NT - 04.06.1984, Qupperneq 11
Mánudagur 4. júní 1984 11
^ Árnað heilla
Árni G. Pétursson, hlunn-
indaráðunautur, sextugur
Þaö hefur voraö vel fyrir-
norðan aö þessu sinni. Þeir eiga.
það líka inni á Sléttunni og í
öðrum norðurbyggðum að fá
nú áfallalaust vor og góða
sumarkomu.,
Því verður okkur hjá Búnað-
arfélagi íslands venju fremur
hugsað norður í dag að þar
dvelur nú einn af okkar glað-
beittustu félögum, Árni G. Pét-
ursson og heldur upp á sextugs-
afmæli sitt örugglega í sátt við
láð og lög, fisk og fugl. Þangað
sendum við honum okkar bestu
kveðjur.
Árni G. Pétursson er fæddur
á Oddsstöðum á Melrakkasléttu
4. júní 1924. Foreldrar hans
voru hjónin á Oddsstöðunr Þor-
björg Jónsdóttir bónda á Ás-
mundarstöðum á Sléttu og Pét-
ur Sigurgeirsson frá Odds-
stöðum. Árni ólst upp á Odds-
stöðum í stórum hópi systkina
og í fjölmennum frændgarði á
Sléttunni. Þó að þessi nyrsta
byggð landsins fast við heim-
skautsbauginn þyki nú ekki að
öllu búsældarleg var þar og er
mörg matarholan bæði til lands
og sjávar. Þar mun afkoma líka
hafa verið góð, enda er þaðan
komið fjölmargt veluppalið
kjarnafólk. Árni er góður full-
trúi í þeim hópi.
Árni fór á Laugaskóla í
Reykjadal 1940 og sat þar á
skólabekk í tvo vetur.
Áður hafði hann hafið sjálf-
stæðan búskap og bjó hann á
Oddsstöðum árin 1939-1943.
Þá sneri hann sér að búfræði-
námi, fór fyrst að Hólum og
lauk þaðan búfræðiprófi 1944
en síðan til Danmerkur og Sví-
Styrktarfélagið:
Verkfalli
frestað
en öllum sagt upp
■ Verkfalli sem sjúkraþjálfar-
ar æfingastöðvar lamaðra- og
fatlaðra höfðu boðað frá og
með deginum í dag hefur verið
frestað og mættu því sjúkra-
þjálfar til vinnu í morgun.
Sjúkraþjálfararnir voru í
verkfalli þrjá daga í síðustu
viku. Öllu starfsfólki æfinga-
stöðvarinnar var sagt upp störf-
um á þriðjudag. Eru uppsagn-
irnar miðaðar við 1. sept.
Síðan samningur sjúkraþjálf-
ara við stöðina rann út í febrúar
síðastliðnum hafa staðið yfir
samningsviðræður. Samkvæmt
fréttatilkynningu sjúkraþjálfara
hefur stjórn Styrktarféíagsins
hvergi vilja koma til móts við
óskir sjúkraþjálfara.
Nú á föstudag var vísað til
Félagsdóms, hvort sjúkraþjálf-
arar stöðvarinnar hafa samn-
ingsrétt. Nú meðan á deilunni
stóð stofnuðu sjúkraþjálfarar
stéttarfélag sjúkraþjálfara, en
eru einnig meðlimir í Félagi
íslenskra sjúkraþjálfara.
Á síðasta ári var 3 milljóna
króna halli á rekstri æfingastöð
Styrktarfélagsins. Að sögn Ótt-
ars Kjartanssonar, formanns
Styrktarfélagsins, nemur hall-
inn nú 300.000 króna á mánuði.
Sagði hann að uppsagnirnar
væru ekki tengdar verkfallinu,
að öðru leyti en að sjálfsögðu
hefðu kauphækkanir í för með
sér enn meiri rekstrarhalla.
Sagði Óttar að óbreyttu ástandi
þyrfti að lokastöðinrú í septem-
ber. En einnig skapa uppsagn-
irnan sagði Öttar, aukið svig-
rúm til breytinga á starfsháttum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hefur verið til umræðu að hið
opinbera tæki við rekstri æf-
ingastöðvarinnar.
þjóðar og bjó sig undir nám við
landbúnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn. Frá þeim skóla
brautskráðist hann 1950. Eftir
heimkomuna gerðist Árni hér-
aðsráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Austurlands og.gegndi
því starfi 1950 til hausts 1952 að
hann var ráðinn kennari við
Bændaskólann á Hólum. Þar
starfaði hann til ársins 1963 að
hann var ráðinn sauðfjárræktar-
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi
íslands. Síðasta árið á Hólum
var hann þar skólastjóri. Jafn-
framt kennslu á Hólum hafði
hann umsjón með sauðfjárrækt-
artilraunum á skólabúinu.
