NT - 22.06.1984, Side 2
CD
Föstudagur 22. júní 1984
Magnús Skarphéðinsson:
„Var skipað að aka I :!“ial,s.lr
á ólöglegum hraða“
Mál hans enn til umræðu í borgarstjórn
■ „Magnús Skarphéðinsson
gerði sig sekan um óstundvísi,
það var kvartað yfir að hann æki
aðrar leiðir en honum bar að
fara og hann skilaði strætisvögn-
unum óhæfilega seint á kvöldin
eftir akstur“. Þessar ávirðingar
voru tíundaðar af stjórnarfor-
manni SVR, Sigurjóni Fjeld-
sted, á borgarstjórnarfundi í
gær, þar sem enn var rætt um
brottrekstur Magnúsar Skarp-
héðinssonar úr starfi hj á Strætis-
vögnum Reykjavíkur. Álfheið-
ur Ingadóttir hóf utandagskrár-
umræðu um málið og mælti fyrir
kröfu Alþýðubandalagsins þess
efnis að borgarstjóri sæi til þess
að Magnús fengi skriflegar
skýringar á brottrekstri sínum
úr starfi frá forstjóra SVR.
Davíð Oddsson borgarstjóri
svaraði því til að Magnús ætti
engar kröfur á frekari sýringum,
en málið yrði tekið aftur fyrir í
borgarráði. Hann kvað fyrrver-
andi forstjóra SVR hafa kvartað
ítrekað vegna Magnúsar, en
hefði horfið frá að reka hann.
Álfheiður og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir véfengdu að öll
kurl væru komin til grafar. Ingi-
björg vitnaði til skýrslu sem hún
hefði undir höndum, þar sem
fram kæmi svart á hvítu að
Magnús hefði að meðaltali mætt
þrisvar of seint til vinnu á ári og
í sömu skýrslu kæmi fram að
hann hefði breytt út af aksturs-
leið einu sinni í febrúar 1982.
„Menn breyta út af leiðum ef
það er nauðsynlegt vegna
færðar," sagði Magnús erblaða-
maður ræddi við hann eftir um-
ræðurnar, en hann fylgdist með
þeim af áheyrendapöllum. Þá
sagði hann að skýringin á því að
hann hefði skilað vögnum of
seint á kvöldin væri sú að tíma-
takmörk væru afar þröng í
síðustu ferðum og hefði hann
neitað fyrirskipunum um að aka
á óleyfilegum hraða í þeim
ferðum. „Ég hef vitni að því að
ég fékk þau fyrirmæli en ég lýsti
því yfir að sem fulltrúi í umferð-
arnefnd neitaði ég því. Ég ók
þó á hámarkshraða þrátt fyrir
hálku og ófærð, og það þýddi að
ég skilaði vagninum korteri
seinna en gert var ráð fyrir.“
á öræfum
Líklega vinnuslys
■ Dauðaslys varð inni á væri látinn.
Öræfum um kl. 20.00 í Málsatvik voru enn
gærkvöldi, nánar tiltekið óljós, síðast þegarfréttist.
við Þúfnaver. Um kl. Menn frá lögreglunni á
20.00 hafði héraðslæknir- Hvolsvelli fóru upp að
inn á Hellu samband við
Slysavarnafélagið og ósk-
aði eftir þyrlu til að flytja
alvarlega slasaðan mann.
Skömmu seinna var hringt
aftur og sagt að þess gerð-
ist ekki þörf, maðurinn
Þúfnaveri í gærkvöldi til
að rannsaka nánar málsat-
vik. Líkur eru taldar á að
þarna hafi verið um
vinnuslys að ræða. Mað-
urinn sem lést var 24ra
ára gamall Rangæingur.
