NT - 08.06.1984, Qupperneq 13
fíT?
LlIÍ ÁBÓT
Skraut:
Mjög þunnir laukhringir
radísusneiðar
í báða þessa rétti hefur
verið notað kryddblandan gar-
am masala. Það er hægt að fá
tilbúið í S.S. Austurveri og
Glæsibæ en mér finnst sú
blanda sem ég bý til sjálf mun
bragðmeiri og betri og hér er
uppskriftin á henni.
Garam masala
1 msk. kardimommufræ
1 4 cm kanilstöng
1 tsk svört piparkorn
1 tsk sv. kúmínfræ
1 tsk heill negull
'A úr múskathnetu
Allt .sett í kryddkvörn og
malað vel. Hægt að nota kaffi-
kvörn eða rafmagnskrydd-
kvörn. Ekki gott að nota
mortél, a.m.k. ekki fyrir kanil-
stöngina. Þetta síðan sett í
loftþétt glas, geymist vel en er
best nýlega blandað.
Og þá er að snúa sér að
meðlætinu. Indverjar nota
mikið ýmisskonar baunir í
sinni matargerð og hér á landi
er nú komið gott úrval af slíku,
sér í lagi í heilsufæðisbúðum
og öðrum viðlíka verslunum.
Gott er að nota kjúklingabaun-
ir, sojabaunir, rauðar og svart-
ar nýrnabaunir svo eitthvað
sé nefnt.
Réttur sá sem uþþskrift fer
hér á eftir er nokkurskonar
kássa eða mauk og smakkast
afar vel með kjúklingunum.
Indverjar kalla baunir
„dhals“ og heitir eftirfarandi
réttur:
„Dhal special11
fyrir 4-6
250 gr. rauðar nýrnabaunir
2 laukar
2-3 hvítlauksrif
1 grænnchilipiparjhefurfeng^
ist ferskur eða frosinn í S.S.
og Víði)
3 msk olía
1 msk kóríander
1 tsk turmeric
1 tsk kúmín
salt
sv. pipar
Va bolli rjómi eða sýrður rjómi
2 tsk kóríander fræ
4 skalottulaukar sneiddir
þunnt
1 msk olía
Leggið baunirnar í bleyti yfir
nótt, sjóðið síðan þar til þær
eru orðnar mjög mjúkar. Þetta
getur tekið 2-3 klst í suðu. Síið
síðan baunirnar og geymið
soðið af þeim.
Hakkið síðan lauk, hvítlauk
og chili og steikið í olíu í 3
mín. Bætið kryddinu útí og
steikið í 2 mín í viðbót, hellið
þá baununum útí og hitið í
gegn. Hakkið síðan allt saman
þannig að úr verði mauk, best
að gera þetta í hakkavél. Ef
maukið reynist vera mjög
þykkt þynnið þá með soðinu.
Bætið rjómanum útí. Steikið
kóríander fræin í olíunni
ásamt skalottulaukunum í 1
mín. og setjið útí stöþþuna.
Þykktin á að vera á borð við
þykka súpu.
Hrísgrjón eru nánast skylda
með öllum indverskum réttum
og eru ávallt notuð hýðishrís-
grjón. Bezt að nota þessi
löngu (long grain rice) Það er
vel hægt að hafa grjónin ein-
faldlega soðin, ennþá betra
finnst mér að krydda þau dál ít-
ið. Uþþskriftin hér á eftir er
mjög einföld en ákaflega
bragðgóð. Það er aðeins not-
að kúmín og turmeric en það
er hægt að nota öll möguleg
Föstudagur 8. júní 1984 13
Biti af engiferrót, ca 3 cm á
lengd og 2 á breidd
3-4 tómatar, ferskir eða niður-
soðnir
Vá tsk turmeric
Vi~ 1 chilipipar
1 tsk salt
1 tsk garam masala
1 tsk sítrónusafi
Saxið hvítkálið meðalqróft.
Afhýðið laukana, helmingiðog
skerið í sneiðar. Hitið 6 msk af
olíu á meðalhita og setjið fenu-
greek, kúmín, sinnepsfræ og
fennelfræ utí. Um leið og fræin
fara að hoppa á pönnunni og
breyta lit, setjið lauk útí og
steikið í ca 3 mín. Bætið káli
útí, blandið vel,setjið lok á
pönnuna og steikið við lágan
hita í 15 mín. Takið síðan
lokið af og sjóðið í 30 mín í
viðbót. Á meðan þetta sýður,
saxið hálfan lauk gróft, og
steikið hann ásamt gróft söx-
uðum hvítlauk og engifer og
tómat í blandara, búið til úr
þessu mauk. Hitið 3 msk af
olíu á pönnu, setjið þar útí
maukið úr blendernum ásamt
turmeric og chilipiþar. Steikið
í ca 10 mín og hrærið stöðugt
í. Ef þetta vill festast við
pönnuna, setjið þá útí 1 msk
af volgu vatni. Þegar hvítkálið
hefur soðið í 30 mín, setjið þar
útí maukið af pönnunni ásamt
salti, garam masala og sítrónu-
safa. Blandið vel og látið sjóða
í ca 5-7 mín.