Árið 1970 var Árni ráðinn að
hluta til að leiðbeina um æðar-
rækt en 1980 hætti hann við
sauðfjárræktina og var ráðinn í
fullt starf sem hlunnindaráðu-
nautur og hefur hann mótað það
fjölþætta starf af miklum áhuga
og eljusemi og þegar unnið því
viðurkenningu enda má víða
sjá af því beinan árangur.
Starfsferill Árna við og fyrir
landbúnaðinn er fjölþættur svo
sem ljóst er af því sem að
framan er rakið þó sleppt hafi
verið fjölmörgum hliðargrein-
um sem sem ritstörfum og
nefndarstörfum margháttuðum.
Árni var góður kennari, ná-
kvæmur, en þó lifandi og setti
hlutina vel fram. Hann ergóður
búfjárræktarmaður ' og var
glöggur og nákvæmur dómari á
kosti sauðfjárins og naut því
virðingar sem -sauðfjárræktar-
ráðunautur þó að ekki væri
heiglum hent að setjast í sæti
Halldórs Pálssonar á sínunr
tíma.
Fullyrða má að öll þessi störf
hefur Árni unnið af miklum
dugnaði og einstakri samvisku-
semi. En réttsýni og samvisku-
semi eru þeir eðliskostir sem
einkenna Árna hvað mest.
Árni er hugheill baráttumað-
ur fyrir landbúnaðinn og ís-
lenskar byggðir. Hann hefur
alla tíð haldið tryggð við heima-
byggð sína og jafnan sótt
þangað. Nú síðustu árin hefur
hann raunar búið hlunnindabú-
skap á föðurleifðinni Odds-
stöðum, hlúð þar að æðarvarpi
og ræktað það, hirt um reka og
stundað silungsveiði og hirt um
annað sem landið gefur.
Þessu hefur hann sinnt í
fríum og nreð því skapað sér
sterka aðstöðu til að leiðbeina
öðrum og hvetja til þess að
ekkert sé vannýtt, vannretiðeða
látið spillast af því sem fjölþætt
náttúra landsins getur gefið
okkur. Forystu Árna á þessum
sviðurn hygg ég að verði lcngi
minnst.
Árni er kvæntur Guðnýju Ág-
ústsdóttur frá Raufarhöfn,
mestu dugnaðar og dreng-
skaparkonu og eiga þau hjón
fjórar dætur uppkomnar.
Starfsfólk Búnaðarfélags ís-
lands sendir Árna og fjölskyldu
hans sínar bestu árnaðaróskir í
tilefni tímamótanna. Árni á
skilið mikið þakklæti fyrir marg^
ar góðar og glaðværar samveru-
stundir bæði við störf og í leik.
Við væntum þess að -hann
verði sem lengst í okkar röðum
en því er ekki að leyna að Árni
hefur haft það við orð að hætta
störfum þegar aldursreglur leyfa
og helga sig þá enn meira koll-
unr sínum og ungum þeirra svo
og öðrurn vinum sínum á Slétt-
unni.
Þó að við höfum ekki komið
því við að heimsækja hann núna
munum við leita færis síðar á
Sléttuna og njóta þar með hon-
um hinnar nóttlausu voraldar-
veraldar þar sem víðsýnin skín.
Jónas Jónsson
ó 4
^ Útihátíð í
ÞJÓRSÁRDAL
8. til 10. júní
3 DANSLEIKIR
Hljómsveitirnar Mánar, Pardus og Lótus leika fyrir dansi
föstudag, laugardag ogsunnudag kl. 21.00 til 03.00.
Pardus
Mánar
Lótus
Laugardagur: Kl. 14.00 Break danskeppni, Diskótek o. fl.
Sunnudagur: Kl. 14.00 Hátíðardagskrá,Break danssýning,
hátíöarræöa: Árni Johnsen alþm., helgistund, hljómleikar o. fl.
Diskótek alla helgina.
Sætaferðir frá BSÍ,Rvík:
Föstudag kl. 16.00-18.30-20.30
Laugardag kl.
Sunnudag kl. gi.Pl
10.30-14.00-21.00
Sætaferöir frá Selfossi:
Föstudag kl. 17.00-19.30-21.30
Laugardag kl. 11.30-15.00-22.00
Sunnudag kl. 22^00