NT - 04.06.1984, Page 22

NT - 04.06.1984, Page 22
 Mánudagur4. júní 1984 22 Utl Breskir þingmenn styðja Esperanto ■ í málgagni Alheimssamtaka Esperantista, UEA, var sagt frá því fyrir skömmu aö margir breskir þingmenn hefðu lýst yfir stuðningi sínum við alheims- málið Esperanto. Breskir þingmenn tíðka það gjarnan að stofna hópa um á- kveðin mál sem þeirstyðja. Þess- ir hópar ganga oft þvert á flokkaskiptingu og pólitíska af- stöðu að öðru lcyti. Þannig hafa 153 breskir þingmenn úr öllum flokkum gengið í Esperanto- hópinn á þinginu. Þetta mun vera fjölmennasti þingmanna- hópurinn sem myndast hefur um eitt mál af þessu tagi. Þessir 153 þingmenn eru að vísu ekki allir jafn ákafir í stuðningi sínum en þeir eiga það samt allir sameiginlegt að þeir vilja efla kennslu í Esper- anto og auka notkun þess í alþjóðaviðskiptum. Fyrráþessu ári hittust 44 þingmenn úr öllum þingflokkum þannig til að ræða um möguleikann á aukinni notkun Esperantos. Meðal þeirra hugmynda sem þeir ræddu má nefna notkun Esper- antos í tilraunaskyni til að auð- velda þýðingar og túlkun hjá ýmsum stofnunum Efnahags- bandalags Evrópu. Svo mikill er áhuginn hjá einstökum þingmönnum að þeir hafa jafnvel byrjað sjálfir að læra Esperanto þrátt fyrir mikið ann- ríki. Breski þingmaðurinn, All- an Roberts, fór t.d. fram á það við samtök Esperantista í London að þau gæfu honum kost á að taka þátt í námshóp þar sem hann gæti lært Esper- anto. Fyrir síðustu kosningar lýsti þessi þingmaður því yfir að hann væri algjörlega á móti Esperanto þannig að hann hefur heldur betur skipt um skoðun. ■ Þessi gríðarmikli tuddi er álitinn hinn stærsti í heimi, en þó er ekki fortekið í texta sem fylgir myndinni að einhvers staðar kunni jafnoki hans að finnast. Eigandi þessa þarfanauts er Jack Mericle bóndi í Kuna í Idahofylki. Nafnið sem hann gaf ferlíkinu er Satan. Nautið vegur rétt yfir tvö tonn og er það 1.8 metra hátt á herðakambinn. Satan er 15 vetra gamall. Fyrir þá sem kunna skil á nautarækt skal látið fylgja með að hann er afkvæmi Braham sire nauts og Shorthorn kýr, eins og kynin eru köUuð á amerísku. Annar boli sem náði sömu þyngd kom eitt sinn undan Brahamian nauti og Chinanina kú. Stærsta naut sem vitað er að hafi verið vegið náði 2.250 kflóa þyngd. Það var af kynjunum Holstein-Durham og var vegið á nautgripasýningu í Maine í Bandaríkjunum skömmu eftir aldamótin síðustu. Noregur: Hægri flokkur inn tapar ■ Dagbladet í Noregi birti nýlega skoðanakönnun sem það lét gera til að kanna viðhorf kjósenda til stiórnmálaflokk- anna. í ljós kom að fylgi Hægri flokksins hefur minnkað mest, eða um 3.2% og fengi flokkur- inn núna 29.2% ef kosið yrði. Framfaraflokkurinn bætti mestu fylgi við sig miðað við skoðanakönnunina og eykur fylgi sitt um 2.2% og fengi nú 5.4% atkvæða ef kosið yrði. Litlar breytingar virðast vera á Víetnam: Erlend aðstoð ennþá mikilvæg Nú eru liðin níu ár frá því að Víetnamstríðinu lauk og kommúnistar náðu völdum í öllu Víetnam. Þráttfyrirmikið uppbyggingarstarf frá því að stríðinu lauk hefur Víet- nömum samt enn ekki tekist aö ná aftur jafnvægi í efnahags- lífinu. Verðbólga, atvinnuleysi og vöruskortur eru enn alvar- leg vandamál. Ör fólksfjölgun