NT - 29.05.1984, Síða 24
Þriðjudagur 29. maí 1984 24
Utlönd
-Niðurstaða
réttarrann-
sóknari lsrael:
Hermenn börðu fanga til dauða
Tel Aviv-Reuter
■ Opinber réttarrannsókn í
Tel Aviv hefur leitt í Ijós að
tveir palestínskir skæruliðar
voru drepnir án dóms og laga
eftir það þeir höfdu verið hand-
teknir þann 12. apríl síðastlíð-
inn.
Skæruliðarnir tveir höfðu
ásamt tveimur félögum sínum
tekið 35 farþega í gíslingu í
strætisvagni. I skotbardaga sem
varð þegar öryggisverðir réðust
á skæruliðana og yfirbuguðu þá
féllu tveir þeirra auk þess sem
einn farþegi lét lítið. En í
tilkynningu yfirvalda um þenn-
an atburð skömmu seinna var
sagt að allir skæruliðarnir hefðu
fallið í skotbardaga við lögregl-
una. Samt sýndu myndir, sem
ísraelskur blaðamaður tók rétt
eftir að skotbardaganum lauk,
að tveir af skæruliðunum höfðu
verið handteknir og voru leiddir
burt að því er virtist ósárir.
Sjónvarvottar sögðu líka að
aðeins tveir skæruliðanna hefðu
fallið í bardaganum.
Stjórnvöld ákváðu þess vegna
loksins að láta fara fram rann-
sókn á því hvernig skæruliðarnir
hefðu látist. Niðurstaða rann-
sóknarinnar er að mestu leyni-
leg en landvarnaráðuneytið birti
samt í gær stuttan útdrátt. Þar
var m.a. viðurkennt að tveir
skæruliðar hefðu verið teknir
lifandi. Við krufningu hefði
komið í Ijós að þeir hefðu látist
vegna þungra höfuðhögga á
hnakkann.
í fréttatilkynningu landvarn-
aráðuneytisins var ekkert sagt
um það hver bæri ábyrgð á
dauða skæruliðanna né hvernig
stóð á þeim barsmíðum sem
leiddu til dauða þeirra. En frek-
ari rannsókn hefur þegar verið
fyrirskipuð til að ákveða hvort
þeim einstaklingum sem bera
ábyrgð á þessu ódæði skuli
refsað.
Einn af leiðtogum Palestínu-
skæruliða í Damascus ásakaði í
gær Moshe Levy, yfirmann ísra-
elska herráðsins, fyrir að bera
ábyrgð á morðunum á Palestinu-
aröbunum tveimur. Hann ásak-
aði ísraelsk stjórnvöld einnig
fyrir að reyna að hylma yfir það
að engin tilraun hefði verið
gerð til að semja við skærulið-
ana áður en öryggisverðir réðust
á þá.
Moshe Arens, landvarnar-
ráðherra ísraels, sagðist vona
að þetta atvik kæmi ekki niður
á meðferð palestínskra skæruliða
PÓTT bæði stjórn og þing
Bandaríkjamanna hafi lagt
beint og óbeint blessun sína
yfir stuðning CIA við Duarte f
forsetakosningunum í El Sal-
vador, nýtur þetta ekki stuðn-
ings allra bandarískra þing-
manna.
Pví fer t.d. fjarri að Jesse.
Helms öldungardeildarþing-
mann North Carolina sé að
finna í þessum hópi. Þvert á
móti hefur hann harðlega deilt
á Casey framkvæmdastjóra
CIA fyrir stuðninginn við Du-
arte og jafnframt krafizt þess
að sendiherra Bandaríkjanna
í E1 Salvador verði rekinn úr
starfi vegna afskipta af kosn-
ingabaráttunni. D’Aubuisson
á hauk í horni þar sem Jesse
Helms er.
Samhliða forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum í nóv-
Helms óttast það ekki að vera nei-maðurinn.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
maður þess, að Reagan yrði
frambjóðandi repúblikana
1980. Hann heimsótti 22 ríki
til að mæla með framboði Rea-
gans og safnaði milljónum
dollara í kosningasjóð hans.
Það verður demókrötum ekki
auðvelt að fella Jesse Helms
Afturhald Bandaríkjanna fylkir sér fast um hann
ember, fara fram kosningar á
öllum þingmönnum fulltrúa-
deildarinnar og þriðjungi öld-
ungadeildarmanna. Meðal
þeirra þingmanna, sem sækja
um endurkjör, er Jesse Helms.
Flest bendir til, að í North
Carolina verði að þessu sinni
háð harðasta kosningabaráttan
í Bandaríkjunum. Af hálfu
vinstri sinna um gervöll Banda-
ríkin verður lagt kapp á að
fella Helms. Hægri menn í
Bandaríkjunum munu leggja
enn meira kapp á að verja
hann falli. Hann mun því ekki
skorta fjárráð í kosninga-
baráttunni.