Lögreglufylgd franskra blaðamanna:
„Skraut á
heimsókn“
■ 90 franskir blaðamenn sem
komu til Islands í gær fóru
ótollaðir í lögreglufylgd til
Reykjavíkur. Þegar þangað
kom var umferðarljósum stjórn-
að til að þeir kæmust hindrunar-
laust leiðar sinnar. Að sögn
Kjartans Lárussonar forstjóra
Ferðaskrifstofu ríkisins var
þessi viðhöfn vegna óskar
franska sendiráðsins og utanrík-
isráðuneytisins. Ferðaskrifstof-
an, sem skipulagði heimsókn
hópsins, hafði milligöngu um
málið. Sagði Kjartan heimsókn
sem þessa mikla lyftistöng fyrir
ferðamál. Hann sagðist vera
mótfallinn því að fólki væri
mismunað, en þarna væri um
mjög stutta heimsókn margra
ritstjóra og blaðamanna stór-
blaða og tímarita, franskra og
hefði verið reynt að gera heim-
sókn þeirra ánægjulega. Hópur-
inn hélt til Frakklands í nótt.
NT mynd Árni Bjama
Forstjórinn
verði alltaf
„samskonarson“
■ Um þessarmundirer Jón
Jónsson að láta af starfi for-
stjóra Hafrannsóknarstofn-
unarinnar, en Jón á rétt á að
hætta samkvæmt 95 ára regl-
unni (samanlagður lífaldur
og embættisaldur nær 95
árum). Það má búast við því
að margir verði til þess að
sækjast eftir þessu starfi m.a.
vegna þess að því fylgja trún-
aðarstörf á erlendum vett-
vangi, tíðar ferðir út á fundi
o.s.frv. Af þeim sem koma
til greina hefur nafn Jakobs
Jakobssonar fiskifræðings oft
verið nefnt en hann á að baki
langt og farsælt starf við
stofnunina. Ráðning hans
hefur líka einn kost. Hún '
skapar þá hefð að forstjórinn
beri alltaf sama föðurnafn og
fornafn. Verði m.ö.o. „sams-
konarson“.
Lítið alit á
sjómönnum
■ Ekki hafa þeir útvarps-
menn mikið álit á íslenskum
sjómönnum. í fréttum út-
varpsins í fyrrakvöld var
greint frá því að kjarni ís-
lenskrar sjómannastéttar
væri á leið í land. Tvær
spurningar vakna við þetta.
Ef til er kjarni sjómanna-
stéttar hvað eru þá hinir -
hismi? Og sé til kjarni stétt-
arinnar, þá hlýtur.að vera
gaman fyrir hina að vita að,
samkvæmt útlistun útvarps-
ins, að þeir sem enn eru á sjó
tilheyra ekki kjarnanum
heldur hisminu. Ennfremur
má benda útvarpsmönnum á
að bátaflotinn liggur venju-
lega inni á þessum árstíma.
■ Ólafur Ketilsson á Laug-
arvatni
Sjöundi
dagurinn
■ Helgidagahald íslend-
inga hefur breyst í tímans rás
frá því að lög voru sett um
þessi mál snemma á öldinni.
Eins og fram kemur í frétt
NT á mánudag eru flest þessi
lög þverbrotin í dag. Þeir
sem eldri eru muna tímana
tvenna í þessum efnum og
þannig rifjaðist upp fyrir
Dropamanni orð sem sú
aldna kempa Ólafur Ketils-
son langferðabílstjóri á
Laugarvatni hafði um þetta
að segja í samtali fyrir nokkr-
um árum.
„Hér á mínum ungdóms-
árum sagði fólk, sex daga
skalt þú verk þitt vinna en
hvíla þig þann sjöunda. Og
þá var það gert“, sagði sá
gamli. „En núna; nú vinnur
fólk í mesta lagi fimm daga,
hvílir sig kannski þann sjötta
og veit svo ekkert hvað það
á að gera við þann sjöunda.“
Nágranni sinna fyrr-
verandi sjúklinga
■ Læknissetrið í Eyjum er
við hliðina á kirkjugarðin-
um. Páll útskýrir það þannig:
Framsóknarmenn eru eins og
allir vita miklir málamiðlar-
ar. Þannig var að íhaldið í
Vestmannaeyjum vildi reisa
bústað yfir lækninn. Komm-
arnir voru hins vegar alfarið
á móti og töldu að læknirinn
hefði nógu hátt kaup þó ekki
væri verið að byggja handa
honum hús. Horfði til átaka
mikilla um þetta mál. Pá
komu framsóknarmenn með
lausn sem allir féllust á.