Stjórnvöld í Víetnam segja að orsakir núverandi efnahags- vanda liggi í langvarandi stríði og mikilli mannfjölgun. Vara- forsætisráðherra Víetnams, Tran Phuong, sagði nýlega í viðtali við fréttamenn aö Norður-Víetnamar hefðu náð því marki að fullnægja eigin fæðuþörf árið 1964 en síðan hefði farið að halla undan fæti aftur eftir því sem stríðið magnaðist. Efnahagurinn staðnaði en á sama tíma fjölg- aði fólkinu ört. Fólksfjöldi í Víetnam tvö- faldaðist á árabilinu 1964 til 1975 en þá voru bardagar hvað harðastir. íbúar í Víetnam voru orðnir 47,6 milljónir árið 1975 og eftir stríðið hélt þeim áfram að fjölga svo að nú munu þeir vera næstum því 60 milljónir. Árleg fólksfjölgun er um 2,4% þótt það sé yfirlýst markmið stjórnvalda að draga úr henni svo að hún verði ekki nema 1,7% á ári. Því er spáð að um næstu aldamót verði Víetnamar um 80 milljónir. Það er því ekki nema von að Víetnömum reynist erfitt að brauðfæða sig. Háðir erlendri aðstoð Stuðningur erlendra þjóða bæði við Norður- og Suður- Víetnama var gífurlega mikill á meðan á stríðinu stóð. Tran Phoung varaforsætisráðherra segir að stuðningur sósíalískra ríkja við Norður-Víetnam hafi á þessunt tíma verið mjög svipaður og aðstoð Bandaríkj- anna við Suður-Víetnam. Á síðasta ári stríðsins hafi þessi aðstoð numið því sem næst einum milljarði bandaríkja- dala. Efnahagsskipuleggjendur voru orðnir svo háðir erlendri aðstoð að þeir voru að mestu hættir að hafa áhyggjur af því þótt efnahagsáætlanir stæðust ekki því að alltaf voru banda- menn Víetnama í austri og vestri tilbúnir til að auka að- stoð sína til þess að endar næðust saman. Við lok stríðsins árið 1975 urðu Víetnamar að fá næstum því tvö milljón tonn af hrís- grjónum og 3 milljón tonn af eldsneyti í aðstoð erlendis frá. Næstum því allt stál, vefnaðar- vörur og baðmull var innflutt og á árunum 1976 til 1980 fluttu Víetnamar að meðaltali inn um milljón tonn af matvæl- um á hverju ári. Undanfarin ára hafa Sovét- ríkjn veitt Víetnam einna mesta aðstoð en önnur Aust- ur-Evrópuríki hafa einnig veitt þeim umtalsverða aðstoð. En þessi aðstoð hefur farið minnkandi enda finnst Sovét- mönnum þungur baggi að þurfa að ausa út aðstoð að verðmæti mörg hundruð mill- jóna dollara ár eftir ár. Víet- namar segja sjálfir að á árun- um 1976 til 1980 hafi verð- mæti sovéskrar aðstoðar verið um 1,45 milljarðir dollarar samtals. En ýmsir erlendir að- ilar telja að þessi aðstoð hafi verið mun meiri. Mikill hluti aðstoðarinnar frá Sovétríkjunum og öðrum ríkjum í Austur-Evrópu hefur verið í formi lána en þau eru til langs tíma og vextir af þeim eru ekki háir þannig að greiðslubyrði Víetnama vegna þessara lána er ekki mikil, a.m.k. ekki enn sem komið er. ■ Særður víetnamskur hermaður. Það er ennþá þriggja ára herskylda í Víetnam og Víetnamar halda áfram að byggja upp her sinn þótt innanlandsstríðinu hafi lokið fyrir næstum því einum áratug. Verðbólga og atvinnuleysi Nú segjast Víetnamar ekki fá nema nokkra tugi milljóna af dollurunt og rúblum í aðstoð á hverju ári. Þeir neyðast því til að treysta meira á eigin krafta. En Víetnömum gengur það samt frekar erfiðlega. Verð- bólga og atvinnuleysi hefur hrjáð þá mjög á undanförnum