíkniefnalögreglunnar í Pakistan, við fréttamann ríkis- útvarpsins um að ísland væri líklegur viðkomustaður þeirra sem vilja smygla heróini til Evr- ópu. „Það er ekkert handfast að finna í skeytinu um hvort þetta er raunhæfur möguleiki. Þarna virðist vera um ákveðinn orð- róm að ræða sem menn geta síðan lagt sitt mat á“ sagði Arngrímur. Arngrímur sagði að Dahle hefði sent norskum lögregluyfir- völdum skýrslu um þetta í vetur en hún hefði aldrei borist hingað, enda væri erfitt að henda reiður á upplýsingunum. „Það er sem sagt enginn ákveðinn grunur á einn eða neinn og ekkert staðfest. Það er ekk- ert hægt að vinna eftir þessu og einnig væri hvort cð er erfitt að eiga við þetta því ísland er engin endastöð samkvæmt þess- um orðrómi. Það væri nánast útilokað nema fá öruggar upp- lýsingar frá annaðhvort upp- hafsstað eða endastað. En fyrst þetta vrðar okkur ekki á annan hátt lilýtur öll vinnan að beinast í aðrar áttir." Olafur Jóhannesson jarðsunginn í dag ■ í dag verður Ólafur Jóhannesson, fyrrum forsætisráðherra, borinn til grafar frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Utförin er gerð á vegum ríkisstjórnarinnar og hefst athöfnin kl. 13.30. Þórir Stcphensen, dómkirkjuprestur jarðsyngur og dómkórinn flytur útfararsálm. NT vottar aðstandendum hins látna samúð á útfarardaginn. Ólafs Jóhanncssonar er minnst í aukablaði NT í dag, á blaðsíðum 11-18.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.