NT - 08.06.1984, Qupperneq 5
m i Föstudagur 8. júní 1984 .5
Ll w ÁBÓT Ferðir o <9 frístundir “■
■ „Hárgreiðsla pönkaranna er oft mjög nýstárleg, eða hvað finnst ykkur?"
■ „Ósviknir pönkarar hlaðnir keðjum og næium".
út frá því hafi orðið til tízka.
Sem dæmi má nefna andlits-
málningu karlmanna og
sokkabuxurnar vinsælu, í
öllum litum. Skömmu eftir
miðjan áttunda áratuginn náði
diskótónlist yfirhöndinni.
Diskótek spruttu upp og
„diskóföt" slógu í gegn,
klæðaburður tengdur „diskói“
var í glæsi- og „glimmerstíl",
jakkafötin urðu jafnvel úr
glansandi satíni og kjólar úr
gullofnu lurex-efni. Karlmann-
legar greiðslur komu aftur til
sögunnar, og konur skreyttu
hár sitt með alls kyns
spennum, spöngum og
kömbum. Dans- og söngva-
myndirnar Saturday Night
Fever, og Grease áttu ekki
síst þátt í að skapa diskó-
tízkuna. Sem reiðisvar við
diskóinu, braust fram pönk-
tónlist, sem á rætur sínar að
rekja til fátækrahverfa breskra
stórborga. Atvinnuleysi og
hingnandi efnahagur endur-
speglaðist í hörkulegum og
illskulegum klæðnaði; „pönk-
tízkan" varð til. Fyrst náði
„pönkið" vinsældum meðal
lágstéttarunglinga, sem ekki
höfðu peninga til að hlaupa á
eftir duttlungum diskótízkunn-
ar. Tónlistin var einföld, hrjúf
og kraftmikil, og fatnaðurinn
ógnvekjandi. Því skítugri,
hörkulegri, og druslulegri sem
fötin voru, því meira samræmi
við ríkjandi tízku. Svarti litur-
inn varð allsráðandi, ekki að-
eins í fatnaði, heldur voru
jafnvel varir og kinnar svart-
málaðar. Alls kyns gaddaólar,
grófar keðjur og hálsbönd
urðu mikil tízkuvara, og hár-
tízkan hin furðulegasta eins
og meðfylgjandi myndir sýna.
Kvennahljómsveitin „Grýl-
urnar", hafði vafalaust sterk
áhrif á fatatizkuna á íslandi,
en hinar vinsælu „grýlur“ voru
undir áhrifum hinnar dæmi-
gerðu pönktízku áttunda ára-
tugarins.
En það voru ekki bara hörð-
ustu pönkarar, sem fóru í
svört föt, því tízkukóngjar Par-
ísarborgar hönnuðu sínatízku
talsvert í anda Pönktízkunnar,
t.d. varð svarti liturinn hinn
allsráðandi tízkulitur. Nú er
pönktízkan á undanhaldi, ný-
jum poppstjörnum skýtur
stöðugt upp á stjörnuhimininn,
og án efa skýtur upp riýjum
tízkuklæðnaði í fataskápnum.
■ „Blómabörn á ís-
landi“, Trúbrot leikur
fyrir íslenzka æsku
1969“.
Öl, pylsur, samlokur, sælgæti
og. fl. og fl.
★ ★ ★
Úrval af sanackvörum
★ ★ ★
Videospólur í miklu úrvali
★ Nýjar myndir vikulega^
Leigjum einnig út videotæki
SÖLUSkÁUNN ARNBERGI
jijt Þjónusta í þjóðbraut
Erum í beinu talstöðvarsambandi við
olíubílana. Með því tryggjum viðfljóta og
góða afgreiðslu á olíum, bensíni og öðrum
vörum frá OLIS
Tökum á móti pöntunum alla daga frá
8:00 til 23:30 sími 1685
Grill - grillkol - grillolía
olíuluktir og ýmsar vörur
fyrir bílinn og ferðamanninn
SÖLUSKÁLINN ARNBERGI
Selfossi - Sími 99-1685