Þetta virðist vera fullmikil
fyrirhöfn við einn hvítkáis-
haus, en ég get fullvissað þá
sem leggja út í þessafyrirhöfn
að hún borgar sig eins og
vinnan við alla hina réttina.
Að síðustu datt mér í hug
að hafa með uþþskrift að köldu
„relish". Uþpistaðan er a-
gúrka, jógúrt og sýrður rjómi.
Þetta er afar frískandi nk salat
og á dæmalaust við vel krydd-
að kjötið.
Agúrkusalat „raita“
fyrir 4-6
1 stór agúrka
15 únsur hrein jógúrt og sýrður
rjómi til helminga
1 tsk salt
Nýmalaður sv. pipar
1/2-1 tsk kúmínfræ, ristuð á
pönnu fyrst,
smáv. cayennepipar
paprikuduft til skrauts.
Afhýðið og rífið niður agúrk-
una. Blandið vel saman jógúrt
og sýrðum rjóma. bætið útí
agúrku, kúmín, salti, cayenne
pipar og sv. pipar. Látið standa
í ísskáp í góða stund áður en
borið er fram.
Það væri freistandi að gefa
upp fleiri uppskriftir því af
nógu er að taka, en ég læt hér
staðar numið.
Ég vona sannarlega að sem
flestir geti fært sér í nyt eitt-
hvað af þessu því eins og ég
hefi áður tekið fram er fyrir-
höfnin sannarlega þess virði.
Hráefnin í þennan mat eru
ekki dýr og yfirleitt auðvelt að
fá.
Allir þeir sem ég hefi boðið
uþþ á þennan mat hafa orðið
mjög hrifnir og vona ég að svo
verði með ykkur.
Fyrir þá sem langar til að
kynnast þessum lystagóða
mat betur, get ég bent að bók
sem ég hefi svo til eingöngu
notað sem heitir „An invitation
to Indian cooking" eftir Ma-
dhur Jaffrey og fékkst einu
sinni hjá Eymundsson. Önnur
mjög góð bók heitir „All Asian
Cooking“ og fékkst hún hjá
Snæbirni. Þar í eru réttir frá
flestum Asíulöndum og er hún
mjög vönduð.
Að síðustu: góða skemmtun
og verði ykkur að góðu.
krydd, tam. negulnagla, heilan
kanil, heilar kardimommurpip-
arkorn eða lárviðarlauf.
„Gul hrísgrjón“
1 msk olía
1/2tsk kúmínfræ
300 g. hýðishrísgrjón
1/2 tsk turmeric
1 tsk salt
Hitið olíu, þegar hún er vel
heit, setjið kúmínfræin útí og
brúnið í nokkrar sek. Bætið
hrísgrjónum útí og turmeric,
hrærið vel í og steikið í 2-3
mín eða þar til grjónin taka
smáv. lit. Bætið ca. 700 ml
vatns útí og saltið. Sjóðið í ca
30 mín.
Mörgum finnst kartöflur ó-
missandi með grillmat og hér
fer á eftir réttur sem ég get
óhrædd mælt með. Þessi rétt-
ur fer afar vel með öllu kjöti,
ekki bara indverskum kjötrétt-
um. •
Uþþskriftin miðast við 4-6
„Sookhe aloo
(þurrar kartöflur)"
8 stórar kartöflur, soðnar og
kældar
10 msk olía
1 tsk fennelfræ.
1 tsk kúmínfræ
1 tsk sinnepsfræ
12 fenugreekfræ (ca. 1/2 tsk)
3 þurrkuð rauð chilipiparhylki
1 tsk turmeric
1 -2 tsk salt
1 msk sítrónusafi
Afhýðið kartöflurnar og
skerið í meðalstóra bita. Hitið
olíuna, helst i pottjárnspönnu
eða potti, þegar olían er mjög
heit, setjið útí fennel og kúmín,
síðan sinneþsfræ og fenu-
greek. Hitið og hrærið stöðugt
í á meðan. Þegar kryddið
byrjar að taka lit, bætið útí
piparhylkjum, þegar þau fara
að bólgna, fara kartöflur, turm-
eric og salt útí. Hitið á meðal-
hita og hrærið varlega í á
meðan til að kartöflur fari ekki
í mauk. Steikið í ca 15-20 mín
eða þar til kartöflur eru jafnt
brúnaðar. Kreistið sítrónusafa
yfir kartöflurnar og saltið eftir
smekk.
Það er ómissandi að hafa
eitthvert grænmeti með grill-
mat og hér kemur uþþskrift að
hvítkálsrétti. Svona hvítkál er
einnig mjög gott með öllum
steikum öðrum en indversk-
um.
„Hvítkál með lauk“
Fyrir 4-6
1 meðalstórt hvítkálshöfuð
21/2 laukar
9 msk olía
6 fenugreek fræ (1A)
1/2 kúmínfræ
1/2 sinnepsfræ
1/2 tsk fennelfræ
2-3 hvítlauksrif
dýnustærð 200x90 cm.
Verð
kr. 12.600.-
Húsgögn og
, " Suðurlandsbraut 18
innrettmgar simi 6-86-900
Cabina rúmsamstæðan
er komin aftur