árunt. Samkvæmt opinberum heimildum eru nú um ein mill- jon atvinnuleysingja í Víetnam og eru þá ekki taldir þeir með sem eru í hlutastarfi eða hafa atvinnu árstíðabundið við upp- skerustörf. Verðbólga hefur verið um 50-60 prósent á ári. Opinberir starfsmenn og strfsmenn í verksmiðjum í eigu ríkisins hafa samt að nokkru leyti sloppið við verð- bólguna því að þeir geta keypt ýmsar nauðsynjavörur beint af ríkinu á niðurgreiddu verði. Áframhaldandi hernaðaruppbygging Hinn mikli efnahagsvandi Víetnama stafar ekki bara af afleiðingum innanlands- stríðsins sem lauk eftir að Bandaríkjamenn hrökkluðust frá Suður-Víetnam fyrir ein- um áratug. Áframhaldandi hernaðaraðgerðir í Kambódiu og ófriður við Kínverja hefur einnig tafið efnahagsuppbygg- inguna. Víetnamar munu nú hafa rúmlega 1,2 milljón her- menn í fastaher sínum auk Danmörk: Nýstárleg búgrein ■ Það er víðar en á íslandi sem bændur leita fyrir sér með nýjar bú- greinar. í Danmörku er mikil offramleiðsla á mjólk, eins og í flestum ríkjum Efnahagsbanda- lagsins. Nú hafa 70 kúa- bændur í Hjörring tekið sig saman um að gera tilraunir með að rækta hirti á búum sínum og hyggjast leggja þann bú- skap fyrir sig ef vel tekst til og hætta mjólkurfram- leiðslu. Þetta hefur ekki verið reynt áður, en hirtir eru auðveldir í meðförum. Dýrin lifa að mestu úti allt árið og auðvelt er að ala þau. Kjötið er auðseljan- legt og fæst gott verð fyrir það, eins og þeir sjá sem veitt hafa því athygli á matseðlum dýrra veitinga- húsa, en það er selt sem villibráð. Aðalkostnaðurinn við að koma upp hjartarbúum er að girða þarf jarðirnar vel og munu bændurnir 70 leita til sjóða Efnahags- bandalagsins til að fá upp í þann kostnað. fylgi annarra flokka. I könnuninni fékk Miðflokk- urinn 5,8%, Kristilegi þjóðar- flokkurinn 8.9%, Verkamanna- flokkurinn 39.8%, Sósíali'ski vinstriflokkurinn 5,8% og Vinstri flokkurinn 3.8%. fjölmenns varaliðs. Það er líka ennþá þriggja ára herþjónusta fyrir flest ungmenni. Þessi mikli her er án efa mikill baggi á þjóðinni þótt sumir hafi hald- ið því fram að mikill fjöldi hermanna í Víetnam dragi úr atvinnuleysinu þar. Örar breytingar á fram- leiðsluskipulaginu í átt til sós- íalísks sameignarbúskapar kom einnig niður á framleiðsl- unni fyrstu árin eftir að komm- únistar náðu völdum í öllu Víetnam. Þetta bitnaði sér- staklega a framleiðslunni til sveita sem jókst ekki eins ört og kommúnistar höfðu reiknað með. Fólksfjöldi reyndist einnig meiri en búist var við þannig að fæðuskortur varð alvarlegt vandamál eftir að að- stoð erlendis frá fór að minnka. Víetnömsk yfirvöld ákváðu því árið 1980 að breyta efnahags- stefnu sinni nokkuð og slaka á þeim kröfum sem gerðar voru til samyrkjubúskapar. Þessi stefnubreyting hefur þegar skilað miklum árangri í meiri framleiðslu til sveita og auknu framboði á matvælum í borgum. V íetnömum tókst að ná met- uppskeru árið 1982 og þeir segjast stefna að því að vera sjálfum sér nógir um matvæla- framleiðslu nú í ár. En það er Ijóst að tímar erfiðleika eru enn ekki á enda og stjórnvöld segja að það þurfi t.d. fimm til tíu ár í viðbót til að vinna bug á atvinnuleysinu.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.