NT - 29.05.1984, Blaðsíða 2

NT - 29.05.1984, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 29. maí 1984 2 Listahátíðin: Opnuð með veglegri hátíð ■ Listahátíð verður opnuð formlega í Laugardalshöll n.k. ■ Sprelligosarnir í Bob Kerr's Whoopee Band eru að eigin sögn í tölu skemmtilegustu manna Bretaveldis og þeir verða meðal þeirra sem eiga að létta skap landans á opnunar- hátíðinni. föstudag, 1. júní og verður þar margt gert til að gleðja augu, eyru og maga. Húsið verður opnað kl. 20.00 og kl. 21.00 leikur Sinfóníu- hljómsveit íslands há- tíðarmars Páls ísólfs- sonar og því næst held- ur menntamálaráð- herra setningarræðu sína. Eftir það verða atriðin öll heldur af léttara taginu. Tveir flokkar erlendra lista- manna koma fram um kvöldið Bob Kerr’s Whoopee Band frá Englandi standa tynr uppákomu, en þeir félagar segjast vera þeir þriðju skemmtilegustu í heimalandi sínu. Tónlist þeirra og fram- ganga öll á sér einkum þann göfuga tilgang að kitla hláturs- taugar viðstaddra, svo sem nafnið bendir raunar til. Þá verður einnig um kvöldið uppákoma viðfrægs banda- rísks leikflokks, Morse Mime Theater en flokkurinn er nú á löngu leikferðalagi og tókst að fá hann til að staldra hér við. Sendibílstjórar í stríði við DV: Teljafariðinná á sitt verksvið ■ Sendibílsstjórar stöðvuðu dreifingu DV í hádeginu í gær með því að leggja bflum sínum fyrir framan prentsmiðju Morg- ■ Magnús Einarsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn les bréf frá samgönguráðuneytinu sem sendibflstjórar lögðu fram til stuðnings kröfum sínum en þar telja þeir vera skýrt kveðið á um verksvið sendibflstjóra. unblaðsins í Skeifunni þar sem DV er prentað. Lögreglan var kvödd á staðinn. Að sögn Magnúsar Einarssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns báru sendibílstjórar að þeir væru að mótmæla því að farið væri inn á þeirra verksvið með því að DV fengi ökutæki sem ekki væru inni á sendibíla- stöðvum til að dreifa blaðinu. Dreifingarstjóri DV taldi hins vegar að þarna væri um verk- taka að ræða sem sæju um blaðaútkeyrslu. Um þetta var rituð lögregluskýrsla og sendi- bílstjórar yfirgáfu síðan vett- vang að beiðni lögreglu. „Þetta snýst um að við erum að reyna að fá fólk til að fara ekki inn á okkar verksvið eins og gert er hjá DV“ sagði Björn Baldursson bílstjóri hjá sendi- bílastöðinni, Þresti við NT í gær. Björn sagði að þetta væri gert víðar en vildi ekkert segja um hvort svipaðar aðgerðir væru fyrirhugaðar við fleiri fyrirtæki. FILLCOAT ^ NOXYDE gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm- og pappaþök • Ervatnsheld • Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun • Odýr lausn fyrir vandamálaþök. LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA ■ Sendibflarnir fyrir utan prentsmiðju Morgunblaðsins en sendibflstjórar töfðu dreifingu DV um klukkutíma í gær með mótmælastöðu. NT-mynd Sverrir Að fletja málin út ■ Örugglega ekki, er svar formanns Sjálfstæðisflokksins við þeirri spurningu mogga- mannsins Bjöm Bjarnasonar hvort ekki sé tilhneiging til þess hjá alþingismönnum að fletja málin út og teygja allt á langinn. Umrætt viðtal sem birtist í Morgunblaðinu í gær er fyrir marga hluta sakir merkilegt og ef tekið er mið af orðum Þorsteins sjálfs verður að teljast með ólíkindum að það sé við alþingismann... Leggja lóðsar á? ■ Maður nokkur konr að máli við blaðið og sagði að ef reynt væri að ná sambandi við hafnsögumenn í Reykjavík á nóttunni, þá lyítu þeirtólinu af símanum og legðu hann á borðið en svöruðu ekki. Blaða- maður prófaði'þetta á föstu- dagskvöld - - en ætlaði reynd- ar í leiðinni að fá upplýsingar um skipaferðir. Og víti menn þetta stóðst. Það var reynt tvisvar að ná sambandi en í hvorugt skiptið tókst það. Sím- anum var lyft af en síðan gerðist ekkert. í gær var haft samband við skrifstofu hafnsögumanna og sagði sá er fyrir svörum varð að það hefði líklega verið um bilun í skiptiborði að ræða. Skulum við vona að það sé satt -- hitt væri leiðinlegra að þurfa að trúa slíkri mannvon- sku upp á hafnsögumenn, jafn ágætir og þeir nú sjálfsagt eru. Rússinn og konan ■ í bæjum og þorpum lands- ins eru sveitarstjórnir víða um þessar mundir að fjalla um ráðningu umsjónarmanna með unglingavinnu sumarsins. Slíkt ráðningamál var m.a. tekið fyrir í sveitarstjórn á Blöndu- ósi nýlega. Meðal umsækjenda var ung kona á staðnum. Gamlir, reyndir og vísir hreppsnefndarmenn fundu því ýmislegt til foráttu að ráða þessa ungu konu til starfans, ekki síst það að umsjónarmað- ur þarf að flytja á Rússajeppa garðyrkjuáhöld og annað sem til þarf við fegrun bæjarins. Sú breyting hefur hins vegar orðið á hreppsnefndinni á síðustu árum (og vísast ekki til bóta) að þar eiga nú einnig orðið sæti hinar mestu kvenréttindakon- ur, sem tóku hin gildu rök gegn ráðningunni ekki til greina og komu því til leiðar að konan unga var ráðin. Er nú eftir að sjá hvernig henni gengur að glíma við Rússa- jeppann góða í sumar. y Kirkjuvegi 3A Hafnarfirði, símar 54766 og 50538

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.