Byggjum hús handa læknin-
um en höfum það við hliðina
á kirkjugarðinum, þannig að
hann verði nágranni sinna
fyrrverandi sjúklinga. Þetta
var nógu rótarlegt til að allir
urðu ánægðir.
Átakafundur hjá ABR um uppsagnamál:
Ályktanir gegn verkalýðsfor
ingjum og borgarfulltrúum
■ Uppsagnir Magnúsar
Skarphéðinsonar strætisvagna-
bílstjóra og Brynjars Jónssonar
trúnaðarmanns hjá Hafskip
hafa magnað upp miklar deilur
innan Alþýðubandalagsins, sem
náðu hámarki á átakafundi í
Alþýðubandalagsfélagi Reykja-
víkur í fyrrakvöld. Þar voru
samþykktar tvær ályktanir, sem
beindust gegn frammistöðu
borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins í Magnúsar máliriu og
forustu Dagsbrúnar í máli
Brynjars. Alyktanirnar voru
Uppsögn
samþykktar með þorra atkvæða
gegn atkvæðum borgarfulltrú-
anna Öddu Báru Sigfúsdóttur
og Guðmundar Þ. Jónssonar og
örfárra annarra. Um 40 manns
sóttu fundinn.
„Þessar ályktanir eru fyrir
innanfélagsmenn og ekki aðra“,
sagði Kristján Valdimarsson
starfsmaður ABR í samtali við
blaðið í gær og kvað þær ekki til
birtingar. En samkvæmt heim-
ildum blaðsins var önnur álykt-
unin, sem borin var upp af Gísla
Gunnarssyni, Svani Kristjáns-
syni og Margréti S. Björnsdóttur
almennt um það að kjörnir
fulltrúar Alþýðubandalagsins
ættu að gæta í hvívetna hags-
muna starfsfólks gegn atvinnu-
rekendum, en hin tillagan sem
borin var upp af Gylfa Páli
Hersi fjallaði um sömu hluti,
auk þess sem hún hvað fast að
orði um afstöðu borgarfulltrúa
og verkalýðsforingja í málum
Magnúsar og Brynjars. Sú til-
laga hafði áður verið borin upp
á stjórnarfundi í ABR en verið
felld.
Formannáfundur Alþýðu-
sambands Austurlands beinir
því til verkalýðsfélaganna á
Austurlandi að standa saman
að uppsögn kaupliða kjara-
samninga fyrir 1. september
n.k., þar sem allar forsendur
síðustu samninga séu brostnar
vegna mikilla hækkana verðlags
á samningstímanum.
Þá skorar fundurinn á stjórn-
völd að grípa þegar til aðgerða
til að koma í veg fyrir yfirvof-
andi neyðarástand í atvinnu-
málum Austfirðinga. Fundur-
inn mótmælir einnig harðlega
fyrirhugaðri uppsögn sjó-
manna, svo og fyrirvaralausri
uppsögn fiskvinnslufólks á
Austurlandi.
Stigahlíðarlóðirnar:
Meðalverðið var
1.66 milljónir
■ Meðalsöluverð lóðanna
sem boðnar voru út í Stiga-
hlíð reyndist vera 1.66 millj-
ónir króna en alls var seld
21 lóð. Þetta kom fram á
borgarstjórnarfundi í gær-
kvöldi. Heildarsöluverð var
kr. 34.476.000.
Þeir sem hrepptu lóðirnar
á útborðinu voru: Jónas Sig-
urðsson, Olafur Björnsson,
Guðlaug Þórarinsdóttir, Þór
Ingvarsson, Guðbjörg Ant-
onsdóttir, Hörður Jónsson,
Sævar Sigurgeirsson, Guð-
rún Björnsdóttir, Vigdís Þór-
arinsdóttir, Bragi Ragnars-
son, Eggert Atlason, Jón
Ólafsson, Elísabet Her-
mannsdóttir, Indriði
Pálssön, Jón Zalewsky, Haf-
steinn Sigurðsson, Helgi Þ.
Jónsson, Hörður Þorgeirs-
son, Kristín Árnadóttir,
Þórður Óskarsson og Jón G.
Zoéga.