Demókratar hafa þegar val-
ið mótframbjóðanda hans. Það
verður James B. Hunt, sem nú
er ríkisstjóri í North Carolina,
46 ára. Hann hefur notið mik-
illa vinsælda í North Carolina.
Hann hefur reynzt framtaks-
samur og hliðhollur blqkku-
mönnum, sem eru fjölmennir
í ríkinu. Að ýmsu leyti er hann
þó íhaldssamur.
Hunt vill strangari aðgerðir
gegn glæpum, beita dauðarefs-
ingu og efla herinn. Hann lýsir
sig andvígan frystingu kjarna-
vopna, þótt það sé yfirlýst
stefna flokks demókrata.
Skoðanakannanir bentu til
þess fyrir nokkrum mánuðum,
að Hunt myndi sigra með yfir-
burðum. Síðan hefur bilið milli
þeirra Helms verið að minnka.
Pað kæmi ekki á óvart, þótt
Helms ætti eftir að sækja sig.
JESSE Helms er einn þeirra
bandarískra stjórnmála-
manna, sem á veg sinn sjón-
varpinu mest að þakka.
Helms varður 63 ára 18.
október næstkomandi. Hann
hafði lokið gagnfræðaskóla-
námi, er hann var kvaddur í
sjóherinn 1942. Eftir stríðs-
lokin fékkst hann við blaða-
mennsku og tók þátt í félags-
starfi hjá demókrötum. Árið
1950 gerðist hann kosninga-
stjóri já Willis Smith, sem
keppti að því að vera í fram-
boði fyrir demókrata við kosn-
ingu til öldungadeildarinnar.
I fyrra prófkjörinu fengu
þeir Smith og Frank Graham,
sem var þekktur háskóla-
rektor, flest atkvæði en hvor-
ugur meirihluta. Því varð að
kjósa aftur. Sú barátta þótti
svo illvíg, að hún er enn í
minni höfð. Helms gekk þá'
fram fyrir skjöldu og lýsti Gra-
ham sem meðreiðarsvein
kommúnista.
Petta dugði. Smith vann
prófkjörið og vann síðan kosn-
inguna. Helms fór með honum
til Washington og var aðstoð-
armaður hans þar. Þegar Smith
lézt 1953, sneri Helms aftur til
North Carolina og gerðist þar
meðeigandi í sjónvarpsstöð.
Hann hóf bráðlega að flytja
þar eins konar forustugreinar
eða fimm mínútna erindi, sem
vöktu brátt athygli, sökum
afturhaldssemi Helms.
Hann talaði gegn jafnrétt-
ismálum, fóstureyðingum,
tryggingum og yfirleitt öllum
félagslegum umbótum. Brátt
tóku margar sjónvarpsstöðvar
í suðurríkjunum að endur-
flytja þessi erindi hans, en þau
urðu ekki færri samtals en
2700 á 12 árum. Mörg minni
blöð birtu þau einnig.
Árið 1970 sagði Helms sig
fyrst úr flokki demókrata og
gerðist repúblikani. Hann
bauð sig fram fyrir repúblikana
James B. Hunt og Jesse Helms.
við kosningu til öldungadeild-
arinnar 1972. Hann náði kosn-
inguogvarendurkosinn 1978.
Helms er myndarlegur í sjón
og kemur vel fyrir. Hann er
góður sjónvarpsmaður. Fjöl-
skyldulíf hans er sagt gott.
Hann giftist 1942 og eiga þau
hjón þrjú uppkomin börn.
EFTIR að Helms tók sæti í
öldungadeildinni hlaut hann
fljótlega viðurnefnið nei-mað-
urinn. Helms hældi sér þá oft
af því, að hann væri óragur við
að standa einn.
Eins og áður segir, var
Helms fyrst kosinn á þing 1972.
Hann stóð þá oft einn. Hægri
armur repúblikana var þá fá-
mennur. Þetta hefur breytzt
smám saman. Hægri armurinn
hefur styrkzt í þeim kosning-
um, sem hafa farið fram síðan
1972. Margir hinna nýju öld-
ungadeildarmanna hafa óbeint
og beint skipað sér undir merki
Helms. Einnig hafa ýmsir
demókratar frá suðurríkjunum
hallazt að honum. Helms er
því kominn í hóp áhrifameiri
þingmanna.
Þetta hefur orðið til þess, að
hægri menn víðs vegar um
Bandaríkin hafa gert Helms
að eins konar andlegum leið-
toga sínum.
Þegar Helms sótti um endur-
kjör 1978, söfnuðust um sjö
milljónir dollara í kosninga-
sjóð hans. Þetta voru yfirleitt
lág framlög fjölmargra manna,
flestra utan North Carolina.
