NT - 04.06.1984, Blaðsíða 27
iiL 1 íþróttir
Sovétmenn unnu
2-0 á Wembley!
■ Sovétmenn sigruðu Eng-
lendinga í vináttuleik í knatt-
spyrnu er fram fór á Wembley
leikvangnum í London á laug-
ardaginn með tveimur mörkum
gegn engu. Petta er í fyrsta
skipti sem Sovétmenn sigra
Englendinga á Wembley.
Það var varamaðurinn Sergei
Gotsanov sem kom Sovét-
mönnum á bragðið er hann
skoraði í upphafi síðari hálf-
leiks eftir að Mike Duxbury
hafði runnið til og misst frá sér
knöttinn sem Gotsanov hirti og
renndi framhjá Shilton í enska
markinu.
Rétt fyrir lok leiksins þá átti
Olge Blokhin þrumuskot að
marki. Shilton, sem lék sinn 60
landsleik, varði en hélt ekki
boltanum og Olge Protasov
pikkaði honum yfir línuna.
Sovéska liðið, sem eins og
Englendingum tókst ekki að
komast í úrslit Evrópukeppn-
innar í Frakklandi, reyndist
vera mun sterkara og reynslu-
meira í leiknum.
Liðin voru þannig skipuð:
England: Shilton, Duxbury,
Sansom, Wilkins, Roberts,
Fenwick, Chamberlain,
Robson, Francis (Hately 71.
mín.), Blissett, Barnes (Hunt
66 mín). Sovétríkin: Dasayev,
Sulakvelidze, Chivadze, Balt-
acha, Demyanenko, Oleinikov
(Pozdnyakov 85 mín.), Litovc-
henko, Oganesyan, Zygmant-
ovich (Gotsanov 20 mín.), Ro-
dionov (Protasov 87 mín.),
Blokhin.
Mánudagur 4. júní 1984 27
■ Ian Rush er efstur á lista hjá FC Barcelona ef liðið selur Diego
Maradona. Ólíklegt er að Liverpool vilji láta hann fara, enda hefur
hann skorað grimmt fyrir liðið. En erfitt er að standast þær fúlgur
sem Suður-Evrópuliðin bjóða. Selji Barcelona Maradona til Ítalíu
mun félagið fá aftur þær 8 milljónir dollara sem greiddar voru fyrir
hann árið 1982, og er algert met í leikmannakaupum.
Rush í stað
Maradona til
Barcelona ?
Krá Gisla Á. Gunnlaugssyni fríllamanni það að Bercelona sé þegar
ntí v-Þýskaiandi: farið að Ieita að eftirmanni
■ Þrátt fyrir að allt sé enn í Maradona, rennirmjögstoðum
lausu lofti varðandi sölu Diegos undir það að Maradona verði
Maradona til Napolí, er Barcel- seldur til Napolí, þrátt fyrir að
ona þegar farið að líta í kring- ekkert hafi enn verið staðfest í
um sig eftir eftirmanni argent- því efni.
ínska snillingsins. Mun Barce- Að Liverpool vilji láta Ian
lona þegar hafa átt óformlegar Rusherólíklegt. Enhvortenska
viðræður við velska landsliðs- félagið og/eða Rush standast
miðherjann og markakónginn þær fúlgur sem Barcelona kem-
hjá Evrópumeisturunum Li- Ur til með að bjóða, er önnur
verpool, Ian Rush. saga.
Wunderlich í
náðina
Frá Gí.sla A. Gunnlaugssyni fréttamanni
NT í V-Þýskalandi:
■ Erhard Wunderlich, v-þýska stór-
skyttan í handknattleik sem leikið hefur
í Barcelona á Spáni undanfarið ár, er
nú kominn í náðina hjá v-þýska landslið-
inu á ný, en liðið undirbýr sig nú af
kappi fyrir Ólympíuleikana í Los Ange-
les í sumar.
Aliar líkur eru nú taldar á að Wund-
erlich komi aftur heim til V-Þýskalands,
og leiki með Berlínarliði í 2. deild næsta
vetur. Wunderlich hefur liðið fremur
illa á Spáni að'eigin sö'gn, enda datt
hann út úr þýska landsliðinu og féll
mjög niður í getu sl. ár. Meðal þess sem
Wunderlich hefur látið hafa -rftir sér í
þýskum blöðum um Sþánardvölina er
það að landi hans Bernd Schuster,
knattspyrnustjarna hjá FC Bcrcelona í sig síðan hann (Wunderlich) kom til
hafi ekki látið svo lítið sem að 'iringja Barcelona.
aný
■ Erhard Wunderlich
Frakkar lögðu Skota
■ Frakkar sigruðu Skota frekar auð-
veldlega í landsleik í knattspyrnu sem
háður var í Frakklandi á laugardag með
tveimur mörkum gegn engu. Frakkar
höfðu yfirburði allan leikinn og hefði
sigurinn alit eins getað orðið stærri.
Alain Giresse náði forustunni strax á
14. mín. með þrumuskoti innan víta-
teigs og á 29 mín. jók Bernard Lacombe
muninn í tvö mörk með góðu skoti á
stuttu færi.
í síðari hálfleik héldu Frakkar áfram
að sækja en þrátt fyrir tækifæri tókst
þeim ekki að skora.
„Ég var hálf óánægður með hve
mótspyrnan var lítil í leiknum" sagði
Hidalgo þjálfari Frakka eftir leikinn og
Platini fyrirliði bætti við, „þessi sigur á
Skótum þarf ekki að verða til þess að
við vinnum Dani en hann gefur okkur
aukið sjálfstraust og sýnir okkur að við
getum gert góða hluti."
V-þýska landsliðið á EM í knattspyrnu:
Derwall hefur
valið hópinn
■ Jupp Derwall landsliðsþjálfari
V-Þjóðverja hefur valið 20 manna
hóp, sem tekur þátt í lokakeppni
EM í knattspyrnu síðar í þessum
mánuði.
Landsliðshópurinn er annars skip-
aður eftirtöldum leikmönnum: Mark-
verðir: Harald Schumacher Köln,
Dieter Burdenski Bremen, og Hel-
mut Roleder Stuttgart. Varnar-
menn: Hans-Peter Briegel, Kaisers-
lautern, Hans-Gunter Bruns
Gladbach, Ralf Falkenmayer
Frankfurt, Bernd Förster Stuttgart,
Karlheinz Förster Stuttgart, Uli Stie-
like Real Madrid, GerdStrack Köln.
Miðvallarleikmenn: Andreas
Brehme Kaiserslautern, Guido Buc-
hwald Stuttgart, Lothar Mattheus
Gladbach, Norbert Meier Bremen,
Wolfgang Rolff HSV.
Sóknarleikmenn: Klaus Allofs
Köln, Rudi Bommer Dusseldorf,
Pierre Littbarski Köln, Karl-Heinz
Rummenigge Bremen, Rudi Völler
Bremen.
Nýr sykurlaus
rp^T^'P Appelsínu-
X JT Xr drykkur
Nýjung sætíefníð „Nutra Sweet“
er notað í TOPP
Fæst í öllum matvöruverslunum Sói hf.