NT - 29.05.1984, Blaðsíða 28
HRINGDU
I SiMA 8-65-38
Við tökum við áibendingunn um fréttir allan sölarhringinn.
Greiddar verða t OOO krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fróttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gsett
sas
Úlfar tveimur systrum en þriðji
þríburinn, bróðir, tók ekki bíl-
próf þá. En nú semsagt tóku
þau Hildur Gylfadóttir og Ásge-
ir og Jón Trausti Gylfasynir
bílpróf. Úlfar sagðist hafa rugl-
ast aðeins í ríminu til að byrja
með en þekkti nú bræðurna í
sundur. Þau skiptast nú á að
keyra gamla „Voffann" hennar
mömmu og gengur það vel.
Bræðurnir segjast hafa prófað
rúntinn og planið í Firðinum og
sé það ágætt. Og nú er bara að
hafa báðar hendurnar á stýrinu,
„tíu mínútur í tvö“ eins og
Úlfar segir.
Hafnarfjörður:
ÞRÍBURABÍLPRÓF
■ Það er ekki á hverjum degi
sem þríburar taka bílpróf en
það gerðist í Firðinum nú í
síðustu viku. „Petta er eins-
dæmi“, sagði Úlfar Haraldsson
ökukennari. í janúar kenndi
■ Úlfar ökukennari, Ásgeir, Hildur og Jón Trausti. Ásgeir vildi meina að meðan að á náminustóð hafí Jón Trausti verið dálítiö gjarn
á að stjórna úr aftursætinu, en þeir bræður eru mjög samrýmdir. Á hinni myndinni eru Hildur, Ásgeir og Jón Trausti á leið í
umferðarfræðslu, 1973, í Vogaskóla. Og enn eru það sömu reglurnar sem gilda þó farartækið breytist. NTmynd Róbert og Guðjón
Bessastaði
Álftanes:
Ekkert bensín á
■ Á fundi sínum sl. laugardag samþykkti
hreppsnefnd Bessastaðahrepps að falla frá
bókun sem gerð var 31. mars sl. þar sem því var
lýst yfír að æskileg staðsetning fyrir bensínstöð
væri við Bessastaðaafleggjarann.
„Já, ég er mjög ánægður með
þetta,“ sagði Árni Björnsson
læknir, en hann býr að Blátúni
4 á Álftanesi. „Það má náttúr-
lega deila um þörfina á að
byggja bensínstöð hérna, en á
þessum stað er það alveg frá-
leitt.“
í samtali við NT sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri hjá Olíufélaginu hf. að
aldrei hefði verið sótt formlega
um leyfi fyrir bensínstöð, en
lýst yfir vilja Olíufélagsins til að
byggja þarna stöð.
Hann sagði að ekki hefði
komið til tals að flytja mögulega
staðsetningu stöðvarinnar.
Hann sagði að Olíufélagið hefði
nýlega keypt þetta land með
byggingu bensínstöðvar í huga
en að engin ákvörðun hefði
verið tekin um byggingu slíkrar
stöðvar.
Þegar fréttist af hugmyndum
um byggingu bensínstöðvar á
þessum stað hófu íbúar Bessa-
staðahrepps undirskriftasöfnun
og skrifaði meirihluti atkvæðis-
bærra íbúa hreppsins undir, þar
sem áformunum var mótmælt.
Það var í Ijósi þeirra undir-
skrifta sem hreppsnefndin tók
þessa ákvörðun, að falla frá
bókuninni.
Enn hefur ekki verið sam-
þykkt aðalskipulag fyrir hrepp-
inn né deiliskipulag.
■ Þarna átti bensínstöðin að
rísa. NT mynd Ari.
29. maí 1984.
Vorhvöt segir:
Kartöflur
til Almanna-
vama
■ Kvenfélagið Vorhvöt
leggur til, að hin nýja stjóm-
stöð Almannavarna verði
nýtt sem kartöflugeymsla á
fnðartímum.
Stjórnarfundur Vorhvat-
ar bendir á, að stjómstöðin
sé ákjóstinlegur geyntslu-
staður lyrir frjálsar kartöfl-
ur, þar sem hún veiti 2(XK)-
falda skýlingu gegn geislun
og annarri mengun. Þá
bendir fundurinn á, aö þessi
lausn hefði í för með sér, að
matarbirgðir væru í skýlinu
fyrir þá, sem þar vistuðust ef
til ófriðar kæmi.
Undirskrifta-
söfnun
hafin til
stuðnings
Andrei
Sakharov
■ Undirskriftasöfnun til
stuðnings sovéska vísinda-
manninum Andrei Sak-
harov og konu hans Yel-
enu Bonner er nú að hefj-
ast hér á landi. Þar er
skorað á sovésk stjórnvöld
að veita þeim hjónunt felsi
úr éinangrun og farárleyfi
til Vesturlanda.
Sakharov er kunnastur
andófsmanna í Sovétríkj-
unum og hann heíur í
fjölda ára barist fyrir
mannréttinduin í heima-
landi sínu, jafnframt því
sem hann hefur verið tals-
rnaður friðsamlegra sam-
skipta þjóða í milli. Sak-
harov fékk friðarverðlaun
Nóbels árið 1975.
Shakharov var fluttur
frá heimili sínu í borginni
Gorkí hinn 7. maf sl., cn
þá hafði hann verið í
hungurvcrkfalli í 5 daga til
að undirstrika ósk þeirra
hjóna um fararleyfi til
Vesturlanda fyrir Yelenu
Bonner, sem þjáist at'
hjartasjúkdómi. Heilsu
Sakharov hjónanna hefur
hrakað mjög að undan-
fömu og nú er svo komið,
að óttast er um líf þeirra.
Fimm vetra
merií
Skagafirði:
Kastaði
tveimur
lifandi
folöld
um
■ Fimrn vetra meri kast-
aði á föstudagskvöldið
tveimur fullþroska folöld-
um á bænum Syðra Skörðu-
gil í Skagafirði en slíkt mun
vera afar fátítt. Fyrst í stað
virtust bæði fölöldin við
góða heilsu og fýlgdu móður
sinni. Á sunnudagsmorgun
fór að draga af öðru þeirra
og dó það seinna sama dag.
Merin hafði verið i tamn-
ingu á liðnum vetri en var
tekin úr henni þegar sýnt
var að hún hafði fengið
slysafang. „Hún hefúrslopp-
ið inn í girðingu þar sem
voru tveggja vetra folar und-
an Hervari frá Sauðárkróki,
án þess að við vissum af því,
þannig að feðumir geta ver-
ið margir", sagði Einar
Gíslason að Skörðugili, eig-
andi merarinnar. Að sögn
Einars er merin hinn falleg-
asti gripur sem hann hafði
fengið frá Hvanneyri, undan
Hlyn og Katrínu.
Folaldinu sem eftir lifir og
merinni heilsast vel sam-
kvæmt þeim upplýsingum
sem NT fékk síðdegis í gær.