Fyrir þingkosningarnar 1980
og 1982 beitti Helms sér fyrir
söfnunum í kosningasjóði, sem
höfðu þann megintilgang að
fella frá endurkjöri leiðtoga
vinstri arms demókrata. Mikið
fé safnaðist í þessa sjóði og bar
þessi starfsemi víða tilætlaðan
árangur. í kosningunum 1980
náðu repúblikanar meirihluta
í öldungadeildinni og juku við
hann í kosningunum 1982.
Helms var mikill stuðnings-;
Helms tók það samt fram,
að þetta þýddi ekki það að
hann myndi styðja Reagan
gegnum þykkt og þunnt. Það
færi alveg eftir mönnum og
málefnum.
Þetta sýndi Helms strax 20.
janúar 1980 eða daginn, sem
Reagan var settur inn í forseta-
embættið við hátíðlega athöfn,
sem fór fram við þinghúsið.
Þremur klukkustundum síð-
ar hófst fundur í öldungadeild-
inni. Til umræðu var tillaga frá
varnarmálanefndinni um að
fallizt yrði á tillögu Reagans
um Casper Weinberger sem
varnarmálaráðherra. Nefndin
mælti einróma með henni.
Það hafði einnig verið búizt
við, að deildin samþykkti til-
nefningu Weinbergers ein-
róma. Það gerðist þó ekki.
Einn öldungadeildarmanna,
Jesse A. Helms, kvaddi sér
hljóðs og flutti 40 mínútna
langa ræðu til að mótmæla
henni.
Að lokinni ræðu Helms
hófst atkvæð,agreiðslan. Til-
nefning Weinbergers var sam-
þykkt með 97 atkvæðum gegn
tveimur. Þeir, sem greiddu
atkvæði á móti, voru Jesse
Helms og John East, en hann
náði kjöri haustið 1980 fyrir
atbeina Helms og hefur verið
dyggur fylgisveinn hans síðan.
Helms óttaðist, að Weinberger
myndi reynast of frjálslyndur.
Sú skoðun hans mun nú breytt.
Helms hefur oft síðan s’núizt
gegn Reagan. Hægri mönnum
virðist líka það vel, að Helms
veiti Reagan þannig aðhald.
Þeir munu líka sjá til þess að
sitthvað mun gerast í North
Carolina áður en Helms er að
velli lagður.
a israelskum hermönnum, sem
þeir hefðu í haldi.
Kólombía:
Veifuðu
hvítum
klútum
Bogota*Reuter
■ Almenningur í Kól-
ombíu veifaði hvítum
klútum í gær til að fagna
eins árs vopnahléi sem
tekist hefur milli stjórn-
valda og skæruliðasamtak-
anna FARC, sem voru
stofnuð fyrir 20 árum.
FARC eru kommúnísk
skæruliðasamtök sem
styðja Sovétríkin í heims-
málum. Það er talið að
þau hafi um 4-5000 manns
undir vopnum. Kommún-
istar hafa nú í hyggju að
reyna að hasla sér völl í
löglegri stjórnmálabaráttu
og hafa stjórnvöld gefið
þeim upp sakir þrátt fyrir
vopnabaráttu undan-
farinna ára.
Auk FARC eru starf-
andi a.m.k. tvö önnur öfl-
ug skæruliðasamtök í Kól-
ombíu þannig að þótt
FARC hætti vopnabaráttu
er ekki víst að friður kom-
ist á í landinu strax enda
hafa klofningshópar á
vinstri væng stjórnmál-
anna í Kólombíu lýst
andstöðu við vopnahléð.
Á þessu ári hafa yfir 360
manns látið lífið vegna
hernaðaraðgerða skæru-
liðanna. Stjórnvöld eru
samt bjartsýn á að þeim
takist að fá aðra
skæruliðahópa til að
leggja niður vopn. Þau
hafa lofað að koma til mós
við sumar kröfur skærulið-
anna í þjóðfélagsmálum
þannig að þjóðfélagslegt
óréttlæti verði minna.
ísraels*
menn
felldir
- Sýrlendingar spá
að allt fari í bál og
brand
Damaskus-Rcutcr
■ Palestínskir skæruliðar réð-
ust s.l. sunnudag á framvarðar-
sveit ísraelska hersins í Beekadal
í Austur-Líbanon. Segjastskær-
uliðarnir hafa fellt allan her-
flokkinn, en ísraelsmenn segja
að þrír af hermönnum þeirra
hafi verið felldir og tveir særð-
ir í fyrirsátinni.
Palestínumennirnir tilheyra A
Asifa, sem klofið hefur sigút úr
Fatah skæruliðahreyfingunni og
er í andstöðu við PLO, frelsis-
samtök Palestínumanna, sem
eru undir stjórn Yasser Arafat.
Fyrirsátin var gerð rétt við það
svæði sem skilur heri Sýrlend-
inga og Israela í Beekadal.
Sýrlenska útvarpið varði að-
gerðir skæruliðanna og sagði að
Israelar væru að undirbúa að-
gerðir sem hleypa mundu öllu í
bál og brand á svæðinu.